Vísir - 04.03.1963, Síða 1

Vísir - 04.03.1963, Síða 1
VISIR 53. árg — Mánudagur 4. marz 1963. — 52. tbl. FJOLDl KUNNRA BORG- ARA Á PRESSUBALUNU Pressuballið scm haldið var á laugardagskvöldið í Hótel Sögu fór fram með mikilll prýði. Það var mjög fjölmennt á þvf og mátti sjá þar marga kunna borgara í Reykjavík, sem komu til að skemmta sér með blaða- mannastéttinni. í fyrstu voru Gunnar Gunnarsson skáld flytur ræðu sína á Pressuballinu. Landburður í þorskanótina VIÐIR II FEKK 76</2 TONN í EINU KASTI í gær var landburður af fiski í þorskanótina. Þá setti hinn kunni afla-«> bátur frá Sandgerði Víð- ir II. nýtt aflamet, en hann fékk 76‘/2 tonn af þorski í einu kasti svo að segja við hafnarmynn ið í Sandgerði. Er afli hans nær því dæmalaus. Skipstjóri á Víði II. er nú Víðir Sveinsson. f • Þeir voru 3 þorskanótabát- arnir við sitt hvern endann á loðnutorfu um 2 mílur út af Stafnesi. Fékk Víðir II. sem fyrr segir 76 y2 tonn, Eldborg- in fékk þar 15 tonn og Skírnir frá Akranesi 20 — 30 tonn. Þann ig fengust úr þessari einu torfu um 120 tonn. Víðir II. þurfti ekki að kasta oftar en fór beint til Sandgerðis, sem var aðeins um 15 mín. sigling. Eldborgin kastaði oftar og kom I gær til Hafnarfjarðar með 63 tonn. — Skírnir kom til Akraness með 45 tonn. Þá var og vitað að Hafrún kom með 18 tonn og Guðmundur Þórðarson með 16 tonn af fiski til Reykjavíkur og höfðu þeir fengið aflann í þorskanót. Ársæll Sigurðsson II., sem hefur verið einn af þorskanótabátunum gat ekki Framh. á bls. 5. Veríur einokun Ferðaskrif- stofunnar afnumin? Vísir hefur fregnað að þær ferðaskrifstofur sem eru starf- ræktar hér af einkaaðilum hafi nýlega myndað samtök sín á milli I tilefni þess, að nú mun vera í undirbúningi að afnema einkarétt Ferðaskrifstofunnar, til að taka á móti erlendum ferðamönnum og munu hlnar íslenzku ferðaskrifstofur þá geta starfað á sama grundvelli og almennar ferðaskrifstofur er lendis. Með samtökunum er ætlunin að hefja náið samstarf við sams konar samtök ferðaskrifstofa er lendis. í þessum samtökum taka þátt fjórar íslenzkar ferða- skrifstofur en þær eru: Sunna, Saga, Zoega ferðaskrifstofan og Lönd og Leiðir. þar fjölbreytt skemmtiatriði, en síðan hófst dans og stóð til kl. 3 um nóttina. Er Iýsing á sam- komunni f Myndsjá blaðsins. Þorvaldur óðalsbóndi 1 Hótel Sögu lét framreiða dýrindis veizlumáltíð og við lok borð- haldsins leiddi hann fram starfs liðið úr eldhúsinu, stóran hóp eldamanna, og voru þeir hyllt- ir með lófataki. Hafði yfirmat- sveinninn m.a. skorið út fag- urlegar dýramyndir úr glærum ís, sem voru bornar fram með eftirréttinum, en allt var þetta með glæsibrag hinum mesta. Gunnar Gunnarsson skáld flutti ræðu kvöldsins, en Vil- hjálmur Þ. Gíslason, útvarps- ■stjóri var veizlustjóri. — Svala Nielsen söng einsöng. Einnig vöktu skemmtiþættir er fluttir voru og samdir af blaða mönnum mikla athygli. Þeir Stefán Jónsson og Halldór Blöndal höfðu samið gamanvís- ur, sem Kristinn Hallsson söng við klassísk lög, en Bessi Bjarnason og Gunnar Eyjólfs- son fluttu skemmtiþátt er Har- aldur J. Hamar hafði samið. Flytjendur og höfundar þátt- anna voru hylltir með lófataki. Gamanþáttur Haraldar, sem fjaliaði um sjónvarp á ísiandi, vakti athygli Þegar var liðið fram á morg un sneri veizlugestir hejm hin- ir ánægðustu og menn spurðu hvort pressuball yrði ekki hald- ið á hverju ári héðan í frá. 2ja m. djúpt vatn á Langadalsvegi Vegaskemmdir hafa orðið víða um land sökum mikils vatnsveðurs síðustu dagana. Að því er vega- málastjórnin tjáði Vísi, hefur víða runnið úr vegum, en hvergi orðið verulegar skemmdir, og viðgerðir gengið tiltölulega fljótt. Vegir eru allir þungfærir og mjög víða orðn- ir varhugaverðir sökum bleytu. í nágrenni Reykjavíkur rann á nokkrum stöðum úr vegum, þ. á. m. Krýsuvíkurvegi, Þingvalla- og Hvalfjarðarvegi. Ekki munu skemmdir þó hafa orðið mjög mikl ar og er viðgerð á þeim lokið. Langadalsvegur er hins vegar al- gerlega ófær. Blanda flæddi yfir bakka sina , og er sums staðar um tveggja metra djúpt vatn á veginum. Sambandslaust var við Langadal í morgun, og náðust því ekki glöggar fréttir. Bílar munu nú fara Svínvetningabraut inn í Langa dal. en hún er einnig orðin mjög þung yfirferðar. Unnið er að við- gerðum. Guðjón Sv. Sigurðsson. B - LISTINN sigraði glæsilega í IÐJU Svo fór, að stjórnar- undir forystu Guðjóns kosningin í Iðju um Sv. Sigurðssonar. helgina varð mikil traustsyfirlýsing á hina farsælu stjórn félagsins Alls voru bornir fram þrir listar sem kunnugt er, þar eð kommúnistar og framsóknar- menn buðu fram hvor í sínu lagi. Tilgangur framsóknar- manna var bæði að kanna lið sitt meðal 'iðnverkamanna, og að fá sjálfum sér í hendur „sönnun" fyrir því, að þeir væru ekki þau handbendi Framh. 1 bls, 5.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.