Vísir - 07.02.1963, Page 13

Vísir - 07.02.1963, Page 13
V1 S I R . Fimmtudagur 7. febrúar 1963. 13 ★ Það virðist hafa vakið mikla athygli manna í Gloucester í Massachusetts, Bandarikjunum, þegar Lagarfoss var þar í fyrra mánuði á dögum „hafnarverk- fallsins í New York og öðrum hafnarbæjum á austurströndinni og við Mexikóflóa", eins og sagt var í fréttunum þá, en hafn arverkfallið náði bara ekki til Gloucester — þar var ekkert verkfall, þar var unnið og vel unnið, og er það haft eftir skip- stjóranum á Lagarfossi, Birgi Thoroddsen, í viðtali við hann, að meðal hafnarverkamanna þar og sjómanna riki félags- lyndi og glaðlyndi, og svo vel sé unnið, að til fyrirmyndar sé. Nú mun það ekki alveg eins viðtalinu, að bæði hinn eygi skipstjóri, sem lítur ir að vera miklu yngri árs“, eins og hann kveðst — og skipið sjálft, hafa vakið athygli fyrir glæsileik. Er skip-! A inu lýst í viðtalinu, aldri þe--, og hvar það sé smíðað og stærð — að það hafi komið til Glou- cester eftir 7 daga rólega ferð ! * frá íslandi með eina milljón punda af frostnum fiskflökum, — að skipið hafi farþegarúm fyrir 12, farþegaklefarnir séu búnir öllum nútímaþægindum og á því séu tvær þernur — og síðast en ekki sízt hefur það vakið mikla aðdáun og athygli, hve skipið sjálft og allt á því var tandurhreint, „sparklingly clean“, eins og það er orðað í viðtalinu. Eftir að blaðið hefur getið nokkru nánara um skipið og siglingar þess og annarra skipa E^,í. segir, Lagarfoss ÞAR SLA ENN ÍSLENZK HJÖRTU Fáninn við hún á Gloucester. dæmi, að skip frá Eimskipafé- lagi íslands komi til Gloucester — Lagarfoss kom þar sem sé einnig 7. des og hafði stutta viðdvöl — en koma hans nú í janúar s. 1. þótti nógu mikill viðburður þar til þess að „Glou cester Daily Times“ birti viðtai við „skipper Thoroddsen" í til- efni af komunni, og er það birt undir þriggja dálka fyrirsögn með tveimur myndum af skip- inu. Og mjög greinilega kemur fram í fyrirsögn greinarinnar og að í þessari ferð hafi verið landað úr Lagarfossi meira fiskmagni en dæmi séu til í sögu Gloucester og hafi tollurinn numið 38.000 doli „GLOUCESTER ER GÓÐ HÖFN“. Birgir segir í viðtalinu, að Gloucester sé góð höfn og hafi hann aldrei séð eins snör hand- tök við affermingu og þar, og hann segir við blaðamanninn: „Þið getið haft það eftir mér, að það sé mjög líklegt að við komum hingað aftur“. ÞAR ER ÍSLENZK „NÝLENDA" En meðal annarra orða, Glou- cester er fiskimannabær, fræg- ur í söng og sögu, bær, sem hefur átt sína seglbáta- og skútuöld og hefur lengi verið mikill togarabær. Um áratuga skeið hafa íslendingar hjálpað þar til að gera garðinn frægan. Þar er nefnilega íslenzk ný- lenda. Þangað réðu sig íslenzkir sjómenn. Það er orðið langt síð an þeir fyrstu settust þar að. Og fleiri komu í kjölfarið. Ýms- ir stofnuðu þar heimili og þar slá ennþá íslenzk hjörtu, sem hrifust af íslenzka fánanum á Lagarfossi, eins og fréttamað- ur Gloucester Daily News seg- ir, sem birtir meðfylgjandi mynd af fánanum við hún í blaði sínu. A.Th. Aðalfundur Sjálfstæðis félags Strandasýslu Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Strandasýslu var haldinn í Hólma- vik föstudaginn 26. janúar. Var fundurinn fjölsóttur og komu nokkrir félagsmenn langt að. Starfs svæði félagsins er Strandasýsla sunnan Árneshrepps, en þar er starfandi annað Sjálfstæðisfélag. Auk þess er starfandi í sýslunni „Ingólfur“, félag ungra Sjálfstæð- ismanna. Sjálfstæðisfélag Strandasýslu stóð í sumar fyrir Héraðsmóti Sjálf stæðismanna í sýslunni og var það fjölsótt. Á aðalfundinum var stjórn fé- lagsins endurkosin, en hana skipa: Séra Andrés Ólafsson, prófastur í Hólmavík, formaður, Kristján Jóns son, kennari, Hólmavík, frú Sjöfn Ásbjörnsdóttir, kennari, Hólmavík, Guðjón