Tölvumál - 01.11.1977, Page 7

Tölvumál - 01.11.1977, Page 7
tölvumAl auglýsing 7 KRISTJAN ö. SKAGFJÖRÐ HF - TÖLVUDEILD - FRETTATILKYNNING Nú eru tæp tvö ár liðin síðan DIGITAL Equipment Corporation og Kristján 6. Skagfjörð h/f. hófu samstarf á sviði tölvuþjónustu. A þessum tíma hefur tölvudeild Skagfjörð vaxið hröðum skrefum, og eru nú starfandi við deildina sjö sérhæfðir starfsmenn. Hingað til hefur tölvudeildin lagt aðal áherslu á sölu og þjónustu á tölvum af gerðinni PDP-11, sem eru mjög fjölhæfar og afkastamiklar. Hér að neðan verður lítilega minnst á tvö tölvukerfi úr PDP-11 fjölskyldunni, þ.e. PDP-11/03, sem er þeirra minnst, og flaggskipið, PDP-11/70. PDP-11/03 tölvukerfið: + PDP-11/03 talva, með 32 kb MOS minni + RX-11 tvöföld diskettustöð, geymslurými samtals 500.000 bytes + LA-36 Matrix prentari m/lykilborði + RT-11 stýrikerfi með F/B + Fortran 4 og Ext.Basic PDP-11/03 tölvukerfið má stækka á ýmsa vegu, t.d. stækka minnið í 56 kb, bæta við 5 mb diskum, og tengja við það fjölda terminala. Af fáanlegum aukabúnaði má nefna APL, RT-11/2780 og RT-11/3270. Verð CIF Reykjavík, $ 11.900.- PDP-11/70 tölvukerfið; + PDP-11/70 talva með 256 kb CORE eða MOS minni + RWM-03 diskakerfi með 1 stk. 67 mbytes diskadrifi + TWE-16 segulbandsstöð 800/1600bpi, 45 ibs, rúmar 27 mbytes + La-36 Matrix prentari m/lykilborði + RSTS/E stýrikerfi, þýðarar, BASIC og COBOL PDP-11/70 tölvukerfið má stækka mikið, t.d.stækka minnið í 4096 kb. Við RWM-03 má tengja bæði RM-03 67 mbytes diskadrif, svo og 176 mbytes diskadrif, (alls 8 diskadrif+. Fjölga má segulbands- stöðvum í 8 stk. TE-16. Tengja má og við tölvukerfið mikinn fjölda terminala. Af fáanlegum aukabúnaði með PDP-11/70 tölvukerfi, má nefna APL, RPG-II, RSTS:E/2780 og RSTS:E/3270 Verð CIF Reykjavík, $ 122.700.- NÚ í byrjun nóvember kemur á markaðinn ný vél frá DIGITAL, sem ber nafnið VAX-11/780. Þessi vél er 32 bita og getur því bæði talist til PDP-11 fjölskyldunar og DEC System 20. Hér verður án efa um tímamót á sviði tölvuframleiðslu að ræða, þar sem nú verður hægt að bjóða 32 bita tölvu, á verði sem er fyllilega sambærilegt við verð á meðal stórri "mini" tölvu. Frosti Bergsson

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.