Vísir - 04.03.1963, Side 16
■
Utlit fyrir að Ingi vinni
í gær tefldu þeir aðra um Reykjavíkurmeist- Ólafsson og Ingi
skákina í einvígi sínu aratitilinn, þeir Friðrik hannsson. Skák
R. Jó
þessi
Frá einvigiskeppni þeirra Friðriks og Inga. Einvígi þeirra er nú mjög spennandi og vekur athygli í skákheiminum.
vakti feikilega athygli
og var allspennandi, en
henni lauk með því að
Friðrik Ólafsson gaf
skákina eftir 33 leiki. Þá
hafa þeir Friðrik og Ingi
samið um jafntefli í I.
skákinni, sem hafði far-
ið í bið.
Eftir þetta er svo komið að
Ingi hefur miklu sterkari stöðu
en Friðrik í einvíginu. Er hann
með 1 y2 vinning móti hálfum
vinning Friðriks. Er víst að
fylgzt verður með seinni tveim
ur skákunum af mikilli athygli
en til þess að vinna sigur í ein-
víginu þyrfti Friðrik að vinna
þær báðar.
Skákin í gær, sem Friðrik
gaf, varð ailflókin um tíma. —
Friðrik fékk verri stöðu en
reyndi að koma sér út úr erfið-
leikunum með því að hefja
sókn, en það kom í ljós, að sú
sókn var eigi nægilega undir-
byggð. Skapaðist taisverð
Framh. á bls. 5.
Frumsýningu
frestuð
Leikfélag Reykjavíkur, sem á-
kveðið hefur að frumsýna leikrit-
ið ,.,Eðlisfræðingamir“ eftir Fried-
rih Dtirrenmatt á miðvikudags-
kvöldið, hefur orðið að fresta sýn
ingunni til n.k. sunnudags. Ástæð
an fyrir þessari frestun en inflú-
enzufaraldur sá, sem nú herjar
á Reykvíkinga og hefir lagt nokkra
leikara að velli — um sinn.
Landhelgisgæzlan og Hainarsjóður
krefjast fullra björgunariauna
Sjóréttarrannsókn í
björgunarmáli þýzka
togarans T r a v e frá
Kiel lauk í Vestmanna-
eyjum í fyrrakvöld. Eins
og blaðið hefir skýrt frá
áður tók þessi togari
niðri á grunni við Eyjar
í ofsaveðri í vikunni sem
leið og tókst lóðsinum
frá Vestmannaeyjum,
sem er hafnsögubátur-
inn þar, og björgunar-
skipinu Albert að ná
honum út aftur og draga
Möguleikar á þremur erienéum
lánum til að Ijúka Bændahöllinni
Eins og Vísir skýrði frá á dög
unura, bauðst enskur fjármála-
maður, L. Ashley frá London,
til þess í vetur að lána 78
milljónir króna til 20 ára með
6y2% vöxtum til að fuligera
Bændahöllina, og hefði þá lána-
þörf þessarar miklu byggingar
verið fullnægt. Nú hefur hins
vegar komið nokkur afturkipp-
ur í þetta tilboð, Ashley vill
stytta lánstímann niður í 15 ár.
Samtímis hefur það gerzt, að
opnazt hafa möguleikar gegnum
íslenzkan banka, á þýzku iáni
til Bændahallarinnar, en það
mál er í deiglunni ennþá. í
þriðja lagi mun Bændahöllinni
fyrir alllöngu hafa borizt tiiboð
um annað þýzkt lán fyrir milli-
göngu Gísla Sigurbjörnssonar
forstjóra, en því hefur ekkl ver
ið tekið enn sem komið er.
Enski fjármáiamaðurinn hafði
upphaflega krafizt bankaábyrgð
ar og bankatryggingar hjá rík-
inu í sambandi við tilboð sitt,
og þessar ábyrgðir tókst bygg
inganefnd Bændahallarinnar að
útvega. Dráttur varð þó á samn
ingsgerð, m. a. vegna þess að
Ashley var veikur í nokkrar
vikur. Mörg bréf hafa farið á
milli, án þess að til lántök-
unnar yrði formlega stofnað, og
fyrir síðustu helgi kom bréf frá
Ashley, þar sem hann vill
breyta lánskjörunum, stytta
lánstímann úr 20 niður í 15 ár.
