Vísir - 15.01.1963, Side 6
6
V 1 S I R . Þriðjudagur 15. janúar 1963.
Unnið áfram að aðild Breta aðEBE
þráfí fyrir ummæli De Gaulle í gær
Óbilgjörn afstaða De
Gaulle Frakklandsforseta
varðandi aðild Bretlands
að Efnahagsbandalaginu
mun í engu breyta ásetn-
ingi brezku stjórnarinnar,
að vinna áfram af þolin-
mæði að því að aðild með
viðunandi skilyrðum nái
fram að ganga.
Þessu lýsti Edward Heath aðal-
samningamaður Bretlands yfir i
Brussel í gærkvöldi, eftir að hann
hafði hlustað á ræðu De Gaulle,
en fulltrúar Ítalíu og Hollands á
ráðherrafundinum, sem þar hefst í
Eagir farþegar á
Grænlandsförum
Rfkisstjórn Dana hefir neitað
stjóm Grænlandsverzlunarinnar
um leyfi til að láta Grænlandsför
flytja farþega til Grænlands að
vetrarlagl.
Það eru nú brátt 3 ár, síðan
Hans Hedtoft fórst við Grænlands-
odda 30. janúar 1959 með 95
manns, og var þá sett á laggir
svonefnd Vedel-nefnd, sem benti á
ýmsar öryggisráðstafanir, sem
gera mætti, ískönnun o. þ. h., en
auk þess átti að styrkja þau skip
sérstaklega til íssiglinga, sem höfð
yrðu í þessum ferðum.
Nú eru í notkun tvö skip, sem
fullnægja skilyrðum, sem sett voru
um traustleika Grænlandsfara, og
ér ánnað Nanok S., sem er eign
útgerðarfélagsins A. E, Sörensen í
Svendborg og Erika Dan, sem er
í eigu J. Lauritzen-félagsins, en
Grænlandsverzlunin hefir bæði
þessi skip á leigu. Með tilliti til
þess, hvað hér væri um traust og
góð skip að ræða, sótti stjórn
Grænlandsverzlunarinnar um
heimild til að láta skip þessi flytja
farþega. Málinu var skotið til
stjómmálaflokkanna dönsku, og
voru allir nema einn því með-
mæltir, að farþegaflutningar
skyldu heimilir, en þar sem einn
snerist öndverður treystir ríkis-
stjórnin sér ekki til að veita um-
beðna heimild.
Málið mun verða tekið upp aft-
ur síðar, en um farþegaflutninga
verður a. m. k. ekki að raéða í vet-
ur, hvað sem síðar verður...
dag, kváðu lönd þeirra áfram sam
þykk fullri aðild Bretlands að
bandalaginu þrátt fyrir ummæli De
Gaulle. De Gaulle vék að aukaaðild
Bretlands, en Heath sagði að það
væri alkunnugt, eins og De Gaulle
vissi manna bezt, að Bretland féll-
ist ekki á neina aukaaðild.
Ráðherranefndin tekur í dag fyr
ir skýrslu undirnefndar um land-
búnaðarmálin, en ekki búist við,
að farið verði að ræða þau I ein-
stökum atriðum fyrr en á fimmtu-
dag og föstudag.
De Gaulle sagði í ræðu sinni, að
Bretland yrði að falla frá skilyrð-
um stnum varðandi samveldislönd
in og kröfum um sérréttindi til
handa brezkum Iandbúnaði, ef þeir
ætluðu sér að fá aðild framgengt,
svo og yrðu þeir að hætta að halda
því fram, að önnur ríki í Fríverzl-
unarsamtökunum yrðu að fá að-
ild að EBE. Hann kvað aðild Bret-
lands að EBE, eins og Bretar vildu
hana, og annarra ríkja, sem Bret-
ar vilja I það, mundu gerbreyta
bandalaginu, og yrði það þá allt
annað en í upphafi var til stofnað
af Frakklandi, og I staðinn koma
mikið samfélag Atlantzhafsríkja,
háð Bandaríkjunum og stjórnað af
því og gleypa EBE um það er lyki.
De Gaulle vék því næst að þvi, að
það væri ekkert háskalegt, þótt
Bretar vildu ekki skipta um skoð-
un og ekki orðið af aðild, og gæti
þá komið til greina aukaaðild.
Ætla má, að ummæli De Gaulle
valdi erfiðleikum í Brussel, þar
sem samkomulagsumleitanir eru
hefjast þar um þau mál, sem
. -að
Harðar deilur milli
Listons og Pattersons
Nú eru þeir hnefaleika-
kapparnir Sonny Liston
og Floyd Patterson
komnir í hár saman,
farnir að rífast um það,
hvar og hvenær þeir eigi
að hittast i annað sinn,
Eins og menn minnast sigr-
aði Sonny Liston heimsmeist-
arann Patterson á mjög skömm
um tíma i Chicago sl. haust og
er yfirleitt ekki búizt við að
hann verði lengur að afgreiða
hann næst.
--o—
Það tíðkast í hnefaleikaheim-
inum, að sá sem sigrar heims-
meistarann gefi honum fyrstum
leyfi til að keppa við sig aft-
ur. Þannig tókst Patterson að
vinna heimsmeistaratitilinn aft-
ur frá Svíanum Ingemar Jo-
hansson.
