Tölvumál - 01.12.1997, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.12.1997, Blaðsíða 14
 T 0 L V U M Á L ®l Skönnun og greining skattframtala Nýjar leiðir í gagnamóttöku Eftir Guömund Kiærnested 1. Inngangur Aárinu 1997 innleiddi emb- ætti ríkisskattstjóra nýja tækni sem notuð var við gagnavinnslu persónuframtala. Þessi nýja tækni á eftir að gjörbylta verklagi við upplýsingaöflun í skattkerfinu, ekki einungis hvað varðar upplýsingar frá einstakling- um heldur öllum þeim aðilum sem skila inn gögnum á pappírs- formi. Tæknin gengur út á að tekin er stafræn mynd af framtölum, þ.e framtöl eru skönnuð. Myndin er færð til tölvu sem framkvæmir ákveðna myndvinnslu sem skilar frá sér gagnainnihaldi framtalsins sem skannað var. Myndvinnslan er svokölluð ICR (e. Intelligent Character Recognition) greiningar- vinnsla og gengur í raun út á að breyta mynd af staf í tölvulæsilegt form. Þessi nýja tækni verður köll- uð hér á eftir skönnun og greining en hún er megin efni þessarrar greinar. Einnig verður fjallað um hvernig hún er hluti af heildar- lausn fyrir skattkerfið sem embætti ríkisskattstjóra er að þróa í sam- vinnu við ýmsa aðila. 2. Skil á gögnum til skattkerfisins Á hverju ári er skilað inn miklu magni af upplýsingum til skattyfir- valda. Má með sanni segja að hór sé um að ræða eina af umfangs- mestu gagnasöfnun sem á sér stað í landinu. Fram til þessa hefur stærstum hluta þessarra gagna ver- ið skilað inn á pappírsformi og 14 - DESEMBER 1997 bæði skráning og yfirferð þeirra upplýsinga sem þar er að finna hefur verið framkvæmd að mestu leyti með handvirkum hætti. Erfitt er að meta hversu margir starfs- menn vinna þetta verk árlega en ljóst er hins vegar að af þeim u.þ.b 200 starfsmönnum sem vinna á skattstofum í dag, vinnur stór hluti við þessi verkefni, þ.e að undirbúa gögn fyrir skattlagningu opinberra gjalda. Tafla 1 sýnir yfirlit yfir helstu skil á upplýsingum til skattkerfis- ins. Hér er ekki um nákvæmar töl- ur að ræða enda eru þær breytileg- ar milli ára. Staðlað rekstrarframtal er nýtt framtal sem var valkvætt í ár en á næsta ári verður um skyldu- skil fyrir lögaðila að ræða. Nú í ár gátu rekstraraðilar valið um að skila því framtali eða skila inn með hefðbundnum hætti. Athuga ber að skilamagn rekstraframtalsins í töfl- unni er áætluð tala um skil á árinu 1998. Á skattskrá eru um 207.000 einstaklingar en vegna samskött- unar minnkar skilamagnið niður í um það bil 166.000 frantöl. Á árinu 1998 verður gerð breyting á per- sónuframtalinu. Mun það hafa í för með sér að fjöldi skjala í þeim skil- um mun aukast. Tafla 1 er engan veginn tæmandi yfirlit yfir skil á gögnum til skattyfirvalda. Tína mætti einnig til skil á markaðs- gjaldsframtali, hlutafjármiðum, ýmsum eyðublöðum sem fylgja eiga persónuframtalinu s.s eyðu- blað fyrir vaxtagjöld og skil á ýms- um eyðublöðum í virðisaukaskatti. Taflan gefur hins vegar yfirsýn yfir umfangsmestu skilin. í dag er heimilt að skila inn á véltæku formi launamannasundurliðunum í staðgreiðslu og launamiðum og hefur svo verið í nokkur ár. Einnig var hægt í ár að skila inn á véltæku formi stöðluðu rekstrarframtali en það er í fýrsta sinn sem slíkt er gert með framtal. 3. Skönnun og greining - Tengsl viö önnur ný upplýs- ingakerfi Til að auka ffamleiðni í skatt- kerfinu ákvað embætti ríkisskatt- stjóra að stórauka notkun á upp- lýsingatækninni við úrlausn verk- efna. Ákveðið var að samhliða upptöku staðlaðs rekstrarframtals yrði þessi háttur hafður á. Starfs- hópur var skipaður til þess að skoða til hvaða lausna mætti grípa. Eftir vinnu þessa hóps fæddist ákveðin heildarlausn á móttöku og Tafla 1 Tegund Skilamagn Véltæk skil í % Persónuframtal (manna og barna) 166.000 0 % Staðlað rekstrarframtal 10.000 30 % VSK skýrslur 180.000 0 % Launamiðar 550.000 38 % Launamannasundurliðanir í staðgreiðslu 108.600 61 %

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.