Tölvumál - 01.11.1978, Síða 3
tölvumAl
3
FRÁ ORÐANEFND
Orðanefndarmenn hafa nú byrjað á því erfiða verki, aÖ
fara í gegn um ISO 2382 og þýöa algengustu orö og skil-
greiningar. Þá rekum viö okkur fljótlega á nokkur vand-
ræðaorð, sem alltaf eru að flækjast fyrir.
Fyrst má .nefna data. Data. er í ensku f leirtöluorð, í
eintölu datum. Data hefur lengi verið þýtt með orðinu
gögn í íslensku, sem líka er fleirtöluorð. Margir hafa
kvartað yfir gögnunum, sérstaklega þegar reynt er að
nota eintölumynd orðsins. Er þessari spurningu þá stundum
varpað fram: Hvaða gagn er að þessu gagni? Við bendum
fólki á að nota fleirtölumynd orðsins til að forðast
þvílíkt klúður. Gögnin hafa unnið sér vissan sess í
íslensku máli og ekki hafa komið fram betri hu|myndir.
Spurt hefur verið hvort ekki megi nota data í íslensku.
Þá þarf að aðlaga orðið íslenskum beygingarvenjum. Orða-
nefndarmenn reyndu sér til gamans að hafa orðið x öllum
þremur kynjum x sterkri og veikri beygingu (a.m.k. sex
möguleikar) og þarf ekki að fara mörgum orðum um örlög
þeirra tillagna.
Orðanefndarmenn vilja auglýsa eftir tillögum um íslensk
orð í stað eftirfarandi enskra orða: processor, process
procedure, routine.
í framhaldi af hug'leiðingum óttars Kjartanssonar um^gagna-
skráningu eða götun í síðasta tölublaði TÖlvumála má taka
til athugunar ýmis fleiri starfsheiti í sambandi við gagna-
vinnslu en götunarstúlkur. 1 stórum stofnunum og fyrir-
tækjum, þar sem gagnavinnsla fer fram, er verkaskipting
oft skörp og hver hefur sitt starfsheiti. Hafa komið
ábendingar um að þýða þurfi starfsheiti eins og t.d. opera-
tor og preparator. Og þá koma upp x hugann ýmis orð, sem
dregin eru af orðinu tölva og spurt var, hvort merking
þessara orða í íslensku væri Ijós. Fyrst má þá nefna nafn-
orðið tölvun, sem notað er t.d. í samsetningunni tölvunar-
fræði. Flestir skilja þetta orð í sömu merkingu og enska
orðið computing þannig að tölvunarfræði er þá sama og
computing science. Einnig má mynda sögnina að tölva, en^
þá ver'ða menn að koma sér saman um hvað gert er, þegar fólk
tölvar. Er það samheiti yfir hina ýmsu þætti gagnavinnslu,
eða má nota orðið um eitt afmarkað verksvið? Gerandheitið
tölvari (sá sem tölvar) hefur á undanförnum árum verið
notað um "operators". Það er ef til vill ekki mjög heppi-
legt, nema fólk komi sér saman um, að það að stjórna tölv-
unni (ýta á rétta takka) sé að tölva. Önnur gerandnöfn
má einnig mynda af sögninni tölva, t.d. tölvi (sbr. Sölvi)
og tölvuður (sbr. hugsuður).
Látum þetta nægja í bili. Orðanefndarmenn vænta þess að
heyra álit félagsmanna.
Sigrún Helgadóttir