Vísir - 03.05.1962, Qupperneq 3
Fimmtudagur 3. maí 1962.
VISIR
3
>lllipi æ-a
""n •• v í'"7;
>
*
iilll
MYNDSJÁ
^íSx-XvíííX&vX'
Myndsjáin birtir í dag nokkr-
ar myndir úr Hafnarbúðum hinu
nýja og myndarlega húsi verka
manna og sjómanna við Rcykja-
víkurhöfn, en það var opnað í
fyrradag af Geir Hallgrímssyni
borgarstjóra.
Hafnarbúðir koma í staðinn
fyrir gamla verkamannaskýlið i
Tryggvagötu, sem nú verður rif
ið. Er mikill munur á þeirri að-
stöðu sem verkamenn fá í hinu
nýja húsi sínu.
★
Nýja húsið er þrjár hæðir. Á
neðstu hæðinni er stór og vist-
Ieg biðstofa, þar sem þeir verka
menn munu koma til kaffi-
drykkju, sem hafa kaffi sitt
með sér. Á þeirri hæð verður
einnig ráðningarskrifstofa
Reykj avíkurborgar.
Á annarri hæð cr stór veit-
ingastofa og á þriðju hæðinni
sjómannastofa með 21 gisti-
rúmi og visticgri sctustofu.
★
Pað sem vekur séstaka at-
hygli er hve Hafnarbúðir eru
vel staðsettar og setur það ekki
litinn svip t.d. á vcitingastof-
una og gistiherbcrgin á efstu
hæð, hvað útsýni er þar fallegt
yfir höfnina og sundin.
Ljósmyndari Vísis I. M. tók
myndirnar sem hér birtast.
Hafnarbúðir, hér sést sú hlið hússins, sem út að höfninni snýr.
Nokkrir hafnarverkamenn drekka kaffi úr hitabrúsum í
hæð Hafnarbúða.
hinum vistlega biðsal
á neðstu
Myndina tók ljósmyndari Vísis í gær í hinni björtu og rúmgóðu veitingastofu á 2. hæð
Hafnarbúða. Hefur veitingastofan verið mjög fjölsótt síðan húsið var opnað.
!.»'»WK.SSW5l‘»
Hinar
vistlegu
Hafnarbúðir