Forráðamenn Bændahallarinnar
geta því ekki á þessu stigi máls
ins sagt Um það, hvort af þess-
ari lántöku verður. Það breytir
miklu til hins verra, að stytta
lánstímann og þyrfti þá að nýju
að fara fram á ríkisábyrgð, sem
veitt var með 20 ára lánstíma
fyrir augum. Þar að auki er svo
til athugunar hinn nýi mögu-
Ieiki, sem áður var nefndur, á
þýzku láni fyrir milligöngu ís-
lenzks banka. Þannig standa þá
sakir, að möguleikar kunna að
vera á þremur lánum, en ekk-
ert hefur verið ákveðið. •
«>-
til hafnar í Vestmanna-
eyjum við illan leik í
ofsaveðri og stórsjó.
Freymóður Þorsteinsson, sett
ur bæjarfógeti í Eyjum, sagði
Vísi í morgun að Hafnarsjóð-
ur Vestmannaeyja og Landhelg-
isgæzla rlkisins hefðu í sjórétt-
inum gert kröfu til fullra björg-
unarlauna og að togarinn yrði
kyrrsettur þar til trygging
hefði verið sett fyrir þeim, Ver-
ið er að meta skipið og eftir
því mati fer um upphæðir
þeirra björgunarlauna, sem kraf
izt er.
Kafararannsókn leiddi í ljós
fyrir helgina að fjöðrin er farin
af stýri togarans, hællinn lask-
aður eða farinn, eitt skrúfu-
blað af þremur er bogið og kjöl
ur skipsins beyglaður og klesst
ur á þremur eða fjóruip stöð-
um. Nánari rannsókn fer nú
fram á þessum skemmdum.
NYR „SPEGILL
n
Ákveðið hefur verið að hefja
útgáfu skopblaðs f Reykjavík.
„Vlð vitum að fólkið saknar
Spcgilsins“, sagði Tómas Karls
son, blaðamaður, einn af útgef-
cndum blaðsins ,þess vegna
prófum við þetta“.
Búið er að ráða þrjá teikn
ara, Sigurjón Jóhannsson, Ragn
ar Lár og Birgi Bragason til að
teikna f blaðið. Svo eru 9 góðir
húmoristar búnir að lofa að
skrifa í blaðið.
Ekki er ennþá ákveðið hvað
blaðið á að heita. Útgefandi
Spegilsins, Páll Skúlason, mun
ekki vilja láta nafn blaðs síns
af hendi, nema fyrir nokkra
upphæð, sem hinir nýju útgef-
endur hika við að greiða. Kem
ur þá til álita að nefna blaðið
Spéspegilinn, eða einhverju
öðru nafni, sem segir til um
efni blaðsins.
Gífurlegar annir hjá
lögreglunni
Lögreglan i Reykjavík telur að
síðasta helgi hafi verið einhver sú
annasamasta í sögu hennar. a. m.
k. um Iangt skeið og allt frá þvi
á föstudagskvöld og þar til f nótt
ærið að starfa, einkum þó vegna
öivunar, sem vart hefur orðið meiri
í Reykjavík en um venjulega helgi.
Auk þess hefur talsvert verið um
innbrot, ryskingar og aðra óknytti.
Lögreglan hefur tjáð Vísi, að
bæði fangageymslan í kjallara Lög
reglustþðyarinnar og eins í Síðu-
múiá háfi yfirfyllzt allan þenna’n
tíma og iðulega orðið að hleypa
út úr þeim til að koma öðrum enn
drukknari inn. Frá því á föstudags
kvöld og þar til f gærkveldi höfðu
92 menn verið fluttir til geymslu
á þessa tvo staði og í nótt var
einnig mjög mikið um ölvun f bæn-
um, þótt það væri eitthvað minna.
Þá tók lögreglan 9 ökumenn ölv-
aða við akstur aðfaranótt laugar-
dags og sunnudags og er það meiri
„uppskera" en venjulegt ,er á jafn
skömmum tíma. Einn þessara
manna var tekinn fyrir ölvun við
akstur báðar næturnar. Alls var
lögreglan f gær búin að taka 63
menn fyrir ölvun við akstur frá
s. 1. áramótum.
Töluvert var um ryskingar í bæn
um þessar nætur og a. m. k. tveir
eða þrír menn voru rotaðir. Einn
þessara manna var barinn niður í
porti bak við veitingahúsið Röðul.
Hann slasaðist eitthvað og var flutt
ur í Slysavarðstofuna. Þar lá hann
það sem eftir var nætur. Þá réðust
þrír ungir piltar á lögregluþjón úti
á götu og börðu hann illa. Pilt-
arnir náðust og voru settir í
geymslu. j
Mikil brögð voru að innbrotum
í Reykjavík bæði aðfaranótt taug-
ardags og sunnud. og sums staðar
verulegum verðmætum stolið. Að-
Framh. á bls. 5.