Vísir - 31.10.1961, Blaðsíða 8

Vísir - 31.10.1961, Blaðsíða 8
8 V í S I R Þriðjudagur 31. október 1961 r ,Auðvaldspressan‘ sagði satt Á hverjum degi berast þær fregnir af flokksþingi kommúnistaflokks Sovétríkjanna sem ljósta menn furðu, jafnt á Vesturlöndum sem í Sovét. Nýjustu fregn- irnar um að nú hafi smurlingur Stalins verið fjarlægður frá hlið Lenins sýna hve rótfúið hið kommúniska þjóð- félag er. Helzti leiðtogi Sovétríkjanna í þrjá áratugi er nú uppvís að því orðinn að hafa verið stórglæpa- maður, manndrápari, svikahundur og skemmdarverka- maður. Og vitnið er ekki af lakara taginu. það er Krúsév sjálfur. Þessi tíðindi hljóta að valda íslenzkum kommún- istum þungum sorgum. I áratugi hafa þeir dáðst að Stalin sem hinum mikla foringja ög gengið fram hjá líki hans með lotningu í svipnum á Moskvuferðum sín- um. Nú er það komið upp úr dúrnum að þeir dýrkuðu glæpamann. Það er illt þegar hálfgoðin falla svo ört af stallinum! Er það þá alveg víst að ekki komi nýr for- ingi í stólinn eftir nokkur ár, sem segi að Krúsév hafi verið enn verri gkepamaður en Stalin? Þjóðviljaritstjórunum eru þessi tíðindi þó vafalaust þungbærust. í áratugi hafa þeir sagt ,,auðvalds- pressuna“ Vísi og Morgunblaðið skrökva því af ill- mennskunni einni saman að Stalin hafi verið illræðisi maður. En nú er það komið á daginn að „auovalds- pressan“ hefir haft alveg rétt fyrir sér, en Þjóðviljinn rangt öll þessi ár. Mikil skelfileg vonbrigði fyrir þá góðu skriffinna. Ekki skyldi þó ,,auðvaldspressan“ hafa sagt satt um einhverja fleiri hluti í Sovét en illverk Stalins? Hráefnið fullunnið. Undirbúningur er nú í fullum gangi að stofnun síldarniðurlagningarverksmiðju á Siglufirði. Hér er merk framkvæmd á ferðinni. Við þurfum að gera at- vinnuvegi okkar fjölbreyttari og nýta betur hið góða hráefni, sem við sækjum í greipar Ægis. Enn höfum við gert allt of lítið af því að vinna síldina á sem marg- víslegastan hátt til manneldis og tími er kominn til þess að hér verði breytt um stefnu. Svipaðar framkvæmdir þarf og að hafa um aðrar þær fisktegundir, sem hér veiðast. Breyttur andi. I stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins var hvatt til stofnunar samstarfsnefnda launþega og vinnuveit- enda. Innan skamms mun koma fram frumvarp að nýrri vinnulöggjöf. Væntanlega verða þá gerðar nauð- synlegar breytingar á úreltu fyrirkomulagi. En það þarf meira en lagabókstafinn einan saman. Það þarf að breyta andanum í íslenzkum verkalýðsmálum. — Sættir og samvinna þurfa að koma í stað haturs og kommúnisma. Samstarfsnefndirnar eru hér stórt skref ; rétta átt. ÚiGfrraNDI- BLAÐAÚTGAFAN VISIP Ritstjórar Hersteinn pólssor. Gunnar G Schram Aðstoðurritstíóri Axe» «horsteinsson Fréttastjór ar Sverrir óórðarson ‘>orsteinn ó Thorarensen Ritstjórnarskrifstotur- Laugovegi 27 Auglýsingor og afgreiðslo Ingólfsstrœt’ 3 Ásknftorgjald er krónur 45 Oí ó mánuð' f laúsasölu krónur 3.0y0 einrakifc Simi * >660 ’5 linur’ Félags prentsm*‘ðiar h.t. Steindórsprem h.t. Eddo h.t n von Brentanos. Stjórnarmyndun í Vestur- Þýzkalandi hefur gengið á- kaflega illa. Eins og kunn- ungt er tapaði Kristilegi flokkurinn undir forustu Adenauers þingmeirihluta sínum í kosningunum í sept- ember s.l. En hægri flokkur- inn sem kallar sig Frjálsir demokratar vann nokkurn kosningasigur og fékk odda- stöðu á þingi. Síðan það gerðist hefur staðið í sífelldu stappi milli þessara tveggja flokka. Flokksmenn beggja viður- kenna það að vísu, að sam- steypustjórn þeirra muni verða eina Ieiðin út úr vand- anum, en þarna á milli ríkir slík persónuleg óvild. að í stað þess að flokkarnir ræði efnislega um grundvöll sajrn- steypustjórnar hefur meú-: tími farið í persónulegt na" og níð. Þessar deilur hafa nú á endanum Ieitt til hess að Heinrich von Brentano hefir sagt af sér sem utanríkisráð- herra, ❖ Illindin milli flokkanna eiga rætur sínar að rekja m. a. til fyrri amskipta þeirra. Áður fyrr stóðp . .JKÖaLUfSÁt og Frjálsir dsmffcagtgrfMp-..'