Vísir - 04.03.1963, Page 9

Vísir - 04.03.1963, Page 9
VIS IR . Mánudagur 4. marz. 1963. \ ÚR BRÉFUM Frú Elísabet Abéla. Frú Elfsabet Abéla, dóttir dr. Jóns E. Vestdals fram- kvæmdarstjóra Sementsverk- smiðjunnar dvaldi nokkurn tíma suður í Togo f Afríku sumarið 1961. Úr þeirri ferð skrifaði hún foreldrum sfnum í Reykjavík mörg bréf þar sem hún lýsir því sem fyrir augun ber, borgum og bæj- um, mannfólki og dýrum, þjóðlífi og siðvenjum, Margt af því er svo frábrugðið öllu, sem við íslendingar þekkjum, að Vísir fór þess á Ieit við dr. Jón E. Vestdal að hann leyfði birtingu á nokkrum bréfum frá dóttur sinni og þeim mun fremur sem frú Elísabet segir mjög lifandi og skemmtilega frá. Þetta Ieyfi hefur dr. Jón góðfúslega veitt. Um för Elísabetar og tildrög ferðar hennar suður f þetta fjar læga Afríkuríki er það annars að segja að hún er gift frönskum manni, Roger Abéla, sem er Iyfjafræðingur og jafnframt líf- efnafræðingur að menntun. Árið 1961 hafði hann nýlokið prófi i við háskólann í Montpellier og var þá byrjaður að undirbúa doktorsritgerð, sem hann ver væntanlega um þessar mundir f heimalandi sfnu. að dvelja án sérstakrar áhættu fyrir •heilsuna, jafnvel líka á Is- landi! Þetta réði úrslitum um það að frú Elísabet ákvað að fara á eftir bónda sínum til Togo, enda fékk hún ókeypis far fyrir sig og soninn fram og til baka, auk þess sem þau hjónin höfðu hús til eigin afnota, einkabifreið og loks tvo þjóna. Þann 21. júlf lagði frú Elísabeí upp með son sinn flugleiðis frá Nizza áieiðis til Koronon, þar var skipt um flugvél og haldið til Lomé höfuðborgar Togo, en þaðan var skammt að fara til Palime, sem átti eftir að verða dvalarstaður hinnar fslenzku konu, bónda hennar og sonar um.nokkurra mánaða skeið. Og hér hofst frásögn frú Elisabetar sjálfrar. 25. júlí 1961. TjAÐ fyrsta, sem ég var vör við, er ég steig úr flugvél- inni í Cotonou, var óskaplegur raki f Ioftinu. Það var eins og að ég væri komin f kalt gufubað. Maður fór strax að kófsvitna og fötin límdust við líkamann. Ekki var mjög heitt í veðri, um 20— 25° C, lítið meira en heima á íslandi á sumrin. Sama var um Lomé að segja, enda Iiggja báð- ar borgirnar við hafið og eykur það enn meira á rakann. Á flugvellinum f Lomé beið Roger eftir mér ásamt Sylvestre, kokkinum okkar, sem komið hafði með honum frá Palimé. Var auihingja kokkurinn alveg furðu Iostinn þar sem þetta var í fyrsta sinn, sem hann sá flug- ugar, húsin ötuð leir og sátu svertingjarnir f leðjunni. Engin steinsteypt gata, nokkur hús steinsteypt, en flest öll húsin moldarkofar með stráþökum. Varð mér heldur undarlega við, er ég hugsaði til þess, að í þess um kofum byggi fólk. Það hlýt- ur að vera heldur óþægilegt að sofa f leðjunni, en svertingjarnir liggja á strámottum á jörðinni. Þetta var þó versti tíminn, aðal- rigningatfmi ársins. Þegar sólin skfn er sama hvort maður sefur úti eða inni. Við komum á hótelið, þokka- legt hótel, herbergin öll kæld. Allt er hér öfugsnúið. Ef manni er of kalt f herberginu og vill hita upp, opnar maður bara gluggana og hitinn streymir inn. Við borðuðum góðan mat á franska vfsu. Kjötið var að vfsu seigt eins og leður, en að öðru leyti bragðgott. Við litum dálftið á borgina, þar var heldur lítið að sjá, ótrúlega óhreint og for- ugt, götur sums staðar alveg undir vatni, húsin öll leirug. Hverfi Evrópubúa var aftur á móti glæsilegt útlits, nýtfzku hús með aldingörðum og öðrum þægindum. Við litum á markaðinn. Þai var á boðstólum allt milli himins og jarðar, allt frá skrúfum upp f nærklæði og innan um banan- ar, kókoshnetur, ananas og aðrir góðir ávextir. Appelsfnur og grapefruit eru hér grænir á lit, en ákaflega safamiklir og góðir. Við dvöldum f Lomé um nótt- ina, þar sem rignt hafði um dag- inn og Roger þorði ekki að leggja síðladags upp í ferðina tii Palimé, því nóttin skellur fyrir- varalaust á, um sex leytið. með ljóskerum og benzínlömp- um. Ég leit inn í einn kofann um daginn. Þar er heldur fátæklegt um að litast, einn eða tveir stól ar, strámottur til að sofa á, fyrsta, sem ég varð vör við hér hjá hvítum mönnum er áfeng- isdrykkjan. Byrja þeir kl. 10 á morgnana á því að fá sér wiský sjúss og kl. 10 að kvöldi eru íslenzkrar konu í TOGO vél og líka f fyrsta sinn, sem í bíti næsta morgun