Vísir - 04.03.1963, Síða 2
2
V í S IR . Mánudagur 4. marz 1963.
Körfuknattleikur:
Stórsigur IR
Vann KFR með 30 stiga mun,
þrdtt fyrir jufnun fyrri húlfleik
1 gærkvöldl vann KR stóran sig
ur yfir Ármanni og ÍR ennþá
stærri sigur yfir KFR.
Fyrri leikinn léku KR og Ár-
mann í II. flokki.
KR-ingar tóku leikinn strax f
sfnar hendur og voru allan tfmann
betra liðið. Lið þeirra, sem er létt
og leikandi, ræður yfir miklu meiri
hraða en Ármenningarnir. KR skor
aði fyrstu 12 stigin í leiknum og
voru þeir að smá auka forskot sitt
og höfðu 17 stig yfir í hálfleik, en
þft rtóðu leikar 29:12. 1 seinni hálf
\A Holmen
kollen
Þrfr ungir Isfirðingar verða.
, meðal keppenda á Holmenkoll-
cnmótinu, sem hefst eftir rúma I
I viku.
Þetta eru þeir Hafsteinn Sig-1
urðsson, Samúel Gústafsson og
Sverrir Jóhanncsson, og munu '
I þeir fara utan um næstu helgi.
I Þremenningarnir taka þátt í |
i Alpagreinum mótsins.
■«--
leik endurtók sama sagan sig,
nema að Ármenningarnir veittu
KR nokkurt viðnám í byrjun hálf
leiksins, en sfðan ekki söguna meir
og KR vann leikinn með 26 stiga
mun. f liði KR var Kolbeinn áber-
andi beztur, en annars er liðið
jafnt og ræður það miklu um vel-
gengni liðsins. Af Ármenningunum
bar mest á Guðmundi Ölafs. Stig-
in í leiknum skoruðu: Kolbeinn 25,
Þorsteinn 15, Kristinn 10, Hjörtur
8, Gunnar 5 og Halldór 4, allir f
KR. Af hálfu Ármenninga skoruðu
Guðmundur 18, Páll 6, Jón Þór 6,
Sigurður 6 og Finnur 3.
f seinni leiknum áttust við fR
og KFR í meistaraflokki, Fyrri hálf
leikur var jafn og spennandi. Vel
leikinn af beggja hálfu. í lið KFR
vantaði Einar Matthíasson, og var
almennt búizt við, fyrir leikinn, að
það myndi veikja liðið. Svo virtist
þó ekki vera og stóðu leikar í
hálfleik 41:36 fyrir fR. Ekki meiri
munur en svo, að útlit var fyrir
jafnan leik. KFR byrjaði allsæmi-
lega, en svo var sem úr þeim
væri allur máttur og ÍR tók leik-
inn f sínar hendur og skoraði 20
stig í röð og gerði þar með út um
leikinn. Leikinn vann ÍR með 30
stiga mun, skoraði 90
60. Af KFR-ingum var Marinó
einna beztur í fyrri hálfleik, en
virtist úthaldslaus og því hálf mið
ur sfn f seinni hálfleik. Jafnastan
leik af KFR-ingum átti Hörður,
stór og sterkur leikmaður, sem vex
ásmegin með hverjum leik. Þor-
steinn Hallgrfmsson hafði sig
óvenjumikið f frammi og voru hann
og Guðmundur Þorsteinsson beztu
menn fR-inga. Einnig átti Agnar
góðan leik, en hann er nokkuð ein-
hæfur á skot. Stigin skoruðu fyrir
KFR Hörður 20, Ólafur 18, en hann
átti mjög lG’gan leik í seinni hálf
leik, Marinó 18, Sigurður Sfmonar-
son 2 og Ásbjörn 2. Þorsteinn var
stigahæstur ÍR-inga með 27 stig.
STAÐAN:
fR 4 4 0 0 288:185 8
Ármann 3 2 0 1 165:155 4
KFR 4 2 0 2 236:237 4
KR 3 1 0 2 1581165 2
ÍS 4 0 0 4 141:240 0
Næsti leikur keppninnar er á
laugardaginn kemur, en þá leika
KR—Ármapn.
Skíðamóti
frestað
Keppni Reykjavíkurmótsins á
skfðum, sem halda átti áfram um
helgina, varð að fresta vegna stöð
ugra rigninga í Hamragili þessa
dagana og er nú að verða nær
snjólaust, samkvæmt upplýsingum
sem við fengum hjá skíðafólki í
gærkvöldi.
Reynt mun verða að halda áfram
með mótið um næstú helgi, "en
aðeins keppni í stórsvigi er lokið
sem kunnust er.
Knattspyrnumót
innanhúss
Afmœlismót Víkings f knatt-
spyrnu, innanhúss, hefst í kvöld
kl. 8.15 að Hálogalandi. Leiknir
verða eftirfarandi leikir:
Haukar A-lið móti Bliði Vfkings,
Bikarinn, sem keppt verður um.
