Vísir - 04.01.1962, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 4. janúar 1962
V I S 1 R
Eftir því sem Myndsjáin
bezt veit, hefir þjóðlegasti
nýársfagnaðurinn um þessi
áramót verið haldinn í
Skátaheimilinu við Snorra-
braut. — Skátasveitin Vík-
ingar stóð fyrir gleðinni á
gamlárskvöld fyrir hönd
Skátafélags Reykjavíkur og
lögðu strákarnir sig alla
fram um að skreyta húsið á
þjóðlegan hátt. Og ekki stóð
á gestunum. Hátt á þriðja
hundrað skáta skemmti
sér þar fram á nýársmorg-
un, kvaddi gamla árið og
heilsaði nýju. Ekki gátum
við komið því við að taka
þátt í fagnaðinum, en við
fengum að líta þarna inn í
gær, og skátarnir, sem önn-
uðust allt tilstandið, ærsluð-
ust þar enn og reyndu að
cndurlifa fagnaðinn, komu
sér ekki að því alveg strax
að rífa niður allan „mask-
ínu“-pappírinn, sem í liönd-
um lielztu listamannanna í
hópnum hafði breytzt í hin
mögnuðustu listaverk og
prýddi alla veggi og loft. Og
strákunum var ekki láandi,
því að við ætluðum ekki að
geta slitið okkur burt frá
þessum skemmtilegu mynd-
Skessur, draugar
og skátafól.
um, sem voru bráðlifandi
þjóðsögur og taumlaust hug-
myndaflug. Þarna gengum
við úr einni þjóðsögustof-
unni í aðra. Eiginlega vant-
aði ekki annað en Sobegga
afa Litlu Heggu til að þetta
væri fullkomnað. Mest bar
á tröllamyndum á veggjun-
um, og voru skessur ekki
allar par smáfríðar, svo sem
hér má sjá á einni mynd-
inni, sem prýðir stærsta
vegginn, en liinn mennski
maður milli tánna á henni
er einn skemmtiforstöðu-
manna, Pétur Sveinbjarnar-
son.
Á hinni myndinni getur
að líta skóburstarakrók þar 1
sem fægð voru fóthylki, og
var sú sýn ekki eins hroll-
vekjandi. En mest bót var í
máli, að í næstu salarkynn-
um, hressingarskálanum, þar
sem öltunna mikil lá á stokk-
um, var öllum föl hvít-
ölskrús á fimmkall, brauð-
sneið á fimmkall og pulsa á
sexkall, og þetta var nóg til
að taka mesta hrollinn úr
fólkinu. Síðan var nýja ár-
inu fagnað með ýmsu móti
öðru. Allir fóru út og heils-
uðu því á miðnæti, haldið
var böggla uppboð, tízku-
sýning, spilað og dans stig-
inn fram yfir óttu.
Listamenn í hópi víking-
anna, sem skreyttu veggina,
heita Örlygur Richter og
Vilhjálmur Kjartansson.