Vísir - 13.07.1962, Síða 16

Vísir - 13.07.1962, Síða 16
x : ÍSIR gl5gMMa»^fTTBilH—yiilljgsmi 50 Föstudagur 13. j'úlí 1^62. ----- -. --------------- Góð síldveiði var sl. sólarhring á austursvseðinu á milli Glettinga- ness og Digranesflaks, aðallega á Héraðsflóa, og mun aldrei hafa verið betri þar í sumar. Vitað var um .54 skip kl. 8 í morgun, sem fengið höfðu samtals 56550 mál. Síldin á Austfjarðamiðum er stór og fer batnandi. Veður er gott eystra en slæmt skyggná. Á austanverðu miðsvæðinu var rýr afli í gærkvöld og nótt, vitað var um 11 skip sem fengu þar alls 2360 tunnur. Leitarskipin fundu nokkrar stór- ar torfur í utanverðu Húnaflóadýpi og 42 mílur NNA af Gnmsey_ Veð- ur er gott á öllu svæðinu. Eftirtalin skip höfðu tilkynnt síldarleitinni um afla kl. 8 í morgun sem hér segir: Sólrún 450 tn. Sæfari 900 tn. Sunnutindur 1300 mál. Björgúlfur 1200 mál. Ljósafell 150 tn. Víking- ur II 80Ó mái. Ágúst Guðmunds- son 100 tn. Faxaborg 100 tn. Hug- inn VE 100 tn. Stapafell 1050 mál. Vilborg 550 mál. Þórsnes 900 mál. Steingrímur trölli 1500 mál. Guð- finnur 600 mál. Gylfi II 750 mál. Hannes lóðs 750 mál. Ólafur Magn- Framh. á 5. síðu. Þessi mynd er af byggingu í- þróttahallarinnar, sem verið er að reisa inni í Laugardal. Vek- ur bygging þessi mikla athygli allra þeirra, sem þarna fara um, vegna þess sérkennilega máta, sem á byggingaraðferðinni er. Eru reistir óhemjumiklir pall- arj eins og sjá má, sem notaðir eru við steypu þaksins og súln- anna í veggjunum. BifreiBin fór í ioftköstum og Ienti40m. frá veginum Karolína Framhaldssagan franslca frá stjórnbyltingartímanum, sem að undanförnu hefur birzt hér í blaðinu, hefir reynzt sérstaklega vinsæl meðal lesenda, og þegar sögunni Iauk á miðvikudag hringdu ýmsir og spurðu hvort sögunni væri „áreiðanlega lok- ið“ o. s. frv. og hvort ekki væri þá til framhald, sem iíka kæmi í blaðinu. Sagan er öll komin, en í framhaldssögu er greint frá Karólinu í útlegðinni og fleiri, er við sögu hafa konúð og hefur biaðinu tekizt eftir nokkra fyrirhöfn að ná i hana. Verður hún birt sem framhaldssaga hér í blaðinu þegar lokið er sakamálasögunni, sem hófst í gær, en hún er frem- ur átutt opnar Hótel Saga, hið nýja og glæsi lega gistihús í höfuðstaðnum, tekur á móti fyrstu gestunum annað kvöld. Þeir verða 50-60 og koma með flugvél Flugfélags íslands frá London á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins. Hefir Þorvaidur Guðmundsson hótel- stjóri það eftir forstjóra Ferða \ skrifstofunnar, að orðið hefði að senda þessa gesti til baka, vegna skorts á gistirými, ef hið nýja hótel hefði ekki komið til. Þorvaldur sagði f viðtali við Vísi í morgun að orðið hefði að opna fyrr en hægt var með ■góðu móti, vegna þess að svona stóð á. Það hefir nú verið gengið snyrtilega frá anddyri hins nýja hótels, fimmta hæðin er altil- búin, en þar eru gistiherbergi, og morgunverðarsalur á efstu hæð hússins verður nú tekinn \ í notkun, en einvörðungu fyrir næturgesti. KAJAK MILLI LANDS OG EYJA Tveir menn slösuðust, bifreið ó- nýttist og önnur stórskemmdist í nótt, er þeim var ekið með ofsa hraða, þannig að ökumennirnir misstu stjórn á þeim og bæði far- artækin uitu. Klukkan 1.42 eftir' miðnætti var Kristmundur Sigurðsson lögreglu- maður í umferðardeild rannsóknar lögreglunnar kallaður út og honum tiikynnt að bifreið hefði hvolff vjfS Skúiatorg. Þegar Kristmundur kom á staðinn lá fólksbifreiðin R-12659 þar á hliðinni mjög illa farin. Hafði henni verið ekið á ofsalegri ferð austur Skúlagötuna, en þegar kóm inn í hringinn á torginu hafði ökumaðurinn ekki fullkomið vald á farartækinu svo það lenti utan í hringbrúninni og vált. En ferðin þá svo mikil að bifreiðin endasentist yfir þvera ak brautina og ekki gott að vita hve iangt ef hún hefði ekki lent á ljósastaur og staðnæmzt við hann. Var djúpt far inn í bifreiðina eftir staurinn og staurinn sjálfur bogn- aði, svo sýnilegt er að höggið var mikið. Einnig kom far inn í þak \ bifreiðarinnar frá götubrúninni þar sem bíllinn staðnæmdist. Er hún stórskemmd. Þrír menn voru í bifreiðinni, tveir þeirra drukknir, sá þriðji ó- drukkinn. Sá ódrukkni hafði að því leyti umráð