Leikur kanadiska liðsins TRAIL SMOKE EATERS og spænska heimsmeistaraliðsins frá í fyrra í ísknattleik
endaði með sigri „EIdætanna“ með 5:2, en einnig með hinum mestu ólátum og hreinustu slagsmálum. —
Myndin sýnir þetta gjörla. Ólætin upphófust eftir 6 mínútna leik í sfðara hálfleik, en þá rákust þeir illa'
saman hinn litli kanadiski leikmaður Mclntyre og hinn risastóri Svíi Roland Stolz. Frá áhorfendapöllunum
kom flaska fljúgandi og lenti f höfði forstjóra kanadiska liðsins. Loftið var lævi blandið og árangurslaust
virtist að halda lelknum niðri. Ekki bætti úr skák að þegar leikmenn Smoke Trail Eaters sáu að for-
stjórinn þeirra var borinn út af, héldu þeir að þar væri verið að flytja hann burtu með Iögregluvaldi,
því þá komu þeir askvaðandi, en með lagni tókst að koma þeim f skilning hvers kyns var.
jiLáta ekkií
I*
\ sJá sig j
|. Tveir leikir áttu að fara fram”“
■Jf 2. deildarkeppninni um helg-,|
/ina. Aðeins annar þeirra fórji
J.frath og er frá honum sagt á»'
•’öðrum stað hér á síðunni. ValsJ=
J«menn þurftu aðeins að bíða til-%
•'skilinn tfma eftir Keflvíkingun-."
Ijum. sem vitað var að mundu'»
J.ekki mæta til keppni. Eins og»“
.Jskýrt var frá á dögunum, kom’1
I'sama atvik fyrir um síðustu
■Shelgi, þá mætti Keflavík ekki»“
,*til leiks gegn Ármanni. !»
\ í viðtali við forráðamenn Kefl,-
•Jvíkinga mátti skilia að nokkur^
'■uppgjöf var í liði piltanna. Lið!“
•JKeflavíkur er ungt að árum ogj.
V2. flokkur ÍBK er mjög efni-»“
•'legur og uppistaða meistara-”"
é'flokks er úr þeim fíokki. Virð-’é
•éist það bjarnargreiði við þá að/
•'senda þá út f keppni sem þessa,J.
J.þar sem við ofurefli cr að etja,.J
•éauk þess sem ekki virðist ganga/
é vel að nú saman liði. Ættu Keflí
Vvíkingar því að einbeita sér að.J
\ 2. fl. liði sínu, en barningur semj.
\ þessi skaðar piltana fremur en»é
J að gera þeim gott. 1“
► Pentti Nikula, hinn frægi
stangarstökkvari Finna, er nú
á ferðalagi f Bandaríkjunum og
nýlega keppti hann í New York
og stökk „aðeins“ 4.67, sem
nægði til 3. verðlauna.
► Rúmenar unnu Norðmenn í
fyrrakvöld í landsleik í hand-
knattleik í Njardhallen í Oslo
með aðeins 2 marka mun, 14:12
Eru Norðmenn mjög ánægðir
me?5 úrslitin, sem þeir telja sig-
ur, enda við sjálfa heimsmeist-
arana að etja.
Valur B-lið gegn Keflavfk A,
KR A gegn KR B,
Valur A gegn Fram B,
Keflavfk B gegn Haukar B,
Þróttur B gegn Þrótti A
og Víkingur A gegn Fram A.
Keppt verður um til eignar bikar,
sem Vátryggingafélagið hefur gefið
í tilefni af 55 ára afmæli Víkings.
Akranes
Breiðablik
Heldur var hann slakur bardag-
inn milli Akraness og Breiðabliks
úr Kópavogi og ekki laust við að
sumt úr þeim leik ætti að fara
fram „fyrir luktum dyrum“, eins
og einhver sagði réttilega.
Akurnesingar söknuðu foringja
síns, Björgvins Hjaltasonar, og
skaðaði það liðið mjög, enda var
leikur liðsins ístöðuminni en vant
er og þrátt fyrir að Akranes kæm-
ist f 10 marka forskot, voru þeir
til með að missa það af hreinum
klaufaskap niður í þriggja marka
forskot.
Erlendar
★ Kanadamaðurinn Donald Mc
Pherson vann um helgina í Cortina
d’Ampezzo heimsmeistaratitilinn í
listskautahlaupi karla og kom sig-
ur hans öllum á óvænt. Frakkinn
Alain Calmat var fyrir keppnina
talinn sigurstranglegastur, en hlaut
4. sætið, enda stóð hann sig illa í
síðustu grein keppninnar, eins og
fiestir nema Kanadamaðurinn, sem
var fyrir þá grein í 4. sæti,
'k í parakeppninni í Cortina unnu
tékknesku hjónin Eva og Pavel
Roman, en Linda Shearman Qg
j Michael Phillips frá Englandi,
Evrópumeistarar þessa árs hlutu 3.
sætið á eftir Paulette Doan og
Kenneth Ormsby frá Kanada.
★ I Mora vann Janne Stefansson
frá Svíþjóð hið mikla Vasa-hlaup,
en það fór nú fram f 40. skipti.
Vasahlaupið er 85 km. skíðaganga
og er gengið frá borginni Sælen til
Mora. Yfir 3500 þátttakendur voru
í hlaupinu, en aðeins 200 þeirra
komu að markinu í Mora. Athygli
vöktu 3 ítalir, sem voru meðal 20
fyrstu manna í mark. Beztu tímar:
1) Janne Stefansson, 4:46.25 klst.
2) Rolf Ræmgard, 4:59.52 klst. 3)
! Erik Larsson, 5:04.47 klst. 4) Sven
! Jernberg, 5:08.44 klst
★ í Östersund vann Jonny Nils-
son „Kuppern“ Johannesen f 3000
metra skautahlaupi á 4.57.7, en
Norðmaðurinn fékk 1/10 sek. lak-
ari tíma. Hins vegar vann „Kupp-
ern“ bikar þann sem keppt var
um, „minningarbikar Wazuleks",
en hann vann Nilsson með 8/10
úr sek. í 500 metra hlaupinu, en
þeir kapparnir urðu nr. 6 og 9 í
því hlaupi á heldur slökum tfmum,
49.0 og 49.8.