Vísir - 04.03.1963, Side 7

Vísir - 04.03.1963, Side 7
7 V í SIR . Mánudagur 4. marz. 1963. MpP^w Takið ekkimark áKennedy Fyrir nokkru birti Kennedy Bandaríkjaforseti áskorun tii bandarísku þjóðarinnar um að ganga meira en hún gerir. Hann sagði að þjóðin færi allt í bílum og væri hún fyrir þjálf- unarleysi að breytast í lingerða vesalinga, sem ekkert þyldu að Ieggja á sig. Rifjaði hann upp í þessu sambandi gamla dag- skipun til Bandarikjahers um að hermenn ættu jafnan að vera í þjálfun til að geta gengið 50 mílur eða 80 km í einni lotu. Þessi áskorun Kennedys hef- ur hleypt af stað bylgju í Bandaríkjunum. Frá Atlantshafi til Kyrrahafs taka menn sig nú til tugþúsundum saman og marsera óra vegalengdir. Og ekki nóg með það. æði hefur líka gripið um sig austan hafs, sérstaklega í Frakklandi, Þýzka Iandi og Benelux-Iöndunum. Allsstaðar sjást menn þramm- andi úti á þjóðvegunum til að sýna að enn eigi þeir nokkuð til af þreki og karlmennsku. En því miður getur áskorun forsetans haft alvarlegar afleið- ingar í för með sér. Sannleikur- inn er sá, að yfirleitt þolir fólk, sem vantar þjálfun ekki að ganga 80 km í einni lotu. Áreynsla margra hefur verið svo mikil, að þeir bíða tjón á heilsunni. Þess eru nú þegar mörg dæmi, að menn hafa feng ið hjartaáfall og skemmt fæt- urna á því að eltast við áskor- un forsetans. Það eru nú aðeins fáir dagar ná sér. Þegar hann gafst upp snerist allt fyrir augum hans. Fætur hans bólgnuðu og Iiða- mótin sködduðust. Næstu daga var hann viðþolslaus af kvölum, gat ekki einu sinni hreyft fæt- urna. Hann hefur lýst í blaði Og ég hugsaði mér að láta mig falla og slasast svo ég gæti losnað þannig úr þessu án þess að litið væri á það sem upp- gjöf. Á þeirri stundu sem ég gafst upp, hataði ég alla, líka sjálfan Hérmulegar afleiðingar af dskorun forsetans síðan aldan skall yfir Dan- mörku og fór þá einn af blaða- mönnum danska blaðsins BT I göngu. Hann gafst upp eftir 56 km og var þá gersamlega upp- gefinn. særður á fótum og lend- um og svo illa farinn, að lækn- ir segir að hann verði lengi að sínu hvernig honum leið skömmu áður en hann gafst upp: „Ég mun aldrei gleyma því. Ég var að hugsa um að kasta mér í skurðinn til þess að Ijúka þessu öllu. Ég hugsaði um að svindla, taka mér far með bíl. mig fyrir að finna upp á þvi að taka þátt í keppninni." Loks segir blaðamaðurinn: „Farið ekki í svona langa göngu, ef þið éruð ekki f þjálf- un. Takið ekki mark á Kenne- dy, hann hefur ábyggilega ekki reynt sjálfur að ganga 80 km.“ Hér sést danski blaðamaðurinn Erik Alexander, við vegarbrúnina, þar sem hann hafði hnigið saman og gefizt upp eftir 56 km. göngu. . Strontium \ mat tvöfaldast Birt hefur verið í Washington skýrsla, þar sem segir, að stront- iuminnihald matvæla, sem , seld voru í verzlunum Washington, höfuðborg landsins, i ágúst á s.I. ári, hafi verið tvöfalt meira en árið áður. Það er opinber nefnd, sem hefir umsjá með matvælum og lyfjum, sem framkvæmt hefir athuganir þessar og komizt að ofangreindri niðurstöður. Segir í skýrslu nefnd arinnar, að ungt fólk, 19 ára, muni daglega hafe neytt 25,9 mikrom- ikrocurie af þessu hættulega úr- fallsefni frá kjarnorkusprengjum. Sé það um það bil 13% af því magni, sem sérfræðingar telja heil brigðum manni óhætt að neita dag lega. Við samsvarandi rannsóknir á strotiummagni í matvælum 1961 reyndist það 6% af leyfilegu hámarki. Rannsóknir fóru einnig fram á s.i. sumri í fjórum öðrum stór- borgum Bandaríkjanna og voru töl urnar