Vísir - 08.08.1962, Síða 3
Miðvikudagur 8. ágúst 1962.
VISIR
3
Iih.jiikw
■;
-- ; ;
... - ■>"s'^
t- •:
' '
. ................ .................................................•
i 1 ' J
Siðastliðinn mánudag hafa
danskir kvikmyndatökumcnn
farið víða um borgina og ná-
grenni hennar við upptöku á
kvikmyndinni 79 af stöðinni.
Þeir hafa oft tekið kvikmyndir
útivið og þá hefur það komið
fyrir að svo mikill hópur fólks
hefur safnazt saman til að
horfa á upptökurnar, að umferð
hefur jafnvel stöðvazt.
Upptökurnar hafa farið víða
fram inni á bílastöðvum og ben-
sínstöðvum, á einkaheimilum
inni f Hlíðum og á Melunum,
austur á Þingvöllum, uppi á
Uxahryggjum, við Gljúfurá f
Borgarfirði og á Keflavíkur-
flugvelli.
Stundum hefur fólkið á staðn
um verið spurt, hvort það vilji
ekki taka þátt i hópatriðum,
gerast kvikmyndaleikarar. Það
sé enginn vandi, aðeins að
ganga fyrir framan kvikmynda-
vélina og ekki að stilla sér upp,
vera eðiiiegur.
Síðasta upptaka kvikmyndar-
innar fór fram niðri í Austur-
stræti um hclgina. Það var tal-
inn bezti tími til að vinna í
strætinu, þegar helmingur
borgarbúa var farinn út úr
bænum. Sviðið var gangstéttin
breiða fj'rir framan Austur-
stræti 10. Einn sélegur herra,
Bessi Bjarnason er þar á „rúnt-
inum“ og í sýningarglugganum
á bak við stendur eins og af til-
viljun ritað stórum auglýsinga-
stöfum: — allt til veiða.
Myndsjá í dag er frá þessu
atriði. Við sjáum, að í þessari,
kvikmynd, þegar hún kemur
fram verður margt úr borgar-
lífinu, sem við könnumst við.
í gærkvöldi voru einstakir
hlutar úr kvikmyndinni sýndir
í Háskólabíói. En sú sýning
fór fram fyrir læstum dyrum.
Engir fengu að koma inn til að
sjá myndirnar nema leikstjór-
inn, aðstoðarmenn hans og
nokkrir íslenzkir trúnaðarmenn.
Og sum þeirra atriða, sem
þar voru sýnd fá kvikmynda-
húsgestir aldrei að sjá. Nú er
búið að taka 15 km. af kvik-
myndafilmu. Eftir er að klippa
niður og þegar því er lokið á
filman aðeins að vera um 2 km
á lengd. Það er sagt í kvik-
myndaheiminum að erfiðasta
verkið sé að klippa niður.
' ' Vv <■ v ^ . f<,
.........I........
Þarna eru tvær laglegar
Hæ, þiur
Áhorfendur safnast saman og horfa á kvikmyndaupptökuna. Hvar hef ég séð þig áður?