En nú eru svo miklar deilur
upp komnar milli Listons og
Pattersons, að hugsazt getur að
Liston neiti yfirhöfuð að keppa
aftur við Patterson. Þessum
köppum hefur alltaf verið lítið
um hvorn annan gefið og nálg-
ast nú fullkomið hatur milli
þeirra. <
Fyrir nokkrum dögum til-
Liston og Patterson eru litlir vinir.
kynnti Patterson að hann væri
reiðubúinn að keppa við Liston
í Miami á Florida þann 4. apríl,
en Liston segir að sá staður
komi ek'.d til greina á þeim
tíma, þar sem aðsókn muni
verða Iítil að honum. Eini stað-
urinn sem kemur til mála segir
Liston að sé Baltimore og 1
maímánuði. Ennfremur segir
Liston að Patterson skuldi hon-
um 200 þúsund dollara síðan f
Chicago-kappleiknum og ekki
komi til greina að keppa við
hann fyrr en sú skuld er greidd.
Eftir þessar deilur lætur um-
boðsmaður Listons í það skína,
að hann kæri sig ekkert um að
keppa við Patterson, heldur
muni hann verja heimsmeistara
titilinn fyrir Harold Johnson nú
verandi heimsmeistara I létt-
þungavigt. Siðan hyggur Liston
á að mæta Ingemar Johanson i
Sviþjóð i júmmánuði og yrði
það í fyrsta skipti í áratugi,
sem heimsmeistarakeppni v
þungavigt færi fram í Evrópu.
undir er komið, að af aðild geti
orðið, þ.e. landbúnaðarmálin.
Seinustu fréttir frá London sýna
greinilega, að Heath túlkaði þeg-
ar í gærkvöldi rétt viðhorf brezku
stjórnarinnar. Lfmmælum De
Gaulle er tekið með ró og unnið
áfram af þolinmæði að því, að að-
ild Bretlands að EBE nái fram að
ganga.
m. ^ ^ -m. ■m. ^ 'V. y*. m. ^ ^ ^ ^ ^
Það hefur komið fram við
réttarhöldin, að pilturinn hafði
tekið leigubíl í Helsingör og
ekið með honum til bæjarins
Koldsbæk. Þar hafði hann sagt
bílstjóranum að túrnum væri
lokið og rétt honum fram í
sætið fimmtiu danskar krónur.
En um leið og bílstjórinn tók
við peningunum, tók pilturinn
skammbyssu upp úr vasa sín-
Ove Jörgensen
Ungi ódæðismaðurinn
forhertur í dómsal
um og skaut bílstjórann í höf-
uðið.
Pilturinn hefur margsinnis ver
ið spurður frekara um þetta ó-
dæðisverk, en hann neitar að
svara eða segist ekkert vita,
hvað hann hafi verið að gera.
Réttarhöld eru hafin yfir pilt
inum sem drap danskan Ieigu-
bílstjóra í Holbæk í Danmörku
skömmu eftir áramótin og fór>
síðan á leigubílnum yfir Eyrar-
sund til Svíþjóðar og Noregs.
Hann heitir Ove Jörgensen og
er tvítugur að aldri. Hann hafði
áður setið í unglingafangelsi í
Danmörku en hegðað sér vel.
Réttarhöldin fara fram í Hels
ingör og vekja þau óhug í Dan-
mörku, sérstaklega þar sem
hinn ungi ódæðisrpaður virðist
furðulega forhertur. Hann hefur
að vísu já'tað á sig glæpinn, en
tekki «r að finna hjá honum
neina iðrun, hann svarar dóm-
ara oftsinnis út úr.
Klakahjáp leggur
yfir meginianéið
Enn versnar ástandið úti i
Evrópu vegna frostanna. Mælist
nú 20—30 stiga frost víðs vegar
í Evrópu allt norðan frð Skandin-
avíu suður til Alpafjalla og frá
Bretlandseyjum austur til Moskvu.
Einna verst /er ástandið nú að
verða víðs vegar á Eystrasalti og
í Helsingjabotni og Kirjálabotni
við Finnland, þar eru allar sigl-
ingaleiðir að teppast.
Frá sænsku ísnefndinni berast
þær fréttir, að yfir 40 sænskir ís-
brjótar séu nú í notkun. Eyrar-
sund milli' Danmerkur og Svíþjóð-
ar er að frjósa og fjöldi báta ligg-
ur nú þegar innifrosinn 1 ýmsum
smáhöfnum í Suður-Svíþjóð.
Nú er aðeins um að ræða að
reyna að halda aðalsiglingaleiðinni
til Gautaborgar, Kaupmannahafn-
ar og Málmeyjar opnum, og eru
allir stærstu ísbrjótar Svía og
Dana að vinna að því.
Suður eftir öllu Þýzkalandi ber-
ast fréttir af nærri 30 stiga frosti
og frá Hollandi herma fregnir að
allir skurðir séu frosnir.
Bretar athuga smíði
nýs risafarþegaskips
Brezka skipafélagið Cunard-
White Star er sem óðast að athuga
möguleika á að smiða nýtt risa-
skip.
Mundi skip þetta koma í stað
in fyrir eldri „drottninguna“ —
Queen Mary — sem komin er tals-
vert til ára sinna, er orðin meira
en 25 ára, og er ekki talin nothæl
lengur en í svo sem fimm ár enn.
Nýja skipið yrði þó engan veginn
eins stórt og Queen Mary, sem er
rúmlega 81,000 lestir, því að það
mun aðeins verða 50—55 þúsund
lestir, en á að geta flutt 1850 far-
þega, Kostnaður við það er áætl-
aður um 2,5 milljarðar króna.
Queen Elizabeth er yngra skip
en Mary, og er gert ráð fyrir, að
það verði vel nothæft a. m. k.
10 ár enn.