Vísir - 31.10.1961, Síða 1
w
VISIR
héðan töfðust.
AÐ KVÖLDI þess 24. október
síðastliðinn slitnaði sæsíminn
og hafði það í för meðsér gífur-
legar tafir á öllum skeytasend-
ingum héðan til Evrópulanda.
Sæsímastrengurinn slitnaði
að þessu sinni ekki hér við land,
heldur fyrir sunnan Færeyjar
og hefir ekki enn verið hægt
að framkvæma á honum við-
gerð.
Tafirnar á skeytasendingun-
um héðan urðu vegna þess hve
radíóskilyrði voku slæm, sem
aftur stöfuðu af afleiðingum
Frh. á 2. síðu.
Gosið dvínar en nýr
leirhver vaknaður.
öskugosið er nú mjög
að dvína og eru jarðfræð-
ingarnir allir staddir hér á
Akureyri, ásamt leiðang-
ursstjóranum dr. Sigurði
Þórarinssyni. Öfært má nú
heita við öskju, snjór í
mitti og vonzkuveður.
Nýr leirhver.
Þetta símaði Jón Bjarnason,
fréttamaður Vísis í leiðangri
dr. Sigurðar Þórarinsson í
morgun.
Á sunnudaginn fóru jarð-
fræðingarnir í síðasta sinn að
eldunum og var ég í förinni.
Kom þá í Ijós að nýr, gjósandi
leirhver hafði myndast í
sprungunni sem liggur þvert á
gosgígana. En sjálft gosið var
mjög í rénum og telur dr. Sig-
urður að það muni fjara út
innan skamms. Þarna uppi við
eldana var blindhríð og frusu
föt okkar í stokk og við sáum
ekki handa okkar skil.
Við mælingar kom í ljós að
hraðinn á hrauninu er mestur
neðst, 20 m. á klst. Hraunið er
nú orðið 8—10 km. langt. Efst
við eldana er það 1 km. á
breidd en 4—5 á breidd neðst.
Hraunið hefir nú runnið niður
undir vikrafell, Hæð þess er
2—8 metrar. Þegar við kom-
um niður af fjallinu frá eld-
unum biðu nokkrir bílar við
fjallsræturnar með ferðamenn
en þeir snéru aftur við svo
búið. Var hríðin þá svo dimm
að ganga varð fyrir bílununj
„íslendingurinn Beck
var maður leiksins,"
soyjja skasku blöðin ttm leik Þórólfs.
Beck var tvímælalaust mað-
ur leiksins. Hann skoraði eitt
mark, og lagði tvö. Hann virð-
ist nokkuð svifaseinn, miðað við
skozkan hraða, en það sem
hann #gerir, gerir hann rétt.
Knattleikni hans er fullkomin,
og hvernig hann leikur á and-
stæðinginn er unun á að horfa.“
Þetta segir Sunday Post um
| leik Þórólfs gegn Stirling Al-
I bion á laugardaginn.
Eftir ummælum blaðanna
hefur leikurinn verið lélegur og
illa leikinn.! Sérstaklega var alt
á afturfótunum hjá andstæð-
ingum Þórólfs.
Paisley Daily Express segir:
| St. Mirren sigrar svo sjaldan
þessa dagana, að þegar það skeð
ur, ríkir dýrðlegur fögnuður
! meðal áhangenda þeirra.
En í dag er þessi fögnuður
innantómur. Því ^iað yar mest
| vegna mistaka Stirling Albin
i sem St. Mirren sigraði og varla
} er hægt að segja þessi lið eigi
| heima í fyrstu deild. Aðeins eitt
iaugnablik í leiknum var þess
i virði að gefa því gaum. Það var
mark Þórólfs Beck á 90. min-
útu. Markið var glæsilegt.
Hörkuskot undir þverslá og inn.
Þórólfur var „matchwinner“
í þessum leik. Eftir að hann
hafði skotið hörkufast að mark-
inu- og markmaðurinn misst
knöttinn, fylgdi miðherjinn Ker
rigan eftir og skoraði auðveld-
lega.
Annað markið skoraði Kerri-
gan einnig eftir að Þórólfur
hafði sent hárnákvæma send-
ingu gegnum vörn Albion.“
Eins og sjá má af þessum
blaðaumælum hefur Þórólf-
ur vakið mikla athygli í þess-
um leik, í rauninni verið það
eina eftirtektarverða.
Skotunum finnst hann
nokkuð seinn, en efast ekki
um liæfileika hans. Til gam-
ans má geta þess, að á bak-
síðu (íþróttasíðu) Paisley
Daily Express cr aðeins ein
ljósmynd. Hún er af Þórólfi
Beck.
í fjögurra dálka fyrirsögn
segir: Thor thumbs his first.
Þórólfur Beck.
Hækka verkfræ&ing-
ar kröfur sínar?
Ekkert miðar áfram j verk-
fræðingadeilunni. Viðræðu-
fundur deiluaðila var föstu-
daginn fyrir tæpum hálfum
mánuði og á sáttasemjari sam
kvæmt reglum að boða til ann-
ars fundar ekki síðar en næsta
föstudag.
Það hafði borist út að verk-
fræðingar hyggðust slá af
kröfum sínum til að ná sam-
komulagi. Hinsvegar segja for-
mælendur verkfræðinga að
það komi ekki til mála. Meiri-
hluti verkfræðinga starfi nú á
ráðningarskilmálum þeim, sem
eru jafnháir og kaupkröfur
verkfræðinga. Svo hafi dýrtíð-
in aukist svo að þeirra dómi
að frekar komi til mála að
hJekka kröfurnar heldur en
hitt.