Tölvumál - 01.06.1982, Page 13

Tölvumál - 01.06.1982, Page 13
TÖLVUMÁL 13 FUNDUR NORRÆNNA TÖLVUENDURSKOÐENDA Fundur tölvuendurskoóenda hjá ríkisendurskoóunum Noróurlanda var haldinn hér á landi i lok janúar á þessu ári. Slikir fundir hafa um nokkurt skeió verió haldnir annað hvert ár, til skiptis á hinum Norðurlöndunum. Fundinn sóttu'alls 17 aðilar, sem aó einhverju leyti vinna við tölvuendprsko.óun, eða tengjast henni. Frá Danmörku komu fjórir, frá Finnlandi tveir, frá tslandi fjórir, frá Noregi þrir og frá Sviþjóó fjórir. Þetta var þriggja daga fundur, sem haldinn var i húsakynnum fjármálaráóuneytisins að Borgartúni 6 i Reykjavik. Á fyrsta degi var tekin fyrir uppbygging tölvuendurskoðunar og drepið á raunhæf verkefni. Einnig var seinni hluta dagsins farið i heimsókn til SKÝRR. Stofnunin var skoðuð, hlýtt á greinar- geró um starfsemi hennar og þáðar veitingar. Á öðrum og þriója degi voru erindi og umræður um endur- skoðun og aukna þekkingu á gagnavinnslu, hlutverk endur- skoðanda i gerð vinnslukerfa og viðhaldi kerfa. Umræóur voru einnig um öryggi vél- og hugbúnaðar. Jafnframt reyndu menn einnig aó gera grein fyrir stöðu tölvuendurskoóunar, hver i sinu heimalandi. Geta ber heimsóknar i fiskvinnslustöð tsbjarnarins hf i Örfirisey, en þar hefur sem kunnugt er vinnslustýring og framleióslueftirlit verið tölvuvætt. Augljóst var, að hinum norrænu gestum þótti heimsóknin i stöðina hin fróð- legasta. t fundarlok voru menn á einu máli um aó fundurinn hefði heppnast vel i alla staði og stuðlað að auknum Skilningi, samræmingu og samvinnu á þessum vettvangi. Kristján Einarsson NÁMSVERÐLAUN SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGSINS Stjórn Skýrslutæknifélagsins ákvaö á fundi sinum hinn 19. mars sl. að veita nokkrum nemendum, sem skilað hafa góóum árangri i námi á sviði tölvunarfræði, gagnavinnslu eða skyldra greina, námsverðlaun. Verólaunin verða í formi viðurkenningarskjals og valinnar bókar. Ákveóið var, að veita verðlaunin i fyrsta skipti nú á þessu vori og þá einum nemanda úr hverjum hinna tiu skóla, sem tóku þátt i félagsfundinum 15. júni 1981, þar sem fjallað var um kennslu i framangreindum,námsgreinum. Skólastjórum (rektorum, skólameisturum) skólanna, sem um ræðir, var siðan ritað bréf, þar sem skýrt var frá þessari áformuóu verðlaunaveitingu og þeir jafnframt hver um sig beðnir að tilnefna einn nemanda, sem þeir telja þess veróan aó hljóta framangreind verðlaun. Gert er ráð fyrir að afhenda verólaunin nú i júnimánuði, og verður nánar greint frá þvi i næstu Tölvumálum.

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.