Vísir - 24.05.1962, Qupperneq 2
VISIR
Fimmtudagur 24. maí 1962.
n~C^ol,IR
tejj
Myndin var tekin á Sundmeistaramótinu í Hveragerði og sýnir tvo kappa taka við verð-
laununum fyrir sundknattleik, en þeir eru Einar H. Hjartarson, sem er þekktur knatt-
spymudómari og Sigurjón Guðjónsson, en Sigurjón mun hafa orðið meistari í alls 20 skipti
með Ármanni, en Einar í 18 skipti
Það er Erlingur Pálsson, formaður Sundsambands íslands, sem er að afhenda verðiaunin.
Vilhjálmur hyggst
kenna í átthögum
Eins og mönnum ,er kunnugt
starfræktu þeir Vilhjálmur Ein-
arsson og Höskuldur Goði Karls-
son í fyrrasumar íþróttaskóla fyrir
börn í hinum vistlegu húsakynnum
Reykjadals í Mosfellssveit.
Þeir Vilhjálmur hyggjast opna
skólann á ný í sumar, eftir að
nauðsynlegar breytingar hafa far-
ið þar fram til að hægt sé að
koma þar við heimavist. Höskuld-
ur mun nú snúa sér að breytingum
á skólanum, en á meðan skreppur
Vilhjáimur heim í átthaga sína,
austur á fjörðum og í samráði við
UÍA (Ungmenna- og íþróttasam-
band Austurlands) hyggst hann
halda námskeið að Eiðum dagana
Völlurinn
er góður
Baldur Jónsson, vallarstjóri, tjáði
okkur í gærkvöldi, að Laugardals-
völlurinn kæmi vel undan vetrar
frostunum. Hann væri að vísu ekki
eins góður og hann gæti verið bezt-
ur um þetta Ieyti, en góður samt.
Mikil spretta hefði verið undan-
farna viku og ekki hægt að segja
annað en vallarskilyrðin til knatt-
spyrnu i kvöld væru góð.
í fyrra var fyrsti leikur sumars-
ins á Laugardalsvelli þann 28. maí,
en leikir þar hafa aldrei byrjað jafn
snemma og nú.
4.-10. júni fyrir drengi á aidrinum
10-16 ára.
Takmörk verða þó sett fyrir
fjölda þátttakenda á námskeiðinu
og verður tekið á móti 40-50 þátt-
takendum.
Með Vilhjálmi kennir á nám-
skeiðinu Gunnar Guttormsson, far-
kennari UlA, en hluta af nám-
skeiðinu mun Ungverjinn Simoni
Y. Gabor kenna, en hann er þjálf-
ari hjá I'R, svo sem kunnugt er.
Knattspyrnumenn minnast 50
ára afmælis ÍSÍ í kvöld með leik
á Laugardalsvelli kl. 8.30 og er
þetta fyrsti leikurinn, sem fram
fer þar í sumar. Það eru lið Reykja
víkur og utanbæjarmanna, sem
eigast við. Á pappírnum líta bæði
liðin mjög skemmtilega út og má
búast við skemmtilegum leik. —
Margir utanbæjarmanna eru þó
óráðin gáta, þar eð þeir hafa ekki
komið fyrir sjónir áhorfenda hér
í Reykjavík fyrr á þessu vori.
Þvílík framlína
Homrin-Déle-di Stefnno-Puskns Gento
Real Madrid hyggst nú aldeilis
hreinsa til eftir tapið í úrslitum
Evrópubikarsins gegn Benfica á
dögunum.
Leikur þeirra nú er: Ný og- betri
framlína, sem slær út allt sem
menn hafa upphugsað hvað þá
framkvæmt í samtengingum af
þessu tagi. Svíinn Kurt Hamrin,
undramaðurinn Péle, Di Stefanó
heldur stöðunni og Puskas sömu-
leiðis, en á v. kantinn kemur hinn
eldingarhraði Gento.
Real reiknar með að verja til
þessara breytinga 70 milljónum kr.
„Við breytum frá hinni kröftugu
framlínu okkar yfir í enn betur
leikandi og ,taktfska“ framlinu.
Knattspyrnu, sem við teljum
skemmtilegri og „trekki" fieiri til
að komá á völlinn".
373 klukkutímar á
knattspyrnuveili
Knattspyrnuráð Reykjavíkur hefur
sent frá sér smábækling „Knatt-
spyrnumótin sumarið 1962“ ,en
bæklingur með sama sniði hefur
verið gefinn út undanfarin ár og
orðið vinsæll meðal áhugafólks um
knattspyrnu, enda mikinn fróðleik
þar að finna.
Knattspyrna í
373 klukkustundir.
Eftir að hafa flett bæklingnum
í gegn tjáði tölufræðingur vor okk-
ur að eftir öllum sólarmerkjum
yrðu leikirnir í sumar ekki færri
en 380 talsins. Meistaraflokksleik-
ir munu þar flestir eða 141 leikur,
en 4. flokks leikir næstir eða 78
talsins. Sagði tölfræðingurinn að
meistaraflokksmenn hiypu eftir
„tuðrunni" í samtals 141 klst., en
4. flokkur 65 tíma, en 1. flokkur
legði minnst af mörkum eða 21
tíma yfir sumarið í þeim þrem
mótum ,sem fyrir flokkinn eru
haldin. Að lokum sagði þessi sami
maður okkur að samtals tækju all-
ir knattspyrnuleikir sumarsins a.
m. k. 373 klst., sem jafngilti því
að leika knattspyrnu í einni strik-
lotu, 8 tíma á dag í 47 daga-
í þrótta ná mskeið
hefjast á föstudag
Eins og undanfarandi voru verð-
ur nú efnt til námskeiða fyrir börn
á leiksvæðum, íþróttasvæðum og
opnum svæðum víðs vegar um bæ-
inn. Hefjast námskeiðin föstudag-
inn 25. maí, og verða þrjá daga
í viku á hverju svæði. Kennarar
verða íþróttakennarar.
Námskeiðin verða á þessum
stöðum: Mánudaga, miðvikudaga,
föstudaga á Víkingssvæði, Vals-
svæði, KR-svæði, Ármannssvæði
og Laugalækjartúni.
Þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga á Skipasundstúni, Þvotta-
laugarbletti, L-’ndakotstúni (fyrir
hádegi, Vesturvelli (eftir hádegi) og
Álfheimatúni.
Fyrir hádegi verður tekið við
börnum á aldrinum 5 — 9 ára og
starfað kl. 9:30-11:30. Eftir há-
degi verða börn á aldrinum 10 —
12 ára og starfað kl. 2 — 4. Nám-
skeiðin eru opin fyrir drengi og
stúlkur, og meðal kennaranna
verða nokkrar konur.
Námskeiðin verða starfrækt út
júní og verður námsskeiðsgjald kr.
15.00.
Að þessari starfsemi standa
Æskulýðsráð, I'þróttavellirnir, Leik
vallanefnd og íþróttabandalag
Reykjavíkur.
1912
í. S. í.
1962
í KVÖLD KL. 20,30
Reykjavík — Utanbæjarmenn
Á LAUGARDALSVELLINUM
Dómari: Grétar Norðfjörð
FYRSTI LEIKURINN Á GRASI
Aðgangur: Börn kr. 5,00 — Stæði kr. 25,00 — Stúka kr. 35,00. — Komið tímanlega — Forðist þrengsli.
AFMÆLISNEFNDIN