Tölvumál - 01.03.1982, Side 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag (slands
Pósthólf 681,121 Reykjavík Höfundum efnis áskilin öll réttindi
'nen ' Óttar Kjartansson, ábm. 3. tölublað, 7. árgangur
Grétar Snær Hjartarson
Sigurjón Pétursson Mars 1982
AÐALFUNDUR 1982
Aðalfundur Skýrslutæknifélags íslands veróur haldinn i
Norræna húsinu þriójudaginn 23. mars 1982, kl. 14.30.
Fundarstjóri veróur Klemens Tryggvason, hagstofustjóri.
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar.
2. Féhirðir leggur fram endurskoóaða reikninga.
3. Stjórnarkjör: Úr stjórn ganga varaformaður,
féhirðir og skjalavörður, ásamt varamönnum.
4. Kjör tveggja endurskoðenda.
5. Ákveóin félagsgjöld.
6. Önnur mál, sem upp kunna að verða borin.
Samkvæmt félagssamþykkt þurfa tillögur um stjórnarkjör
aö hafa borist stjórninni eigi síðar en þrem virkum
dögum fyrir aóalfund.
Stjórnin.
FÉLAGSFUNDUR
Að loknum aðalfundarstörfum hinn 23. mars 1982 verður settur
félagsfundur. Á fundinum verður kynning á hinum nýju lögum
um tölvuþjónustu og fleira. Tölvunefnd mætir á fundinn og
formaður hennar, Benedikt Sigurjónsson, fyrrv. hæstaréttar-
dómari gerir grein fyrir lögunum og starfi tölvunefndar,
en síóan verða umræður og fyrirspurnir.
Að venju verður boóió upp á kaffisopa í fundarhléi.
Stjórnin