Tölvumál - 01.11.1977, Qupperneq 6
6
TÖLVUMAL
Ritgerð Áka mun vera eitt hið fyrsta sem birtist á prenti
hérlendis um vinnslu upplýsinga í gataspjöldum og skýrslu-
gerðarvélar. Vélunum er nokkuð lýst í greininni. Orðaval
og framsetning minnir á, að hér er í fyrsta skipti lýst á
íslenzku nýrri tækni, fyrir lesendum er ekki hafa kynnst þeim
hugtökum um gagnavinnslu, sem nú leika á flestra vörum.
"Vélar þær, sem Hagstofan hefur, eru 4 götunarvélar, 4 gat-
prófunarvélar, ein röðunarvél og ein töflugerðarvél", segir
Áki.
Raðarinn "hefur 13 hólf og raðar eftir einni röð spjaldsins í
einu". Vélin var semsé sambærilegrar gerðar og alþekkt er
ennþá og raðaði 480 spjöldum á mínútu. Röðunarvélin var þó
sérbyggð að því leyti, að við hana voru 13 teljarar, einn
fyrir hvern vasa. Þetta gerði hægara að vinna ýmsar töflur
úr gataspjöldum, með því að rita niður talningar í vasana.
Töflugerðarvélin var eins og áður er fram komið, númerísk
eingöngu. Hún hafði fimm níu stafa teljara og tvö tíu stafa
geymsluverk (List banks). Vinnslu vélarinnar var stýrt með
tengivírum í töfluborði. Totalar gátu verið minor, major og
grandtotal (undir-, yfir- og heildartotal). Les- og skriftar-
hraði vélarinnar var 75 spjöld/línur á mínútu. Þá var mögu-
legt að stýra götun summuspjalda með því að tengja saman
töflugerðarvélina og gatara, sem þess á milli mátti nota við
venjulega skráningu (götun).
Vélar þessar voru, eins og áður er fram komið, notaðar á Hag^-
stofunni í tæp þrjú ár, þ.e. frá því um haustið 1949 fram á
fyrri hluta árs 1952, að farið var að vinna verzlunar-
skýrslurnar í vélum Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurbæjar,
eins og stofnunin hét í upphafi.
Stjórnandi vélanna var Áki Pétursson. Hann hóf störf hjá Hag-
stofunni árið 1937 og starfaði þar til dauðadags árið 1970.
Hann nam meðferð vélanna í Danmörku og stjórnaði þeim allan
starfstímann á Hagstofunni. Eftir það var hann í allmörg ár
umsjónarmaður Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurbæjar. Hann
var síðan einn helzti sérfræðingur Hagstofunnar á sviði gagna-
vinnslu. Áki hlýtur að teljast fyrsti skýrsluvélamaður og
kerfisfræðingur hérlendis.
Helzti aðstoðarmaður Áka við skýrslugerðarvélarnar fyrstu
starfsárin var frú Ásthildur Björnsdóttir. Hún starfar ennþá
á Hagstofunni.
Uppsetningu vélanna hér heima og viðgerðir annaðist Ottó A.
Michelsen, nú forstjóri IBM .á Islandi.
öttar Kjartansson tók saman.