Vísir - 22.11.1961, Blaðsíða 7

Vísir - 22.11.1961, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 22. nóv. 1961 V í S I R 7 .lAVV^W^W.V.W.VVV.VV.VAW.VV.V.VW.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V í Gunnar Thoroddsen f jármálaráðherra: {KJARABÆTUR MED VERÐ-i LÆKKUN OG AKVÆÐISVINNU. Af þeim fjölmörgu atrið- um, sem áhrif hafa á lífskjör manna, verður vikið hér að tveimur, lækkuðu vöruverði og hækkuðum tekjum með vinnuhagræðingu og ákvæð- isvinnu. Lækkun vöruverðs. Á því ári, sem nú er að líða, hafa tveir atburðir gerzt, sem leitt hafa til verð- lækkunar á vissum vörum, . og fela í sér raunhæfar !j kjarabætur, svo langt sem 5j þeir ná. .■ Alþingi afgreiddi í fyrra- I" dag frumvarp um lækkun tolla og verður það til þess, ^ að hátt á annað hundrað Ij vörutegundir lækka í verði l* og margar verulega. Þótt Jj ekki séu það allt brýnar !■ nauösynjar, eru þar þó marg- !■ ar vörur, sem flestar fjölskyldur í landinu nota. ;■ Að því er snertir þann varn- ;■ ing, sem tollafrumvarpið ;■ nær til, er því um kjarabót l* að ræða fyrir fólkið. Kostn- ;■ aðinn við þessa kjarabót á ;■ ekki að taka af almenningi né opinberu fé, heldur af ;■ ólöglegum gróða lögbrjót- ;« anna. j" Frjáls innflutningur !> Iækkar vöruverð. Frjálsari innflutningur á ýmsum vörum hefir einnig orðið til þess að lækka verð og bæta þannig kjörin. Um áramótin síðustu var ýmist gefinn frjáls eða rýmk- aður innflutningur á nokkr- um vörum, sem áður mátti aðeins kaupa frá svonefnd- um jafnkeypislöndum, aðal- lega Austur-Evrópu. Sumar þessar vörur lækkuðu um þriðjung, þegar samkeppnin kom til sögunnar með frjáls- um innflutningi frá Vestur- löndum. Þessi lækkun kem- ur fyrst og fremst kaupend- um, þ. e. almenningi, til góða. Ákvæðisvinna. Víða er nú vaxandi áhugi fyrir hagnýtum vinnurann- sóknum og vinnuhagræð- ingu, til þess að ná betri árangri og auknum afköst- um. Beinist þá hugur manna mjög að ákvæðisvinnu, sem oft getur haft í för með sér samtímis hærri tekjur starfs- manns fyrir jafnlangan vinnutíma, og bætta afkomu fyrirtækis. í ýmsum iðngreinum hér á landi er ákvæðisvinna not- uð með góðum árartgri. Alþingi samþykkti í fyrra- vetur, að tillögu Eggerts Þor- steinssonar, að láta fram- kvæma rannsókn á hag- kvæmni aukinnar ákvæðis- vinnu hér á landi. Var rann- sókn þessi falin Iðnaðarmála- stofnun fslands, sem þegar hefir hafizt handa um vinnu- rannsóknir og þær athug- anir aðrar, sem ákvæðisvinna grundvallast á. Hefir fyrsta námskeið af þremur ver- ið haldig með yfir 20 þátt- takendum frá ýmsum sam- tökum, fyrirtækjum og at- vinnugreinum. Leitazt er við að notfæra sér reynslu annarra þjóða í þessum efn- um og millipkjastofnana. í grannlöndum hafa sambönd vinnuveitenda og verka- lýðsfélaga komið sér saman um reglur um framkvæmd vinnurannsókna og útreikn- ing ákvæðisvinnu. Eru þær reglur, sem um þetta gilda í Noregi, birtar í ár í 4. hefti Iðnaðarmála, tíma- rits Iðnaðarmálastofnunar íslands. Stofnunin mun inn- an skamms skila álitsgerð um hagkvæmni aukinnar á- kvæðisvinnti, og er þess að vænta, að upp úr því komizt fullur skriður á framkvæmd þessa mikla þjóðþrifamáls, sem á eftir að hafa holl áhrif á afkomu þjóðarinnar lífskjör. og mwmWMV.V/AWAWW.WAVMASWW.'.mVA'JWmWiW.WV* Alit komið íram á hag togaranna. 