Vísir - 26.09.1962, Page 2

Vísir - 26.09.1962, Page 2
VISIR Miðvikudagur 26. sept. 1962. LISTON er orðinn heimsmeistari • fm • • v jf & m æo a ÆtmmamM 'fii JffJBilfMJi MfMisvrgh 7 D PATTERSON MISSiR TITIIINN ÖÐRU SINNI Keppni Listons og Patter sons í nótt um heimsmeist- aratignina í hnefaleik var útkljáð af Charles Liston á 2 minútum og 6 sekúnd um, en þá kom Liston vinstri handar „hook“ á meistarann, „sem fór í gólf ið og var talinn út en var að rísa á fætur, er dómar- inn „taldi hann út“. 35000 áhorfendur voru viðstadd- ir keppnina, þar á meðal voru margir gamlir heims- meistarar, sem voru kynnt ir fyrir áhorfendum fyrir keppnina, Joe Louis, Jack Dempsey, Rocky Marci- ano, Ingemar Johanson, og James Braddock. Liston sótti ákaft strax fyrstu mínúturnar með vinstri hendinni gegn kjálka Pattersons, en það reyndist án teljandi árangurs. Högg frá Liston í skrokk Patter- sons gáfu honum hins vegar mörg stig og gerðu Floyd auk þess mjög óstyrkan og eftir aðeins 2.06 mín- útur lá heimsmeistarinn fyrrver- andi í gólfinu. Þannig varð „vandræðabarnið í bandarískum hnefaleikum" heims- meistari og það á stytzta tíma sem Knock-Out hefur orðið í heimsmeistarakeppni, enda voru Frh. á 10. bls. Bikarkeppnin: SkotharSir Vestmanna eyingar / 3. umferS TVR f Vestmannaeyjum vann Fram-b í Bikarkeppninni með 4:0. Er grelnilegt að við miklu má bú- ast af þessu Iiði og ekki er ósenni- legt að baráttan i 2. deild næsta ár standi fyrst og fremst milli Þróttar og Týs og e.t.v. við ísa- fjörð einnig. Týr er eina liðið sem kemst í „kvartfínaiinn“, sem ekki er orðað við 1. deild, því meðal hinna 8 liða eru Keflavik og ísafjörður. Fram átti fyrstu 5 mínúturnar í leiknum á laugardaginn, og hefði átt að geta skorað a.m.k. einu sinni enda áttu þeir stangarskot og góð toekifæri. Þá komust Vestmanna- eyingar í gang og var þá ekki að sökum að spyrja. Eftir 15 min. kom fyrsta markið með glæsilegu skoti Kristleifs Magnússonar, mið- herja. Bjarni Baldvinsson skoraði annað markið stuttu siðar, en markið má skrifa á dómarann. Sveini markverði var hrundið í markinu, dómarinn stöðvaði leik- Framhald á bls. 10. NORÐURLANDSMEISTARAR KA 1962 — Aftari röö talið frá vinstri: Birgir Hermanns- son, Stefán Tryggvason, Jón Stefánsson, Árni Sigurbjörnsson, Haukur Jakobsson, Sigurð- ur Víglundsson, Halldór Kristjánsson, Þór Þorvaldsson, Hermann Sigtryggsson, formaður. Fremri röð talið frá vinstri: Siguróli Sigurðsson, Þormóður Einarsson, Skúli Ágústsson, Einar Helgason, Jakob Jakobsson, Kári Árnason, Friðrik Jónsson. — Eins og sjá má er lið KA að mestu skipað leikmönnum, sem leikið hafa á íslandsmóti 1. deildar i sumar, en fjór- ir leikmanna, þeir Jakob, Jón Skúli og Kári, hafa allir Ieikið með landsliðinu, Skúli og Jón í sumar. Sonny Liston hafði alla yfirburði og vann öruggan sigur. And- ^ stæðingurinn var „groggy“og högg með sitt hvorri hendi gerðu út um sigur hans eftir aðeins rúmar tvær mínútur, eða í lok 1. lotu NorSurlands- meistari 1962 WcissEi sElica cmdsfæðÍBigfi sínsa Knattspyrnufélag Akureyrar ] varð Norðurlandsmeistari í knatt- spyrnu 1962. Vann liðið alla sina Ieiki með yfirburðum og skoraði 41 mark gegn 6. Þórsliðið varð annað, en var mun lakara en KA í keppninni. Eini tapleikur Þórs var gegn erkióvinunum, KA, sein vann 7:1. Siglfirðingar, sem sigr- uðu i fyrra urðu nú í 3. sæti. Lið héraðssambands Eyjafjarðar, Skagafjarðar og Þingeyinga voru mun lakari en 3 fyrstu liðin eins og sjá má á markatöflunni með þessari grein. Leikir mótsins fóru fram á Ak- ureyri, Laugum, Sauðárkróki og Siglufirði. Tii stóð að leika að Laugalandi i Eyjafirði, jen færa varð leikina þaöan til Akurcyrar vegna þess hve slæmt veður var að Laugalandi. Mótið hófst 11. sept. s.l. en lauk s.l. sunnudag og er það rösk af- grciðsla á svo miklu knattspyrnu- móti. Úrslit i keppninni urðu þessi: KA 5 5 0 0 10 41:6 Þór 5 3 1 1 7 23:10 KS 5 3 1 1 7 7:7 HSÞ 5 2 0 3 4 8:25 UMSS 5 1 0 4 2 7:17 UMSE 5 0 0 5 0 4:25 INGEMAR m SlfATTURINN Skattayfirvöid Bandaríkjanna tilkynntu sænska hnefaleikaranum Ingemar Johansson að hann fengi ekld leyfi til að yfirgefa Banda- ríkin fyrr en liann hefur greitt skatta þá sem á hann hafa verið lagðir í Bandaríkjunum eftir 3 keppnir við Floyd Patterson, ein milljón dollara samtals. Ingemar er nú staddur í Chicago, þar sem hann fylgdist með kcppni Listons og Pattersons i gær- kvöldi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.