. an að stjórn Þýzkalands. En þega Kristilegi flokkurinn náði hreinum meirihluta á þingi, sleit hann stjórnarsam starfinu fyrirvaralaust. Vakti sú ákvörðun þiturleika, sem enn logar meðal Frjálra demokrata. / ( Kosningasigur Frjálsra demokrata i kosningunum um njyndun samsteypu- stjórnar undir forustu Aden- auers gamla, en hann varð að gefa drengskaparheit um að sitja þó ekki lengur en hálft kjörtímabilið. Að öðru leyti sömdu flokksforingj- arnir uppkast að stjórnar- sáttmála, þar sem þeir komu sér saman um skiptingu ráð- af reiði vegna þessa. Þeir héldu margar ræður, þar sem þeir bentu á að með þessu væri verið að svíkja þá mörgu kjósendur, sem greiddu flokknum atkvæði eingöngu vegna þess, að þeir vildu með því losna við Adenauer, Samt tókst á end- anum sem fyrr segir, að fá Heinrich von Brentano. nú var unninn á kostnað Kristilega flokksins og var það viðkvæði þeirra, að Ad- enauer væri orðinn of gamall til að stjórna. Nú yrði að hleypa nýju blóði í stjórnina. Þegar kosningaúrslit voru svo tilkynnt og það kom í Ijós, að Frjálsir demokratar höfðu fengið oddaaðstöðu tilkynnti foringi flokksins Erich Mende, að hann vildi ganga til stjórnarsamstarfs við Kristilega flokkinn. en því aðeins að Adenauer yrði ekki lengur forgætisráð- herra. Varð þessi yfirlýsing upphaf að hinum harð- skeyttu persónulegu deilum. Eftir að foringjar beggja flokka höfðu þjarkað um þetta í hálfan mánuð náðist þó samkomulag milli þeirra herraembætta og stefnu í ýmsum höfuðmálum. Virtist nú sefn samkomulag væri að takast og var nú aðeins eft- ir að staðfesta þetta í báðum þingflokkum. Sýnir það bezt hörkuna og andúðina sem ríkir milli þessara tveggja flokka, að allt ætlaði vitlaust að verða í báðum þingflokkum þegar uppkastið var lagt þar fram. Þessir flokksfundir fóru báð- ir fram í byrjun síðustu viku. Lyktaði þeim svo, að Mende foringja Frjálsra demokrata tókst við illan leik., að fá stjórnarsáttmálann sam- þykktan. En daginn eftir þeg- ar uppkastið var rætt i Kristilega flokknum, var stjórnarsáttmálinn felldur og hefur síðan leikið í lausu lofti í þýzkum stjórnmálum. Það er erfitt að rekja í stuttu máli þær deilur, sem hér hafa staðið og ekki hefur heldur allt í þeim orðið opin- bert. í Frjálsa demokrataflokkn- um var óánægjan mest með það, að Adenauer skyldi á- fram verða forsætisráðherra. Hér skiptist flokkurinn í tvennt, þannig að flokks- menn úr Norður-Þýzkalandi vnáðu ekki®upp í nefið á sér fram samþykki á stjórnar- ' myndun. ♦ Deilurnar urðu ennþá há- værari í Kristilega flokkn- um. Flokksmenn þar eru við- kvæmir af því að þeir hafi misst meirihluta og sárnar það mjög að sjá annars flokksmenn taka við sumu af því valdi og embættum, sem þeir höfðu áður. Gagnrýndu þeir ákaflega stjórnarsátt- málann og sögðu að það væri pngu líkara, en að Frjálsir demókratar hefðu skráð hann og foringjar kristilegra síða.i fallizt á hann. Viður- kenndi Adenauer þetta að nokkru, en sagði að þetta væri aðeins liður í víðtækari samningum. Annar flokkur- inn gæti ekki ginið yfir öllu og þetta hefði verið aðeins einn þátturinn í víðtækri málamiðlun. Nú felldi þingflokkur Kristilegra stjórnarsáttmál- ann og hefur það haft í för með sér að þvi er virðist, að i nýjum samningum hafa þeir orðið að fallast á það, að von Brentano víki úr sæti sem utanríkisráðherra. ♦ Hér er um all flókið og Framh á bls 10

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.