Vísir - 02.05.1962, Síða 3

Vísir - 02.05.1962, Síða 3
Rfro^TEuaSgurinn 2. maí 1962. VISIR 3 Myndsjá Vísis birtir í dag nokkrar myndir, sem ljósmyndari blaðsins Ingimundur Magnússon tók á badmintonmótinu. Sýna þær glöggt að keppnin var hörð á köflum Efst til vinstri er mynd af Jóni Árn'asyni er varð íslands- meistari í einliðaleik karla. Sést hann hér í úrslitaleiknum gegn Garðari Alfonssyni sem aftur er á myndinni í hægra horni neðan á síðunnL Jón er að skjóta bolt- anum, en Garðar að búa sig til að taka við sendingunni. í efra horni hægra megin eru dömumar tvær sem sigruðu í tvíliðaleik kvenna, Halldóra Thoroddsen og Lovísa Sigurðar- dóttir, báðar vanar keppniskon- ur. Vakti samstarf þeirra á veil- inum mikla athygli. I neðra horni vinstra megin er svo mynd af hinum gömlu kempum Einari Jónssyni og Wagner Walbom. Yngri menn- irnir ætluðu nú að steypa þeim af veldisstóli, þar sem þeir hugðu þá vera orðna gamla og stirða. Voru það Lárus Guð- mundsson og Ragnar Thorsteins son sem unnu eina Iotu gegn þeim með 15:1 og þóttust nú öruggir um sigurvinning. En gömlu kapparnir létu sér þetta ekki fyrir brjósti brenna, held- ur tóku sig á og unnu báðar hinar loturnar og þar með meist aratitil. MYNDSJ Vinsœl íþrótt Eins og getið hefur verið um í fréttum fór lslandsmótið í Badminton fram um s. I. helgi. Badminton er skemmtileg og vinsæl íþrótt hér í Reykjavík. Er hún iðkuð af fjölda fólks yfir veturinn sem telur sig hafa þörf fyrir mikla hreyf- ingu. En þó boltinn sé fjaðraður til þess að draga úr hraða getur keppnin orðið svo hörð, að svitinn bogi af keppendum. Badminton hefur verið „þjóðaríþrótt“ f Stykkishólmi og hafa þeir unnið mikla sigra á undanfömum árum. Að þessu sinni var það leitt, að Hólmarar treystu sér ekki að koma suður að taka þátt í mótinu, en ýmsir gamalkunnir reykvískir. meistarar, svo sem Walbom og Einar Jónsson settu þó svip sinn á mótið. Enn var þar skarð fyrir skildi, að Islandsmeist- arinn í einliðaleik frá því í fyrra, Óskar Guðmundsson hafði meiðzt svo að hann gat ekki varið titil sinn. En hann var þó viðstaddur mótið og gegndi hlutverki yfirdómara. Síðasta og minnsta inyndin er af Óskari Guðmundssyni á dóm arastóinum. Honum þótti vfst leitt að geta ekki vegna meiðsla verið á sjálfu gólfinu sem keppnismaður. Kl II

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.