Jónsson, bóndi á Gests- stöðum og Magnús Guðmundsson, afgreiðslumaður á Drangsnesi. Þá voru kosnir eftirtaldir full- trúar félagsins í Fulltrúaráð Sjálf- stæðisfélaganna i Strandasýslu: Jörundur Gestsson, Hellu, Jakob Þorvaldsson, Drangsnesi, Magnús Guðmundsson, Drangsnesi, Vígþór H. Jörundsson, Friðjón Sigurðsson, Kristján Jónsson og Þórarinn Ó. Reyndal, allir í Hólmavík, Jóhann Rósmundsson, Gilsstöðum, Ingi- björg Jónsdóttir, Gestsstöðum, Guð brandur Benediktsson, Broddanesi, Jón Lýðsson, Jkriðnesenni og Jón Kvaran, Brú, en formaður félags- ins, séra Andrés Ólafsson, er sjálf- kjörinn sem einn stjórnarmanna í stjórn Fulltrúaráðsins. Þeir Jörundur Gestsson og séra Andrés Ólafsson voru kjörnir full- trúar félagsins á Landsfund Sjálf- stæðisflokksins, sem haldinn verð- ur í Reykjavík dagana 18.—21. apríl n. k. Að loknum venjulegum aðalfund arstörfum talaði Högni Torfason, erindreki Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi, um stjórnmála viðhorfið. Nýlega kom til landsins, ncrskur dægurlagasöngvari að nafni Barry Lee, sem gengur einnig nafninu Pat Boone Norðurlanda. Hann mun syngja á Röðli næstu þrjár vikurnar eða svo. Barry Lee, hefur öðlast miklar vinsældir þar sem hann hefur komið fram sem söngv- ari og einnig í sjónvarpi. Hann hefur haft söng að aðalatvinnu í um það bil tvö ár. Ferill hans sem söngvara hófst þegar hann sigraði í 500 manna hóp á söngkeppni sem fór fram á Rundö. Barry hefur aldrei lagt stund á Aðalfundur Kfördæmurúðs Sjólfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi söngnám og er rödd lians aðeins mótuð eftir „músíkeyra" hans sjálfs sem hlýtur eftir söngnum að dæma vera allgott. Hann hefur stundað ýmis störf um ævina og „brallað“ ýmislegt, var hann til dæmis Noregsmeistari í hnefaleikum 1956. Barry hefur komið fram opin- berlega á flestum stærstu og beztu skemmtistöðum á Norðurlöndum. Einnig hefur hann haft sjónvarps- þætti og sungið inn á plötur, tvö af lögunum hefur hann samið sjálfur. Eins og áður var að vikið er rödd hans stundum mjög lík rödd Pat Boone, án þess að þar sé á nokkurn hátt um stælingu að ræða, og gætir þess einkum í rólegum Iögum eins og t. d. „I’ll be home“ sem hann syngur mjög vel. Annað lag, sem hann syngur, „All of me“, fer hann líka ein- staklega skemmtilega með. Rödd- in er hljómmikil og honum tekst mjög vel að beita henni. Þeir sem bregða sér á Röðul á næstunni, munu áreiðanlega ekki verða fyrir vonbrigðum með söngvarann. Aðalfundur kjördæmaráðs Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi var haldinn í Sjálfstæðis- húsinu í Kópavogi 24. f.m. Formaður kjördæmaráðsins Einar Halldórsson, bóndi á Setbergi setti fundinn, fundarstjóri var kjörinn Axel Jónsson og fundarritari Karl Bergmann Guðmundsson. Einar Halldórsson flutti skýrslu um störf fráfarandi stjórnar. I Stjórn Kjördæmaráðsins var end | urkjörin, en hana skipa: Einar Hall j dórsson, formaður, Oddur Andrés- son, Hálsi Kjós, Kristinn G. Wiurn, Kópavogi, Guðmundur Guðmunds- | son, Hafnarfirði, Kristján Guðlaugs son, Keflavík. i I varastjórn voru kjörin: Jakob- ína Mathiesen, Hafnarfirði, Sess- elja Magnúsdóttir, Keflavík, Sig- urgeir Sigurðsson, Seltjarnarnesi, Sigurður Helgason, Kópavogi og Pétur Jónsson, Vögum. í flokksráð voru kosnir: Ólafur Bjarnason, Brautarholti, Kjalarnesi, Axel Jónsson, Kópavogi, Stefán Jónsson, Hafnarfirði, Karvel Ög- mundsson, Njarðvíkum og Alex- ander Magnússon, Keflavík. Á fundinum var kosið í kjör- nefnd vegna alþingiskosninganna í sumar. Fundarmenn þágu veitingar í boði Sjálfstæðiskvennafélagsins Eddu, Kópavogi. Fundinn sóttu um 80 fulltrúar kjörnir af flokksfélögum og full- 'rúaráðum í kjördæminu. Barry Lee.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.