Tölvumál - 01.05.1990, Síða 14

Tölvumál - 01.05.1990, Síða 14
Tölvumál Maí 1990 Port í Tölvuorðasafninu var port þýtt með stunpa. Okkur fannst það eðlilegt því að tölvunotendur sjá port á tölvunum sínum sem eins konar innstungur. Nú virðist þó ljóst að flestir nota orðið tengi. Við höfum ekki neitt á móti því orði. Það fer einnig vel í samsetningum, t.d. prentaratengi. samskiptatengi. samhliðatengi og raðtengi. Postscript Postscript mun vera heiti á staðli fyrir sérstaka tegund af frálagi fyrir prentara. Lagt var tii að kalla það eftirskrift. Postscript form, sem stundum heyrist, héti þá eftirskriftarform. Nand-gate, nor-gate í Tölvuorðasafninu hét nand-gate néog-gátt og nand-operation hét néogun. Nor-gate hét néeða-gátt og nor-operation hét néeðun. Þessi orð eru þannig til komin að or- operation fékk heitið eðun og and- operation fékk heitið ogun. Síðan var reynt að fínna heppilegt neitunarforskeyti. Við fengum fyrirspum frá eðlisfræðikennurum í Menntaskólanum í Hamrahlíð þar sem þeir spurðu hvort nor-gate gæti heitið “hvorki-né-gátt”. Það tilefni varð til þess að við fórum að hugsa um þessi orð aftur. Til er atviksorðið hvorkinlegur. ‘sem heyrir hvorugum til’. Því datt okkur í hug að nor-gate mætti heita hvorkineátt og nor-operation hvorkinaðgerð. En þá þurfti að finna heppilegt heiti á nand-operation. Hugsum okkur að til sé fomafnið eifíáðir. þ.e. ekki báðir. Þá yrði nand-gate eibeggiagátt og nand- operation eibeggiaaðgerð. Þessu er varpað fram til umhugsunar. Casual user, power user Nýlega var ég spurð að því hvemig ætti að þýða casual user og power user. Eg spurði þá á móti hvers konar notendur það væm. Casual user mun vera sá sem notar tölvur stundum og þá ekki til neinna stórátaka. Hann gæti heitið ígripanotandi. Power user er hins vegar einhver sem notar tölvur að staðaldri og þarf aflmiklar tölvur. Sá gæti heitið þaulnotandi eða sfnotandi. Support í Tölvuorðasafninu er enska sögnin support þýdd með annast. Verknaðamafn yrði þá önnusta. Rétt þykir að benda á þetta þar sem ýmsir hafa notað þessi orð og líkað vel. Þetta verður ekki lengra að sinni. Ég hvet alla áhugamenn um íslenskt mál að skrifa eða hringja. Formaður orðanefndar hefur nú aðsetur í Hagstofu íslands, Skuggasundi 3, 150 Reykjavík, s:609828. 14

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.