þar þessar: í St. Louis 16,5% af leyfilegu magni, í Minneapolis 15,8%. I Atlanta 9,8% og í San Francisco 6,4% af því magni, sem óhætt er að neyta. Ekki eru til tölur til samanburðar varðandi þessar borgir frá árinu 1961. þ»0ai? mun«U atmoalinu þlnu, #9. oa keypö Hantfa þþp Hér sjáið þið nýjustu gerð heilla óskakorta. Við áttum leið fram hjá Týli í Austurstræti og kom- um þá auga á þetta skemmti- lega kort úti í giugganum. Við nánari athugun kom í ljós að þarna er að fá ,um 1C tegundir korta með broslegum mynduni og hlægilegum textum. Mynd- irnar eru teiknaðar af erlendum teiknuruni, en Atli Már gekk að öðru leyti frá kortunum. VARHUGAVERÐ KENNING Fimmtudaginn 17. janúar s. 1. Iagði Vísir nokkrar spurningar fram fyrir bæði eldri og yngri kynslóðina varðandi æskulýðs- mál. Þar kemur fyrir ein setn- ing, sem margir myndu telja mjög varhugaverða setningu. — Setningin er þessi: „Til dæmis væri heppilegt að leyfa sölu bjórs og mundi það án efa draga úr vínneyzlu hérlendis". Á hverju byggir Jóhann Briem þessa öruggu trú sína um gagn- semi aukinnar ölsölu? Vafalaust á hann við sterkan bjór. því veikur er til í landinu og seldur hverjum sem hafa vill. Okkur, sem um áratugi höfum reynt að kynna okkur sem bezt áfengis- mál margra landa, rekur i roga- stanz, þegar við lesuni slíkar fullyrðingar ungra manna hér. Nú ætla ég ekki að þreyta blaðið né heldur hinn unga mann á löngu máli um þettá, en svo einkennilega vil! til. að ég er nýbúinn að þýða smáklatjsu úr norsku blaði og ætlaði að nota hana við annað tækifæri. Fyrirsögnin á greininni í norska blaðinu er þessi: „Ölið er hættu- legra en brennivínið". Það er lögreglufulltrúi I Staf- angri, Bjarne Mellegaard að nafni, sem fullyrðir þetta. Verk þessa lögreglufulltrúa er að með höndla afbrotamál. í fyrirlestri, sem hann flutti fyrir skömmu, segir hann: að eftir síðari heims styrjöldina hafi afbrotum og glæpum í landinu fjölgað um 40 af hundraði. og langmest hafi aukningin verið í aldursflokkun- um 14—20 ára, en á þessum aldri drekki unglingar helzt ekki sterk ari drykki en öi, þeir sitji í veit- 'ingahúsunum og drekki ölið. Langflest afbrot þeirra séu svo drýgð t ölvunarástandi, og eink- anlega þau alvarlegustu, svo sem ofbeldi og annað því líkt. Lögreglufulltrúinn segir enn fremur, að 40 þúsund afbrot og glæpir .áu rann.sökuð á árinu. en tölu hinna óupplýstu viti eng- inn. 30—35 af hundraði allra þessara afbrota séu drýgð undir áhrifum áfengis. Og í sambandi við ungu kynslóðina segir hann, að ölið sé hættulegra en brenni- vínið. Hér skal svo aðeins bætt við þessu: í nýju plaggi, sem sænsk fréttaþjónusta varðandi þessi mál sendir út, segir: að „tilraunin til að fá fólkið til að snúa sér meira frá sterku drykkjunum til hinna veikari, hafi gefizt þannig, að vínneyzlan hafi tvöfaldast, en neyzla sterku drykkjanna standi í stað eins og hún hafi verið árin 1951—1955“ Ennfremur: að „neyzla sterka ölsins hafi aukizt mjög á kostnað veikari ölteg- undanna. Þannig er sagan frá Noregi og Svíþjóð. Danmörk er öldrykkju- land. Danir drekka fremur lítið sterku drykkina, en þamba ölið svo ákaft, að áfengisneyzla þeirra, reiknuð i 100% áfengi, er ianghsést allra Norðurlanda Þeir eiga metið og það er ölinu að þakka. Vestur-Þýzkaland er einn ig öldrykkjuland, og það er kom ið á bólakaf í ofdrvkkju. og eru skýrslur þaðan óglæsilegar. Nægileg vitni væri hægt að leiða frani •' ’æssu máli. Pétur Sigurðsson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.