Vísir - 15.05.1963, Side 2
2
V í SIR . Miðvikudagur 15. maí 1963.
Óvænt frammistaða — Ungverji að baki sigrum
Þróttar — Sterkur sóknarleikur — Hver skorar mark
númer 1000? — Nýtt lið í 2. deild — Knattspyrnufé-
lagið Dímon — 1. deild hefst á uppstigningardag.
Reykjavíkurmótið í
knattspyrnu er um þess
ar mundir einstaklega
spennandi og tvísýnt, en
Valur og Þróttur munu
keppa um sigursætið á
sunnudag, en fyrir mót-
ið voru þessi tvö lið
ekki talin álitleg í keppn
inni, en stærri nöfnin,
Bikarmeistarar og
Reykjavíkurmeistarar
KR og íslandsmeistarar
Fram, taldir sigurstrang
legir í mótinu. Leikir
Fram og KR fara báðir
Spennandi augnablik við Þróttarmarkið. Guttormur teygir sig eftir
boltanum, en Eyjólfur Magnússon virðist hafa skallað frá.
fram eftir að úrslit
verða kunn, hinn fyrri
daginn eftir úrslitaleik-
inn, en hinn síðari síð-
ast í þessum mánuði.
Knattspymuliðin hafa í vor
sýnt aligóða knattspyrnu og sízt
verri en áður. Eitt lið hefur þó
komfð á óvart og vakið mikla
athygli fyrir leik sinn, en það
eru leikmenn Þróttar, ungir leik
menn flestir hverjir, en hafa
lengi haldið hópinn og unnu m.
a. landsmót 2. flokks í hitteð-
fyrra í tveim spennandi úrslita-
leikjum gegn Vestmannaeyjum.
Þróttararnir hafa sýnt, svo
ekki verður um villzt, að í þeim
er góður efniviður, sem enn er
ekki fullmótaður, enda þótt hinn
ungverski þjálfari, Simoniy Gab-
or, hafi þegar dregið margt at-
hyglisvert fram í liðinu.
Sérstaklega hefur sóknar-
Ieikur liðsins vakið athygli, en
þar hefur verið kastað fyrir borð
þeim ósið að reyna í tíma og
ótíma að leika inn að markteig
og skjóta þaðan, því Þróttarar
hafa skorað mikið af mörkum
úr skotum langt að.
Valsmenn verða án efa með
harðsnúið lið í úrslitunum á
sunnudaginn og eru þar margir
leikmenn með haldgóða reynslu
og vöm Vals er yfirleitt mjög
sterk, þótt leikmenn hennar sÖu
e. t. v. ívið þyngri á sér nú en
áður.
Á sunnudaginn kemur munu
Valsmenn að öllum líkindum (þó
ekki víst), skora 1000. — eitt
þúsundasta •— markið, sem
meistaraflokksmenn í Val hafa
skorað frá stofnun félagsins 11.
maí fyrir 52 árum síðan. Er það
miðað við alla opinbera móta-
leiki, afmælisleiki, gestaleiki við
erlend lið o. s. frv. Verður ef-
Iaust sótt hart eftir að skora
það merkilega mark, enda hefur
heyrzt að aðalstjórn félagsins
muni heiðr.a þann sem skorar.
Mjög spennandi var fyrir þá
fáu, sem vissu um þetta, er Val-
ur lék gegn Fram í síðustu viku
en þeim leik lauk án marka, en
hvað eftir annað voru Valsmenn
nær búnir að skora, en aldrei
virtist hægt að rjúfa þennan
1000-marka-múr.
Þróttarar munu helga sig því
verkefni að vinna 2 .deild, þeg-
HAUKUR ÓSKARSSON
MILLIRlKJALEIK
DÆMIR
í fyrsta skipti bregður is-
lenzkur knattspyrnudómari sér
út fyrir landsteinana í
því skyni að dæma milliríkjaleik
og hefur dómaranefnd K.S.Í. út-
nefnt hinn kunna knattspyrnu-
dómara Hauk Óskarsson.
Sem kunnugt er af fréttum
Ibárst K.S.I. beiðni frá norska
knattspyrnusambandinu um að
það útnefndi íslenzkan dómara
til þess að dæma landsleik milli
Noregs og Skotlands, sem
verður Ieikinn í Bergen 4. júní
n. k. Óskaði stjórn K.S.Í. «ftír
því að dómaranefnd sambands-
ins útnefndi dómara og hefur
nefndin i tilnefnt Hauk Ósk-
arrsson, en K.S.Í. á eftir að
staðfesta það.
Haukur tók fyrst dómarapróf
í knattspyrnu fyrir tæpum 30
árum, en milliríkjadómararétt-
indi fékk hann fyrir um það bil
þremur árum. Fyrstur manna
öðlaðist þessi réttindi Guðjón
Einarsson, en nú hafa þrír ís-
lenzkir dómarar réttindi til þess
að dæma landsleiki í knatt-
spyrnu.
Haukur er kunnur af fleiru
meðal knattspyrnumanna og
unnenda en dómarastörfunum.
Hann var á sínum tíma í
fremstu röð Islenzkra knatt-
spyrnumanna og hefur skorað
mörg mörkin fyrir sitt gamla
knattspyrnufélag, Víking.
Þegar blaðið hafði tal af
Hauk í morgun sagðist hann
þakka dómaranefnd K.S.I. það
traust sem hún hefði sýnt hon-
um með því að útnefna hann
og kvaðst hann vona að allt
gengi vel.
BBSEXEBXEsssasœaarsaæa
Jens Karlsson hafði „pressað“ Hreiðar og þegar hinn síðamefndi
„hreinsaði“ frá marki sínu, hrökk boltinn af afli af Jens og I fallegar
(að Þróttaraáliti) boga inn I mark KR, en Gísli var staðsettur of
framarlega, eins og sjá má.
ar 1. deild lýkur og er haft eft-
ir formanni félagsins, Jóni Ás-
geirssyni, að það sé verkefni
númer eitt ei,ns .og er. Önnur
deild leikur tvöfalda umferð, —
heima og heiman, Þróttur er I
riðli með ísafirði, sem féll I
fyrra úr 1. deild, Hafnarfirði og
Siglufirði. Hinn riðilinn skipa
Sandgerði, Vestmannaeyjar, Vík
ingur og Knattspymufélagið
DÍMON, sem mun vera úr Rang
árvallasýslu, en alls ókurmugt
félag. Er ekki ósennilegt a?
Þróttur og Vestmannaeyjar berj-
ist til úrslita, þótt margt geti
gerzt sem kemur I veg fyrir a?
svo verði. Keppni I 2. deild hefsi
undir lok malmánaðar.
í 1. deild verður enn meir<
um leiki en I 2. deild. Þar far;
Framh. á bls. 6