Vísir - 04.03.1963, Síða 5
V
V í S IR . Mánudagur 4. marz. 1&«ó.
Færeyingavaka
annað kvöld
Annað kvöld, þriðjudag, efnir fé
Iagið Ísland-Færeyjar til kvöldvöku
í Breiðfirðingabúð. Þar mun Sverri
Dahl þjóðminjavörður frá Þórshöfn
flytja erindi um fornminjarannsókn
ir í Kirkjubæ. Sýndar verða tvær
nýjar kvikmyndir frá Færeyjum.
Fjalla þær um gamla og nýja tím-
ann.
Allir vinir Færeyja, svo og allir
Færeyingar, sem hér dveljast, eru
velkomnír á samkomu þessa meðan
húsrúm Ieyfir.
Félagið Ísland-Færeyjar var
stofnað fyrir tveimur árum. Til-
gangur þess er sá, að efla vináttu
og samskipti Islendinga og Fær-
eyinga og vinna að gagnkvæmri
kynningu þessara frændþjóða.
Auk nokkurra skemmti- og
fræðslufunda, hefur félagið tvíveg-
is g'éngizt fyrir útvarpsdagskrá á
Ólafsvöku, þjóðhátíðardegi Færey-
lð|C8
Framhald af hls I
kommúnista, sem haldið hefir
verið fram.
Kosningin hefir orðið mikið
áfall fyrir báða þessa aðila, þar
sem verkafólk vottaði stjórn-
inni mjög einróma stuðning, en
einkum hlýtur kosningin þó að
baka foringjum framsóknar-
manna mikil vonbrigði, þar sem
þeir höfðu vænzt þess að geta
smalað miklu meira liði að lista
sínum.
Úrslit kosningarinnar urðu
þessi:
B-listi 851 atkvæði
A-listi 307 —
C-listi 218 —
Framsóknarmenn stóðu að
C-listanum en kommúnistar að
A-lista.
Fróðlegt er að gera saman-
burð á úrslitum þessarrar kosn
ingar og þeirrar, sem fram fór
1961, þvl að þá fékk stjórnin
682 atkvæði, en sameiginlegur
listi kommúnista og framsókn-
armanna 557.
Nú er svo komið, að kommún
istar fengu aðeins'um 23%
gildra atkvæða, en framsóknar-
menn um 15%.
Vísir hringdi I Guðjón Sv.
Sigurðsson, formann Iðju og
bað hann að segja nokkur orð
um úrslitin í Iðju. Guðjón
sagði m.a.: Ég er ákaflega á-
nægður með úrslitin. Fólkið í
Iðju gaf Framsókn þarna ræki
Iega ráðningu. Fólk þarf bara
að muna að veita Framsóknar
flokknum sömu ráðningu í
sumar. Ég vil sérstaklega
þakka þeim mörgu, sem hafa
stutt okkur með starfi sínu
og atkvæði. Og fyrir hönd
stjórnarinnar vil ég þakka það
mikla traust er okkur er sýnt.
Stjórnin mun eftir megni leit-
ast við að halda á hagsmuna-
málunum til hagsbóta fyrir fél-
agsfólkið.
inga. Þá hefur félagið útvegað fé-
lagsmönnum og fleirum færeyskar
bækur og tímarit og undirbýr nú
ásamt systurfélagi sfnu I Færeyj-
um, félaginu Færeyjar-ísland, út-
gáfu ársrits, sém gert er ráð fyrir
að birti jöfnum höndum ritgerðir
og annað efni á íslenzku og fær-
eysku.
Stjórn félagsins Ísland-Færeyjar
skipa nú:
Gils Guðmundsson, rithöfundur,
formaður, frú Elfn Arnholtz, Árni
Kristjánsson tónlistarstjóri, Helgi
Sæmundsson, ritstjóri, Ragnar Lár
usson, skrifstofustjóri, Stefán Ög-
mundsson; prentari, og Torfi ’Ás-
geirsson, hagfræðingur.
Félagsmenn eru um 80.
Skákeinvígið —
i
Framhald af bls. 16.
flækja í skákinni og voru báðir
mjög lengi að hugsa leiki sína
milli 10. og 15. leiks. Loksins
féll Friðrik á tíma, en segja
má að hann hafi gefið skákina,
því að hún var orðin vonlaus
hjá honum.
Það var fjölmennt í sa.lnum,
þar sem teflt var, enda fengu
áhorfendur mjög greinargóðar
lýsingar á keppninni. Var skák
in sýnd í næsta herbergi og þar
skýrðu stjórnendur mótsins
hana. Auk þess komu þeir fram
til skiptis milli leikja Ingi og
Friðrik og skýrðu fyrir áhorf-
endum vandamál sín.
Þriðja skákin í einvíginu verð-
ur á morgun, þriðjudag.
Önnur einvígisskák
þeirra Inga og Friðriks
var tefld í gær og lauk
henni með sigri Inga.
Hér birtist skákin.
Hvítt: Ingi R. Jóhannsson
Svart: Friðrik Ólafsson.
Drottningarbragð.
Tarrasch vörn.
