Tölvumál - 01.06.1982, Page 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag íslands
Pósthólf 681,121 Reykjavík Höfundum efnis áskilin öll réttindi
5. tölublað, 7. árgangur
Júní 1982
Ritnefnd:
óttar Kjartansson, ábm.
Grétar Snær Hjartarson
Sigurjón Pétursson
Matthias Á. Mathiesen:
ÁVARP
við setningu ráðstefnunnar "Datadagur '82", sem haldin
var í Kristalssal HÓtels Loftleiða, 23. apríl 1982:
Þaó er sama hvar litast er um í samfélaginu í dag, alls
staóar má sjá ótrúlegar tæknilegar framfarir.
Hér skiptir ekki máli hvort litið er til atvinnulífsins,
menningarlifsins eða visindanna. Ótrúlegir hlutir eru
aö gerast og ótrúlegra upplýsinga er hægt að afla sér með
þeirri örtölvutækni, sem svo hratt hefur þróast s.l. ára-
tugi.
Stjórnendur, hvar sem þeir eru staddir i þjóðfélaginu,
standa frammi fyrir miklu meiri upplýsingum en áöur var.
Það er þvi oróió verkefni fyrir þá, sem sérmenntaóir eru
á þessu sviói, aó virkja þá þekkingu sem þannig hefur
skapast og móta þá stefnu, sem fara ber varðandi til-
flutning slikra upplýsinga, þannig að þaó verði manninum
sjálfum og samfélaginu til gagns.
Vissulega eru miklir möguleikar á misnotkun þessara upp-
lýsinga, bæði er varðar framsetningu svo og ákvarðanatöku.
Ég er þeirrar skoðunar að það lýðræðisþjóðskipulag, sem
vió búum við, tryggi i reynd að misnotkun geti aldrei
gengið til lengdar. Aðalatriðið er að þeir, sem eiga að
nota og vinna með upplýsingar, séu sér þess meóvitandi
hver ábyrgð þeirra er og að um þessa starfsemi séu settar
reglur.
Þaó er mjög þýóingarmikið að norrænir tölvusérfræðingar
hafi meó sér náið samstarf eins og N.D.U. og skiptist á
þekkingu á þessu sviði, og samraami störf sín. Þá hefur
Noröurlandaráð með samþykkt sinni viljaó leggja áherslu
á samstarf á þessu sviði, en samþykktin leiddi til skipunar
tölvunefndar, sem nú starfar undir forsæti fyrrverandi ráö-
herra, Helge Seip frá Noregi, en fyrri hluti skýrslu
þeirrar nefndar kom út á s.l. ári. Þá er gert ráð fyrir
ráóstefnu á vegum nefndarinnar í Kaupmannahöfn í júni n.k.