Vísir - 24.05.1962, Síða 16
Fimmtudagur 24. mgí 1962.
Handbendi
Viðbrögð kommúnista við
hinni óhugnanlegu njósnatil-
raun Tékka hér á landi hafa
vakið mikil athygli. Blaðið hef-
ur ekki með einu orði áfellzt
hinn tékkneska flugumann fyrir
að ætla að fá íslending til að
fremja landráð. Þvert á móti
hefur það borið blak af njósnar
anum og reynt að læða þeirri
ósönnu staðhæfingu inn að
njósnablýanturinn sé af gerð
sem fáist hér. Það er eftir-
tektarvert að kommúnistar skuli
sýna borgarbúum þannig sitt
rétta innræti, svo skömmu fyrir
borgarstjórnarkosningarnar. —
Þeir geta aldrei dulið það, að
þeir eru handbendi hins alþjóð-
lega kommúnisma.
Mikið framfaraskeið
| Eftir útvarpsumræðunum í gær og fyrradag að
dæma hafa vinstri menn í Reykjavík aldrei verið
sundraðri. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins eyddu
jafnvel meiri tíma í að ráðast á hvern annan heldur
en að gagnrýna verk Sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
og þótti þeim þó ekki vanþörf á því heldur, eftir því
sem þeir sögðu.
lllindin og heiftin meðal and-
stæðinga Sjálfstæðisflokksins inn-
byrðis var stundum svo mikil að
þeir gleymdu alveg að þeir voru
að deila um borgarmálefnin, hags-
muni borgaranna, og urðu ræður
Ólafur Thors
þeirra þá að eins konar innanfélags
karpi, senniloga eitthvað í líkingu
við það sem stendur hvað hæst í
félögum kommúnista um allt Iand.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
benti á þetta í ræðu sinni er hann
Guðrún Erlendsdóttir
sagði: Það er ekki nóg að vinstri
samtökin 7 bjóði fram 5 framboðs-
Iista við kosningarnar heldur er
hátfðlega búið að Iýsa því ýfir að
nú sé búið að stofna áttundu sam-
tök vinstri manna.
UMMÆLI BORGARSTJÓRA
í ræðu sinni, sem var síðasta
ræðan í umræðunum ræddi borgar-
stjórinn um gatnagerðarmálin.
Hann kvað það rangt að hlutfalls-
legt bil hefði lengst milli malar-
gatna og malbikaða gatna. Malbik-
aðar götur hafa lengst um 9 km
og malargötur um 11,3 km. En á
það skal leggja áherzlu að þriðjung
Framh. á 10. síðu
Gunnar Thoroddsen
Kosningafundur
D-listans
í Hdskélabíói annað kvöld
Annað kvöld verður aðalkosningafundur Sjálf-
stæðismanna haldinn í Háskólabíói. Eru allir
Sjálfstæðismenn hvattir til að fjölmenna á fund-
inn og hefja þannig öfluga sókn síðustu dagana
fyrir bæjarstj órnarkosningamar.
Fundurinn hefst kl. 9 um kvöldið, en Lúðrasveit
Reykjavíkur mun leika frá kl. 8,30.
Fundarstjóri verður Páll ísólfsson, organleikari, og
fundarritari Magnús Jóhannesson, trésmiður.
DAGSKRÁ fundarins verður sem hér segir:
Ræður og stutt ávörp
Ólafur Thors, forsætisráðherra.
Guðrún Erlendsdóttir, héraðsdómslögmaður.
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra.
Skemmtiatriði
Valur Gíslason, leikari, les upp.
Einar Sveinbjörnsson ieikur á fiðlu með
píanóundirleik.
Guðmundur Jónsson syngur einsöng.
Friðleifur Friðriksson
Geir Hallgrímsson
Ræður og stutt ávörp
Birgir Kjaran, alþingismaður.
Friðleifur Friðriksson, bifreiðastjóri.
Þór Vilhjálmsson, borgardómari.
Sigurður Magnússon, kaupmaður.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri.
Lúðrasveit Reykjavíkur Ieikur frá kl. 8,30.
Sjálfstæðisflokkurinn.
^.'santfaaMnnanfiiipnMUMBBaaaaiMBBMaatinBBHagi
; Sjálfstæðismenn
j Sjálfstæðisflokkurinn þarf á sem flestu starfsfólki að halda
á kjördag og fyrir. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins,
Iungir sem aldnir, eru vinsamlega beðnir að setja sig hið
allra fyrsta í samband við skrifstofu flokksins, sem aug-
lýstar eru á öðrum stað hér í blaðinu.
Skráning starfsfólks fer fram í Sjálfstæðishúsinu frá
kl. 9 til 12 og 13 til 19, og í hverfaskrifstofum flokksins,
frá kl. 14 til 22. Látið skrá ykkur strax í dag^
tswiiwti 11———mmfmmammmmmm■