1. d4, Rf6 2. c4, e6 3. Rf3, c6
4. e3, d5 5. Rc3, Rc6 6. cxd5,
exd5 7. Be2, Rd6 8. dxc5, Bxc5
9. 0—0, 0—0 10. a3 a5 11. Ra4,
Rd6 12. Bd2, Re4 13. Bc3, Be6
14. Hcl, De7 15. Bd4, Had8 16.
Bb6, Hd7 17. Rd4, Rxd4, 18.
Dxd4, Dh4 19. f4, g5 20. Rc5,
gxf4 21. exf4, Bxf4 22. Hxf4,
Dxf4 23. Hfl, Dd2? (Tapleikur-
. inn. Eftir — Rg3! hefur svartur
ágætt tafl). 24. Dxd2, Rxd2 25.
Rxd7, Bxd7 26. Hdl, Re4 27.
Hxd5, Bc6 28. Hxa5, He8 29.
Bd3, He6 30. Ha8f, Kg7 31.
Bd4f, Rf6? 32. Hd8!, h5 33. Bf5,
og svartur féll á tíma, en staða
hans var orðin alveg vonlaus.
1. skákin fór I bið, en í gæj
sömdu keppendur jafntefli,
bannig að Ingi hefur hloíið 1V2
vinning '“vn hiá Friðriki.
ELDSVOBIIBLESUGRÓF
Kveðjuathöfn um
BRYNJÚLF DAGSSON
héraðslækni
fer fram í Dómkirjunni miðvikudaginn 6. marz kl. 10.30.
Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður að
Gaulverjabæ.
Bifreiðarferð frá Dómkirkjunni Blóm afþökkuð.
Eiginkona, börn, foreldrar og systkini.
iEB-fl
í gærkveldi brunnu tveir skúrar
inni f Blesugróf, annar til grunna,
en hinn stendur uppi, þó ónýtur
talinn. Þama er talið að um
íkveikju af manna völdum sé að
ræða.
Skúrar þessir stóðu hlið við hlið
á svokölluðum Bjarkarás. Sá skúr-
inn, sem eldurinn kom upp í, var
gamall og stóð opinn. Hafa krakk-
ar oft gengið um hann og verið
þar að leik, og má fullvíst telja,
að í honum hafi verið kveikt I
gærkveldi, hvort sem það hefur
verið af vilja gert eða ekki. Eitt-
hvert dót var geymt I honum, en
ekki vitað til að þar hafi verið
um nein verðmæti að ræða. Hinn
skúrinn var allstæðilegur og í hon-
Gífurlegar —
Framhald af bls. 16.
faranótt Iaugardagsins var m. a.
brotizt inn í Bátanaust og stolið
ýmsum verðmætum hlutum, svo
sem topplyklasetti af Willardgerð,
tveim borvélum „Black and Dett-
er“, önnur y2“ en hin y4“. Enn
fremur Horris-mælum af gas- og
súrkút, ásamt tilheyrandi slöngum
og loks talsverðu af snitttöppum
og bökkum. Lauslega áætlað nema
verðmæti þessi 15—20 þús. kr.
Aðfaranótt sunnudagsins vár
brotizt inn I hárgreið"histofuna
Greiðuna á Grettisgötu 62 og stolið
þar sem næst 200 kr. I skipti-
mynt.
Sömu nótt var brotizt inn í
Sveinsbakarí á Bræðraborgarstíg 1,
en lögreglan handsamaði þjófana
skömmu síðar þar sem þeir voru
með peningakassa fyrirtækisins á
milli sín úti á götu. Ekki er vitað
hvaða verðmæti voru I kassanum,
því þjófarnir voru ekki búnir að
opna hann þegar þeir náðust.
Farið var inn í tvo bíla aðfara-
nótt laugardagsins og stolið verð-
mætum úr þeim báðum. Ur öðrum
bílnum, sem stóð á Kvisthaga, var
stolið tösku sem hafði inni að
halda 16 staka sýnishornaskó frá
Iðunnarverksmiðjunni. Voru það
bæði karla- og kvenskór. IJr sama
bíl var annarri tösku stolið, og í
henni voru 22 karla,- og kvenpeys-
i|r frá verksmiðjunni Heklu. Úr
hinum bílnum, en hann stóð á
Grehimel, var stolið pakka með 48
glösum af 'Iavis þvottalegi og 24
naglaklippum, og öðrum pakka sem
í voru 12 dúsin af Ihárlagninga-
vökvaglösum.
Á föstudagskvöldið var stolið
Volkswagenbíl, R 8406, frá Hamra-
hlíð 7, Hans var leitað á laugardag
og fyrri hluta sunnudags, auk þess
sem lýst var eftir honum í útvarp-
inu. Um hádegisbilið í gær fannst
bifreiðin þar sem liún hafði verið
skilin eftir skammt frá lögreglu-
stöðinni f Hafnarfirði.
Tveir menn slösuðust fyrir og
um helgina. Annar þeirra, Einar
Hjálmtýsson, Flókagötu 54, hafði
fallið af stigapalli og niður í kjall-
ara Kússins Hallarmúla 5. Hann
kvartaði undan þrautum í baki og
var fluttur í Slysavarðstofuna.
