Tölvumál - 01.05.1990, Qupperneq 5
Tölvumál Maí 1990
Frá ritstjóra
Ágúst Úlfar Sigurðsson,
tæknifræðingur
Heimsókn til
Landsvirkjunar
Miðvikudaginn 16. maíbauð
Landsvirkjun félagsmönnum SÍ til
kynningar á hinum nýja kerfisráði
sínum. Á fjórða tug félagsmanna
þáði boðið.
Landsvirkjunarmenn lýstu ýmsum
helstu atriðum varðandi hlutverk og
tæknilega þætti kerfisins.
Fram kom í máli þeirra að
heildarverð kerfisins er á núvirði
talið vera 840 milljónir króna og er
það að mestu leiti keypt frá
bandaríska fyrirtækinu Harris.
Kerfið er allt skipulagt og byggt
með rekstraröryggi í huga. Því eru
megintölvur þess hafðar tvær og
sömuleiðis eru seguldiskar
kerfisráðsins tveir. Ef bilunar
verður vart í aðaltölvu eða
seguldiski er varaeiningin ávallt
í viðbragðsstöðu til að taka við.
Gögn á varadiski eru sífellt uppfærð
til samræmis við aðaldisk svo að
engar gloppur myndist þótt skipta
þurfi milli diska.
Fjarskiptatengingar eru tvöfaldar og
orkumötun til tölvukerfisins er
tryggð þótt allar virkjanimar í
landinu myndu bregðast samtímis.
Þá tölvu sem er til vara má hverju
sinni nýta sem kerfíshermi fyrir
þjálfun starfsfólks og ýmiss konar
tilraunir með rekstur
raforkukerfisins.
Eftir kaffidrykkju var gengið niður í
kjallara hússins þar sem tölvur og
stjómborð em staðsett. Þar mátti
líta tölvuskjái kerfisráðsins ásamt
fimastórri ljósatöflu með mynd af
landinu og veitukerfi
Landsvirkjunar.
Af skjáunum mátti lesa allar helstu
tölur um rekstur Landsvirkjunar á
hverju augnabliki, allt frá stöðu
einstakra rofa í Sigölduvirkjun til
heildartölu yfir raforkuframleiðslu
í öllum virkjununum samanlagt.
Það vakti athygli undirritaðs að
flestir textar á tölvuskjáunum voru á
íslensku, en sumir á ensku. Fékkst
það upplýst að markmiðið væri að
íslenska alla texta og skipanir,
en verkið sækist seint því textarnir
em í mjög mörgum tilfellum fastar í
forritum, sem em ýmist skrifuð í
smalamáli eða Fortran.
Viðhald á hug- og vélbúnaði verður
á höndum íslenskra tæknimanna
fyrir utan það sem fellur undir
ábyrgðarviðgerðir fyrstu 2 árin.
Við óskum starfsmönnum
Landsvirkjunar til hamingju með
glæsilega og vel útbúna stjómstöð
og þökkum þeim góðar viðtökur.
Rafbakhjarl SKÝRR
Til að bæta rekstraröryggi hafa
SKÝRR tekið í notkun rafbakhjarl,
en svo nefnist tæki, sem hreinsar og
bætir rafmagnið, sem knýr
tölvusamstæðu fyrirtækisins.
Eftir tilkomu rafbakhjarlsins á að
vera tryggt að spennusveiflur og
algjört straumrof í allt að 5 mínútur
valdi ekki neinni truflun á
tölvurekstri SKÝRR.
5