Tölvumál - 01.11.1977, Blaðsíða 3

Tölvumál - 01.11.1977, Blaðsíða 3
TÖLVUMÁL 3 2. ASCII-kódun. Forsvarsmaður Frosti Bergsson. 3. Lyklaborð. Forsvarsmaður Auðun Sæmundsson. Hópunum er gert að greina frá starfi sínu á félagsfundi í febrúar 1978. FYRSTU SKÝRSLUGERÐARVÉLAR A ÍSLANDI Það hljómar ótrúlega, nú á árinu 1977, að ekki skuli vera nema þrettán ár síðar fyrsta gagnavinnslutölvan kom hingað til lands og að fyrir svosem aldarfjórðungi hafi tölvan almennt verið álitin heldur vafasamt apparat, kannske fyrst og fremst dýrt leikfang og ekki líklegt til afreka. Saga gagnavinnsluvéla í heiminum spannar a.m.k. eina öld og raunar talsvert lengri tíma, ef miðað er við fyrstu tilburði manna til að smíða reiknitæki. Vinnsla upplýsinga í gataspjöldum var orðin nokkuð almenn á fjórða áratugi þessarar aldar. Hingað til lands bárust fyrstu eiginlegu gagnavinnsluvélarnar árið 1949. Hér á eftir eru tíndir saman nokkrir fróðleiksmolar um þessar fyrstu vélar: Hagstofa Islands varð fyrst aðila hérlendis til að taka í notkun reiknivélar. í Hagtíðindum, 46. árg., nr. 2, febrúar 1964, er 50 ára afmælis Hagstofunnar minnst og rituð saga hennar og íslenzkrar hagskýrslugerðar. Þar kemur fram, að það féll í hlut fyrsta hagstofustjórans , Þorsteins Þorsteinssonar, að kaupa til landsins fyrstu reikni- vélarnar árið 1914 og einnig, 35 árum síðar, að taka í notkun skýrslugerðarvélar og hefja vinnslu upplýsinga í gataspjöldum. Þegar Þorsteinn ræðir um fámennt starfslið Hagstofunnar fyrstu starfsárin, segir hann: "Nokkuð bætti það þó úr skák, að við stofnun Hagstofunnar voru keyptar handa henni tvær reiknivélar, önnur samlagningarvél skrif- andi, sem aðallega var notuð við úrvinnslu verzlunarskýrslna, en hin margföldunar- og deilivél. Höfðu slík tæki eigi áður verið notuð hér við hagskýrslugerð. Munu þetta vera hinar fyrstu reikni- vélar, er fluttust hingað til lands. Margföldunarvélin nefndist Trinks-Brunsviga, og var hún bæði stærri, þyngri og hávaðameiri en vélar þær, sem nú eru notaðar, en hún var sterk og er enn í notfæru standi." Síðar í grein sinni um Hagstofuna 1914-1950 lýsir Þorsteinn aðdraganda að komu fyrstu skýrslugerðarvélanna til Islands þannig:

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.