yfir bifreiðinni að hann hafði hana í viðgerð fyrir eigandann. En hann sagði að hinir drukknu hefðu neytt sig til að láta bíllyklana af hendi við þá, án þess þó að til átaka hafi komið, og það var annar þeirra sem ók bifreið- inni þegar hún valt. Auk þess sem hann var drukkinn hafði hann ekki réttindi til aksturs, því hann hafði verið sviptur ökuréttindum fyrir nokkru óm þriggja ára skeið. Gegnir furðu að aðeins einn þeirra þremenninganna skuli hafa slasazt, en það var sá þeirra sem ódrukkinn var. Hann var fluttur í slysavarðstofuna og þar teknar af honum röntgenmyndir. Kvaðst Kristmundur vita það síðast til hans að læknar héidu hann ekki vera alvarlega slasaðann. Hinir tveir mennirnir voru fluttir í fanga geymsluna. í loftköstum. Rétt þegar Kristmundur var ný kominn heim tii sín eftir rann- sóknina í máli þessu, háttaður og var að festa blund var hann ræstur út að nýju. Hafði Carlsen minnka bani þá ekið fram á mann, slasað- an á Suðurlandsvegi, skammt fyrir neðan Rauðavatn og séð illa leikna bifreið spöl fyrir utan veginn. Framh. á 5. síðu. Mucmillan / vanda Úrslit seinustu aukakosninga á Bretlandi kunnu að hraða endur- skipulagningu brezku stjórnarinnar. Brezk blöð ræddu í gær vanda þann, sem Macmillan er í vegna fylgistaps flokksins og orðróms um að hann ætlaði að endurskipuleggja stjórn sína, — Iáta nokkra „gamla“ ráðherra róa og unga, framgjarna menn í flokknum koma f þeirra stað, og var gizkað á, að Selwyn Lloyd fjármálaráðherra, McLeod o. fl. myndu hverfa úr stjórninni. Er þessi breyting, ef af henni verður, vafalaust gerð vegna hnignandi V Framh. á 5. síðu. í gær var verið að hefja leit í Vestmannaeyjum að tveimur þýzkum mönnum, sem höfðu ætlað að róa í kajak eða húð- keip frá Landeyjasandi til Vest- mannaeyja. En rétt þegar leitin var að hefjast komu þeir fram undir Eyjum. Hafði för þeirra milli lands og Eyja gengið vel. Þjóðverjarnir, sem eru 24 og 20 ára, eru á ferð í húðkeipum sínum meðfram allri suður- ströndinni og ætla bráðlega að róa frá Vestmannaeyjurp til lands, fara síðan gegnum Gatið í Dyrhólaey austur með Mýr- dalssandi, upp Kúðafljót og Skaftá að Kirkjubæjarklaustri. Þegar þeir komu til Eyja fengu þeir að borða í matstofu Hraðfrystistöðvarinnar og gist- Framh. á 5. síðu. ■ *, j; hæstu \ ■; stöivurnur ■ 1 B! V Eftirtaldar söltunarstöðvar á' •Jsiglufirði höfðu salta yfir 1000’ ■’tunnur hver sem hér segir í‘ /gær: Haraldur Böðvarsson 3700,* jjlsafold 3379, Hafliði h.f. 2308,1 SReykjanes 2200, Kristinn Hall-Ó Vdórsson 1300, Síldarsöltun Ís-J ■'firðinga 1130 og Skapti Stefáns-j I’son 1127. Talað yfir Atlantshaf í nótt um TELSTÁR Tilraunin með fyrsta símtaliö yfir Atlantzhaf uni TELSTAR átti sér stað í nótt og tókst ágætlega. Ríkir mikil ánægja hjá forráða- mönnum bandaríska talsíma og rit- símafélagsins yfir þessu, því að annar höfuðtilgangurinn með Telst- ar er að kanna til hlítar skilyrðin fyrir slíku fjarskiptasambandi, en það hefði framtíðarþýðingu, gæfist það vel, þar sem sæsímarnir yfir Atlantzhaf anna ekki nándar nærri að kýma áfram símtölum, sem um er beðið. Þá ríkir mikil ánægja yfir hversu vel gekk að sjónvarpa og endursjónvarpa frá Telstar. For- ráðamenn Talsíma og ritsímafélags ins segja, að þegar búið sé að koma á loft 20 — 25 gervihnöttum eins og Telstar geti allar þjóðir notið sjón- varps um gervihnetti og þeir segja, að Rússar geti nú fengið afnot af Telstar, en til þess þurfi þeir sér- stök tæki og upplýsingar, sem fé- lagið muni fúslega láta þá fá, ef þeir óski og ^andaríkin leyfi. Sjónvarpssendingin frá Frakk- landi í fyrrinótt stóð 8 mínútur en | sú frá Cornwali, Englandi, 12 míl- ur, og töldu sjónvarpsnotendur í | Bandaríkjunum þær fyllilega sam- | bærilegar við innlendar sjónvarps- | sendingar. mm EBNARS- %m NROSSHÚSUfifB LATINN Einar Einarsson Krosshúsum í Grindavík lézt í fyrrinótt að heim- ili sinu 59 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur. Einar var kvæntur danskri konu, Ellen Einarsson, og áttu þau 3 dætur uppkomnar. Ein- ar fékkst aðallega við verzlunar- störf á seinin árum og var kunnur maður og vinsæll.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.