1 BLAÐ sjávarútvegsmálaráð- herra, Alþýðublaðið, skýrði frá þvi nýlega, að nefnd sú, sem Emil Jónsson ráðherra skipaði í.fyrravor til að kanna hag og aðstöðu togaranna, hafi nú skil- að störfum. í skýrslunni kemur það fram, að alþjóð var kunn- Ugt áður en nefndin tók til starfa, að togararnir eiga í hin- um mestu erfiðleikum og tog- araútgerðin rekin með stór- felldum halla. Svavar Pálsson var meðal nefndarmanna og átti Vísir stutt símtal við hann um þetta. Sagði Svavar, að hann sem nefndarmaður kysi að ræða sem minnst um skýrslu þessa. Það væri hinsvegar ekkert laun ungamál, að aflatap togaranna stafar af því að stórum veiði- svæðum milli 4—12 mílna svæð isins hafi verið lokað. Spurn- ingin er hvort ekki sé eðlilegt að bæta togurunum þetta upp, að svo miklu leyti sem leiða má sönnur að tapi þeirra vegna þessara ráðstafana. Og þá er spurningin á hvern hátt það skuli gert. í nefndinni voru auk Svav- ars þeir Kristinn Gunnarsson forstjóri Bæjarútgerðarinnar í Hafnarfirði og Gunnlaugur Björnsson i Útvegsbankanum, en hann tók sæti Davíðs Ólafs- sonar fiskimálastjóra, sem ekki gat starfað í nefndinni vegna veikinda. Plaststóllinn bognar ekki né brestur. í miðju Þorst. Bjarnason og norsku fulltrúarnir frá Plastmöbler standa á örmunum. Víöir byrjar framleiðslu bólsturhúsgagna úr plasti. Trésmiðjan Víðir er að hefja framleiðslu á bólstruðum hús- gögnum, sem eru að mestu búin til úr plasti, sterkari, léttari og 25% ódýrari en hliðstæð hús- gögn úr venjulegu efni. Aðalefnið 1 þessi húsgögn fær Víðir frá fyrirtækinu Plast- möbler í Kristiansand í Noregi og sömuleiðis mótin til að steypa húsgögnin í. Þegar er Þi-ír ökumenn voru hand- teknir undir stýri um síðustu helgi. Einn þeirra hafði lent í á- rekstri á gatnamótum Kalk- ofnsvegar og Tryggvagötu á laugardaginn, en ekki valdið meiðslum að talið var. Þá var réttindalaus ökumaður á bifhjóli tekinn. Aflinn nær 200 jiús. tn. farið að framleiða fáeinar gerð- ir stóla og sóffa. Venjulegur armstóll er svo léttur, að hann vegur ekki nema 9 kg. og það sterkur, að honum verður ekki meint af að vera fleygt til jarð- ar ofan af margra hæða húsi. Innan skamms fær Víðir fleiri mót, og þess verður ekki langt að bíða, að um þó nokkrar gerð- ir verði að velja, bæði af stólum og sóffum. SAMKVÆMT uppl. frá Fiskifélagi íslands höfðu á laugardagskvöldið borizt á land til söltunar, frystingai', bræðslu og annarar verk- unar alls 172.516 tunnur síldar. Var Fiskifélaginu þá kunnugt um 89 skip, sem einhvern afla höfðu þá feng- ið, en 57 þeirra voru með 1000 tunnur eða meira. Víðir II er með hæstan afla, 7572 tunnur. Síðan koma þessir bátar; Anna, Slaðaijósmyndari siasast Siglufirði, 4102 tn. Bergvík, Keflavík, 4159, Björn Jónsr j GÍSLI Gestsson hinn ágæti son RE, 5547, Haraldur, lljósmyndari Alþýðublaðsins, Akranesi, 4783, Höfrungur j hefur enn orðið fyrir meiðslum, II, Akranesi, 5775, Ingiberg jvið ljósmyndarastarf sitt. Um Ólafsson KE, 4802, Pétur Sig- j daginn hafði hann verið sendur urðsson RE, 4581, Sigrún, |upp að Árbæ. Féll hann þá á Akranesi, 5794, Sigurður, I annað knéð, en hélt sig ekki Akranesi 4047, Skírnir, Akra- hafa meiðzt að neinu ráði. í nesi, 4228 og Steinunn, Ól- afsvík, 4389. Síðan fyrir helgi hefir morgun fór Gísli til röntgen- myndunar en í ljós mun hafa komið að brjósk hefur losnað í verið svo stormasamt veður knjáliðnum. Getur svo farið að hér við Faxaflóa, að bátarnir hann þurfi að ganga undir hafa aldrei komizt á miðin. iuppskurð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.