Vísir - 04.01.1962, Qupperneq 1
í
VM §31 »'iM
52. árg^JFimmtudagur 4. janúar 1952..— 3. tbl.
RússMskt lepp-
ríki í Ameríku.
Bandaríkjastjórn hefur gef)
ið lít nýja hvíta bók varð-
andi Kúbu-málið í tilefni
þess, að þrjú ár eru liðin
síðan Castro tók við völdum
með byltingu.
í bókinni segir, að Rússar
hafi nú tögl og hagldir á
Kúbu. Séu ódulbú.nir komm-
únistar við völd í eyríki
þessu. Þá er rætt um þá
miklu áherzlu, sem Rússar
hafa lagt á það, að ná Kúbu
á sitt vald og talað um þann
mikla fjáraustur og vígbún-
að . sem þeir hafa fram-
kvæmt.
Á Kúbu er nú annar
stærsti landher Ameríku-
ríkis segir í skýrslunni. Til
hans hafa Rússar varið 60
milljónum dollara í hergögn.
Hin auknu viðskipti Kúbu
við járntjaldslöndin eru þess
órækt vitni hve komið
er. Áður en Castro náði völd-
um voru 2% af viðskiptum
Kúbu við kommúnistaiúki,
en nú er lilutfallstalan kom-
in upp í 80%.
„Ginnunga-
gap"
I gegnum þetta „Ginn
ungagap“ réttu menn yfir
hafnir sínar á skótaskemmt
uninni um áramótin.
(Sjá Myndsjá á bls. 3)
Rætt um endurskipu-
Bretar og Bandaríkja-
menn ætla að hefja í næstu
viku sameiginlegar viðræð-
ur um það hvernig bæta
megi starfsemi Sameinuðu
þjóðanna, en leiðtogar
beggja þessara þjóða hafa
nú hinar mestu áhyggjur
af þeirri þróun sem er að
verða í samtökunum, sér-
staklega eftir viðhorfin til
Goa-málsins.
í Washington.
Viðræðurnar fara fram í
Washington í næstu viku og
verður skipuð sameiginleg
nefnd í málinu. Aðalfulltrúi
Bandaríkjanna í nefndinni
verður Adlai Stevenson, en
fulltrúar Breta þeir Ormsby
Flugeldar ailskonar
fyrir hálfa milljón.
Eftir því sem næst verð-
ur komist var tiltölulega
minna um flugeldasölu í
Reykjavík en t.d. um síð-
ustu áramót. Samt er ekki
hægt að segja annað en sal-
an hafi verið drjúg.
Ef reynt er að gera sér
grein fyrir því hvað miklir
peningar sprungu í loftinu á
gamlárskvöld verður talan
eitthvað um 400—500 þús-
und krónur, sem er dálag-
legur skildingur.
En eins og allir vita þá
var veðrið ekki gott á
gamlárskvöld, lágskýjað og
þokulegt í lofti. Er vitað um
ýmsa, sem geymdu sér að
senda sína flugelda á loft,
þegar þeir sáu hvernig þeir
fengu ekki njóta sín eins og
vera bar.
Gore sendiherra í Washington
og Patrick Dean fulltrúi hjá
SÞ.
Áhugaleysi.
í síðustu viku gagnrýndi
Home lávarður utanríkisráð-
herra Breta meðferð SÞ á Goa-
málinu, þar sem um var að
ræða skýlausa hernaðarárás,
en lítill áhugi var meðal full-
trúa Afríku og Asíu-ríkja að
beita valdi SÞ til að stöðva
árásina. Með því telja fulltrúar
Breta og Bandaríkjanna að
samtökin hafi beðið mikinn
hnekki í því hlutverki sem er
mikilvægast fyrir þau, að koma
í veg fyrir. hernaðarofbeldi.
Fjármálin.
Jafnframt viðræðum um
þetta munu fulltrúar Breta og
Bandaríkjanna ræða hin al-
varlegu fjármál samtakanna,
en SÞ skulda nú milljónir doll-
ara og hefur meirihluti þátt-
tökuríkjanna svikizt um að
greiða lögboðin framlög til
stofnunarinnar.
Nýir lögregkivarðstjórar.
SKIPAÐIR hafa verið tveir
nýir varðstjórar í rannsóknar-
lögreglunni. Annar þeirra er
Kristmundur Sigurðsson, sem
verið hefir um ára bil rannsókn-
arlögreglumaður í þeirri deild
sem fjallar um umferðarslys
og bílaárekstra og verður Krist-
mundur við þá deild áfram.
Hinn rannsóknarlögregluvarð-
stjórinn er Jón Halldórsson,
sem einnig hefir verið um ára-
bil við rannskóknarlögregluna.
Þá mun Ólafur Guðmundsson
frá Laugarvatni taka við varð-
stjórastöðu í S.R.D., slysarann-
sóknardeild götulögreglunnar,
sem Guðmundur Hermannsson
yfirforstjóri var fyrir áður.
Ekki er Ólafur þó tekinn til
starfa í þessari nýju stöðu sinni.
Hann hefir sem. kunnugt er i
lengi starfað í götulögreglunni.