Hann var ekki talinn hafa hlotiö
alvarleg meiðsli. Hinn maðurinn,
Hermann Jónsson Ölduslóð 12 í
Hafnarfirði, varð fyrir bifreið inn-
arlega á Laugavegi f gærkveldi.
Hann var heldhr ekki talinn mikið
meiddur.
Á1 laugardagsmorguninn réðst
drukkinn maður að stúlku á Lauga
veginum. Hún komst undan, en
regnhlíf stúlkunnar tókst mannin-
um að eyðileggja. Stúlkan kærði
árásina tií lögreglunnar og fór hún
á vettvang að leita mannsins. en
fann hann eklci.
Um lielgina var 2ja tonna trillu
stolið, þar sem hún lá hjá Keili
inni við EiliCaárvog.
um var geymdur bíll. Bílnum varð I gasgrímur niður í skipið, en þeim
bjargað á slðustu stundu og þó tókst skjótt að kæfa eldinn og
með • harðræðum. Það vildi til hlutust ekki frekari skemmdir af.
happs. að skammt frá skúmum er ------------------------------------
strætisvagnaendastöð og eitthvað'
af mönnum sem biðu eftir strætis-
vagninum. Urðu þeir eldsins varir,
brugðu við fljótt og hjálpuðust að
til að ýta bílnum út. Samtímis var (
Slökkviliðinu gert aðvart, en þegar :
það kom á staðinn, voru báðir:
skúrarnir alelda og varð engu I
bjargað nema rétt grindinni að öðr I
um skúrnum. Hann má þó ónýtur
teljast. Brunatjón varð talsvert.
I fyrrnótt kom eldur upp í belg-
ískum togara, sem lagzt hafði við
Grandagarð. Logaði þar í fatnaði
f litlum klefa í vélarúmi skipsins.
Slökkviliðsmenn urðu að fara með
Víðir II —
Framhald at bls. 1.
verið að veiðum í gær. Hann
lá í höfninni í Hafnarfirði með
rifna nót og var verið að gera
við hana.
Það er’nú talið að nærri 30
bátar séu komnir á þorskanóta
veiðar. Þó eru aðeins 3 þeirra,
Eldborgin, Ársæll Sigurðsson
II. og Víðir II. með raunveru-
legar þorskanætur. Hinir not-
ast við síldarnæturnar. Fiskur-
inn sem veiddist í gær er
meira en að helmingi svilfisk-
ur. Er hann meira blandaður
að stærð en áður var. Fiskur-
inn þykir mjög góður og hafa
vinnslustöðvarnar varla séð svo
glænýjan og fallegan fisk.
Netaveiðar gengu einnig bet
ur í gær en áður. T.d. komu til
‘ Hafnafjarðar Hafnfirðíngur er
var með 19 t. og Héðinn með 16.
Var það tveggja nátta fiskur.
Fréttatilkynning frá Póst- og síma-
málastjóminni.
Samkvæmt símskeyti, sem póst-
og sfmamálastjórninni barst í dag,
1. marz frá Finnlandi hefur send-
ingu og móttöku pósts verið hætt
þar á miðnætti 1. marz vegna verk
falls póstmanna. Má því búast við
töfum á' pósti til og frá Finnlandi.
Póst- og símamálastjórnln,
1. marz 1963.
Nýlátinn er á Englandi John
Richards bankamaður, sem hér er
mörgum að góðu kunnur, 57 ára
að aldri. Hann fékk aðsvif við
vinnu sína og Iézt samstundis.
John Richards dvaldist hér á
landi á styrjaldartímanuni og fékk
þegar miklar mætur á öllu, sem
íslenzkt var, og leiddi það til
traustra kynna við marga góða
vini. Hér kynntist hann eftirlifandi
konu sinni, Soffíu, elztu dóttur
Árna heitins tónskálds Thorstein-
són, Voru þau gefin saman 10. júlí
1948. Þau áttu fagurt heimili í
Liverpool þar sem John starfaði í
National Provincial Bank of Eng-
Iand, en 1955 fluttust þau til New-
castle f Staffordshire, þar sem hann
starfaði í sama banka sem fulltrúi
og endurskoðandi.
Ættingjar konu hans og margir
aðrir góðvinir munu ávallt minn-
ast Johns með hlýjum huga, en
hann var maður ljúfur og eðallynd-
ur og prúðmenni í allri framkomu.
Utför hans er gerð í dag frá
heimili hans í Newcastle f Staf-
fordshire.
.' A. Th.
IP»
Ms. Dronning
Alexandrine
kemur á ytri höfnina í Reykjavík í kvöld kl. 19.
Skipið fer til Færeyja og Kaupmannahafnar
föstudaginn 8. marz.
Skipaafgreiðsla Jes Ziemsen.
Þáttaka f síldarsöitun
til boða
á hagkvæmum stað austanlands. — Síldar-
verksmiðja á staðnum. — Sími 16821 milli
kl. 2 og 3.