Tölvumál - 01.12.1979, Blaðsíða 2

Tölvumál - 01.12.1979, Blaðsíða 2
Síðastliðið sumar komust starfsmenn á Reiknistofnun Háskálans yfir listun á skákforriti, skrifað á hinu unga og efnilega PASCAL-máli. Þar eð PASCAL þýðandi Reiknistofnunar réði ekki við forrritið, sem reyndar er glettilega flókið, var það á nokkrum laugardagseftir- miðdögum umritað yfir á FORTRAN 4 og endurbætt í leið- inni. Forritið er þannig útbúið, að breyta má ýmsum stærðum, sem áhrif hafa á stöðumat og taflmennsku tölvunnar, t.d. varðandi árásarhnei^ð. Þannig getur hver notandi þróað hjá tölvunni skákstil að sínu skapi. Ennfremur er hægt að breyta skákstyrknum, og þar með umhugsunartímanum, jafnvel í miðri skák (sem getur verið hentugt sl maður kominn með verri stöðu?). Sem stendur er forritið í þjálfun og skákuppeldi hjá Daða Jónssyni, reiknifræðingi. Það hefur ekki lært neinar byrjanir ennþá, heldur teflir rökrænt frá 1. leik, og er athyglisvert að með hvítt byrjar það á e2-e4 og kemst þannig að sömu niðurstöðu og Bobby Fischer, að þetta sl sterkasti leikur hvíts í upphafsstöðunni? Hlr fer á eftir sýnishorn af hæfni forritsins. Það er keyrt á PDP 11/60 tölvu Reiknistofnunar, og teflir hlr á móti Radíó Schack heimilistölvu. Að vísu er ójafn leikur því Radíó Schack vllin hefur aðeins 4kb minni, en forritið á PDPll/60 tölvunni notar u. þ.b. 4 6kb. Svart: Radíó Schack Hvitt: PDP 11/60 1. E2-E4 2. B1-C3 3. G1-F3 4. D2-C3 5. C1-G5 6. D1-D5 7. D5-E5+ 8. 0-0-0 9. E5-F4 10. Cl-Bl 11. F4-D6+ 12. F1-C4+ E7-E5 F8-B4 B4-C3 D8-F6 F6-G6 C7-C6 E8-F8 F7-F6 G6-H5 D7-D6 F8-F7 Gefið Hafa verður hugfast að PDPll/60 tölvan lærði að tefla fyrir þrem mánuðum. Ekki svo lllegt hjá byrjanda! Reyndar er sigurvíman slík eftir þennan fyrsta skjalfesta tölvuskák- sigur á Islandi (eða hvað?), að mlr var falið að koma á framfæri einvígisáskorun til allra hlrlendra tölva. Að öllu gamni slepptu er áhugavert að rifja upp, að ekki er ýkja langt síðan margir álitu hina göfugu íþrótt skák gott^dæmi um það sem maðurinn gæti gert, en tölvan aldrei. Af sýnishorninu hlr að ofan má vera ljóst að þótt enn sl langt í það að tölvan skáki manninum algjörlega, þá verður að svara spurningunni í fyrirsögninni játandi: Tölvur geta teflt. Pall Jensson

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.