Vísir - 07.05.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 07.05.1963, Blaðsíða 3
VlSIR . Þriðjudagur 7. maí 1963, 3 Til allra hamingju þá eru þeir að syngja. Ef, ekki, þá yrði því ekki neitað, að þeir kæmu all einkennilega fyrir En svona verða menn við söng, og það ekki ómerkilegan söng. Þeir eru meðiimir Karlakórs Reykjavíkur og halda um þessar mundir myndarlegar söngskemmtanir i Austurbæjarbíó. k Jafnvel blessuð litlu börnin hrifust af söng kórsins á æfing- unni og tóku undir. Snáðinn á miðri myndinni tók sig meira segja til og tók að sér stjórn kórsins. Sennilega njóta fá sönglög meiri hylli um þessar mundir en lögin úr söngleiknum „Saga Vesturbæjarins“, „West side story“. Hafa lögin gengið eins og faraldur um gjörvallan hinn vestræna heim og notið sivax- andi vinsælda. Innlendir söng- kraftar hafa að sjálfsögðu num- ið sum þessara laga, og þessa dagana efnir Karlakór Reykja- vikur til söngskemmtana og hef ur nokkur „Vesturbæjarlög“ á dagskránni. Er ekki ósennilegt að margan manninn fýsi að heyra þann ágæta karlakór kyrja þessi víðfrægu lög, Margt annað er að sjálfsögðu á söngskrá kórsins girnilegt að heyra og á að hlýða. Má þar tll nefna negrasöngva og tvo þætti úr „Cantiones duarum vocum“. Söngstjóri kórsins er Jón S. Jónsson, en þetta eru fyrstu opinberu samsöngvarnir, sem hann stjómar hjá karlakómum. Einsöngvarar eru Guðmundur Jónsson og Eygló Viktorsdóttir, en sú síðarnefnda tilheyrir, vel á minnzt, ekki kómum að stað- aldri. Ljósmyndari Vísis og blaða- maður bmgðu sér í fyrradag á æfingu hjá kórnum, en fyrsta söngskemmtunin fór fram í gærkvöldi í Austurbæjarbíói. Þar munu söngskemmtanirnar verða haldnar, m. a. í kvöld og annað kvöld, og þar fór æfingin fram, þar sem þessar myndir * voru teknar. Hér sézt söngstjórinn Jón S. Jónsson, stjórna, en í baksýn eru einsöngvararnir, Eygló Viktorsdóttir og Guðmundur Jónsson. ◄ Sú nýbreytni er á söng- skemmtan þessari að ieikið er undir á allmörg hljóðfæri. Hljóð færaleikararnir sem eru til að- stoðar ,sjázt hér á myndinni, tal ið frá vinstri, Finnur Eydal, Hilmar Hilmarsson, Gunnar Sveinsson og Guðmundur R. Einarsson. — Undirleikari á m'anó er Guðjón Pálsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.