lögðum hann sá hafið. Þetta var allt við svo af stað. Eftir tveggja og meira en nóg fyrir hans Imynd- unarafl. Um leið og við komum Strax að loknu námi vildi Roger Abéla taka að sér starf sem væri vel launað og gæfi mikið í aðra hönd. Það tækifæri bauðst þegar honum gafst kost- ur á að taka að sér forstöðu lyfjabúðar í Palime f Togo. Eig- andinn er franskur maður, en hann vildi fá sér frf frá starfi um skeið og dvelja nokkra mán- uði f Evrópu. TTINN ungi og nýútskrifaði lyfjafræðingur tók þessu boði með þökkum. En þá kom til kasta Elísabetar, eiginkonu hans, hvort hún treystist til að fylgja bónda sfnum eftir suður f hitabeltið. Hún var næsta á- hyggjufull hvort sú ferð væri ekki of áhættusöm fyrir hana sjálfa og þó einkum fyrir árs- gamlan son þeirra hjóna, sem heitir Jón f höfuðið á afa sfnum. Hún Ieitaði þvf bæði ráða for- eldra sinna heima á Islandi og eins heimilislæknis sfns 1 Frakk landi. Sérstaklega bar hún kvfð- boga fyrir malarfu og öðrum hitabeltissjúkdómum, en læknir- inn brosti aðeins að áhyggjum frúarinnar og sagði að nú orðið væri alls staðar á jörðunni hægt til Palimé hljóp hann út f bæ til að segja frá stóra fuglinum, sem hafði sezt á jörðina! í Lomé rigndi, götumar for- Frfmerki frá Togo. hálfrar stundar akstur vorum við komin til Palimé, dvalarstað- ar okkar. Má með sanni segja, að göt urnar heima séu glæsilegir vegir f samanburði við þessa hestvegi sem hér eru. Rigningin hafði sums staðar gert stóreflis skörð og holur í veginn og tvisvar sinnum sátum við föst f leðj- unni, svo að ýta þurfti bílnum og moka frá honum. Til allrar hamingju var nóg af hjálpfúsum svertingjum, sem spruttu allt f einu út úr skóginum, er stöðva var. Um landslagið er það að segja, að sums staðar-líkist það mjög frönsku landslagi, lítið um reglulegan frumskóg, en þó sést á pálmum, bananapálmum, kók ostrjám og öðrum slíkum gróðri, að komið er í hitabeltið. DALIMÉ or allstór bær, um 10 þús. íbúar. Ein steypt aðalgata, þar sem við búum, og hitt svo flest allt typiskir svert- ingjakofar. Allt er mjög svo frumstætt. Við erum einu mann- eskjurnar í þorpinu, sem höfum rafmagn, aðrir lýsa upp hjá sér borð, ef vel stendur á. Og hér eru það konurnar, sem vinna alh.n guðslangan daginn. Eru flestar með eitt eða tvö börn á bakinu og nokkra yrðlinga, f viðbót, sem ganga í halarófu á eftir. Bera þc.r allt á höfðinu og hefi ég stundum séð þær ganga með kassa fulla af kolum, stóreflis bananaklasa og ýmis konar aðra hluti, sem þær setja hvern ofan á annan, allt þetta á höfðinu án þess að styðja nokkuð með höndunum. Hlaupa þær, beygja sig og gera allar kúnstir svona á sig komnar. Þær eru flestar berar niður að mitti, en vefja svo dúk í fallegum skærum litum um mjaðmirnar, og nær hann alveg niður að jörð. Einstaka er klædd á evr- ópska vfsu, en það er sjaldgæft. Karlmenn klæðast skikkjum, lík- um þeim, sem Arabar nota, nema hvað þær eru marglitar og skærar á lit. Um íbúðina er það að segja, að hún er vel innréttuð, með þæg- indastólum, bar. sem er vel full- ur af wiskyflöskum og öðru slíku góðgæti, bridgeborði, rúll- ettu og öðru i þeim stíi. Er auð- velt að sjá, hvernig menn drepa tímann hér um slóðir. Það sjússarnir orðnir ærið margir. Evrópubúar eru hér ákaflega opnir fyrir og sækjast auðsjáan lega eftir félagsskap annara hvítra manna. Við erum boðin út svo að segja á hverju ein- asta kvöldi, og ménn koma jafn- oft til að fá whiskysjússinn klassíska. Hér er eitthvað um Frakka, Júgóslava — eru að byggja rafmagnsveitu, — Ame- ríkana — sjálfboðaliðar, sem byggja skóla hér, — Rússa — pólitfskir flóttamenn, — Líban- onbúar o. s. frv. Þetta eru allt undarlegir fiskar, hálffullir synda þeir allan daginn og eru að sálast úr leiðindun). Það er alveg visst mentalitet hjá þess- um mönnum, þeir hafa fullar hendur fjár og sóa því eins og ekkert væri, enda þolir enginn að vera hér til lengdar. Skil ég þá vel. Þegar nýjabrumið fer að fara af, er lftið eftir, sem getur fyllt huga manns. Beztu kunningjar okkar eru lögreglustjórinn á staðnum og kona hans, sem koma frá Mont- pellier og eru ákaflega geðsleg. Eiga þau eina dóttur, þriggja ára gamla, sem er orðin góður leik- félagi Jóns litla. Framhald á bls. 10.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.