Vísir - 15.05.1963, Qupperneq 6
6
V1SIR . Miðvikudagur 15. maí 1963.
Hlaut opið fótbrot
Þrjú slys urðu í Reykjavik i gær-
dag. Eitt þeirra þó mest, þar sem
12 ára telpa hlaut opið fótbrot i
umferðarslysi.
Slys þetta varð á Kaplaskjólsvegi
kl. 12 á hádegi I gær. Telpan, Ragn-
hildur Albertsdóttir, Seljavegi 29,
var á reiðhjóli og var að bera út
blöð. Lenti hún fyrir bifreið, sem
kom akandi eftir Kaplaskjólsveg-
inum, var bfllinn á austurleið, en
telpan á leið vestur götuna. Lög-
reglan rekur orsök slyssins til þess
að telpan reiddi dagblöðin fyrir
framan sig á hjólstýrinu, þannig
að henni fipaðist og missti stjórn
á hjólinu og stýrði þvert út á göt-
upna um lelð og bifreiðina bar að.
Telpan skall á bifreiðinni og féll
í götuna. Hlaut hún opið brot á
vinstri fæti og var flutt í slysa-
varðstofuna, en sfðan f Landspft-
alann, þar sem hún liggur nú.
1 sambandi við þetta slys vill
lögreglan í Reykjavfk vekja at-
hygli unglinga og annarra, sem ferð !
ast á reiðhjólum, að það getur ver I
ið mjög varhugavert að reiða mik-
ið af pinklum fyrir framan sig á
reiðhjólinu. Ættu foreldrar einnig
100 millj. —
Framhald af bls. 1.
hefir verið of léleg nýting hrá-
efnis og er nú verið að setja
niður soðvinnslutæki, nýjan sfld
arsjóðara, mjölskilvindu og
gufuketil. Áhugi er fyrir bygg
ingu síldarverksmiðju í Ólafs-
firði.
Á Vopnafirði er verið að reisa
mjölhús og bæta vinnslukerfi
verksmiðjunnar þar með nýrri
mjölskilvindu og nýjum þurrk-
ara. Þessi verksmiðja vann úr
224 þúsund málum f fyrra, eða
vörur að brúttóandvirði 70 millj
króna, og er nú að bæta nýtni
hráefnisins hjá sér eins og
Rauðka.
Norðfiarðarverksmiðjan er
einnig að skapa skilyrði hjá sér
til betri nýtinear hráefnis, hún
vann úr 216 búsund málum f
fyrra og er nú að fá sér nýja
soðburrkara og byggja nýtt
miölhús.
Lftil verksmiðja var á Fá-
skrúðsfirði frá 1951. Hún brann
en var endurbyggð f fyrra og
stækkuð upp í 1500 mála af-
köst. Sú verksmiðja tðk til
starfa seint f iúlf s. 1. ár og
vann úr 60 búsund málum. Þar
er nú verið að byggia síldar-
geyma, koma unp miölskilvind-
um og auka nýtinguna.
Nýju verksmlðtumar eystra.
Verið er að reisa nýjar verk-
smiðiur á Borgarfirði eystra og
Breiðdalsvfk og hafa verið stofn
uð hlutafélög um rekstur
þeirra. Hvor verksmiðja um sig
hefir 500 mála afköst og eru
þessar verksmiðjur fyrst og
fremst byggðar með það fyrir
augum að örva síldarsöltun og
atvinnu almennt á viðkomandi
stöðum, eiga að taka við af-
gangi frá þeim skipum, sem
koma inn með sfld til söltunar.
Engin verksmiðja var fyrir á
Breiðdalsvfk en lftil fiskimjöls-
verksmiðja á Borgarfirði.
Tvær verksmiöjur f Eyjum?
Mikill hugur er í Vestmanna-
eyingum á þessu sviði. Fiski-
mjölsverksmiðjan þar hefir get-
að brætt síld sfðan 1960 en nú
er verið að stækka hana upp f
5000 mála afsköst. Auk þessa er
Hraðfrystistöðin f Eyjum að
undirbúa byggingu 1500 mála
verksmiðju.
að vekja athygli bama sinna á
þessari hættu.
Um það bil klukkustundu sfðar
meiddist önnur telpa, Guðrún Ragn
arsdóttir, Lindargötu 23. Hafði hún
dottið af útitröppum Miðbæjar-
barnaskólans, en ekki er blaðinu
kunnugt um hve mikið hún meidd-
ist. Hún var flutt f slysavarðstof-
una.
Um miðjan dag f gær var lög-
reglunni tilkynnt um slys í togar-
anum Jóni Þorláksssyni, sem lá við
Faxagarð. Utan á togaranum lá
annar togari, Þormóður goði, og
var einn skipverja hans að klifra
á milli skipanna, en fékk um leið
krampakast og datt. Hann meidd-
ist eitthvað, ekki alvarlega þó, og
var fluttur f slysavarðstofuna.
fþróttir —
Framhald af bls. 2.
fram 30 leikir á 4 völlum f
Reykjavfk, Keflavfk, Akranesi
og Akureyri. Keppnin f 1. deild
hefst á uppstigningardag, 23.
maf. Þá ieika Keflavík—Valur í
Keflavik, Akranes—KR á Akra-
nesi og Fram—Akureyri í Laug-
ardal f Reykjavík.
Að Iokum nokkrar upplýsing-
ar um Reykjavfkurmótið f knatt
spymu:
Staðan f Reykjavfkurmótinu
er nú þessi:
VALUR 5 3 2 0 8 7:3
ÞRÓTTUR 5 3 117 14:10
KR 4 1 0 3 2 9:10
FRAM 4 0 1 3 1 0:7
Markhæstu leikmenn eru:
Jens Karisson, Þrótti, 7
Sigurþór Jakobsson, KR, 3
Axel Axelsson, Þrótti, 3
Bergsveinn Adolfsson, Val, 3
Ólafur Brynjólfsson, Þrótti, 2
Bergsteinn Magnússon, Val, 2.
Næstu Ielklr eru:
Valur—Þróttur á sunnud. 19.
maf kl. 20.30.
KR—Fram mánud. 20. maf kl.
20.30.
Fram—KR föstudaginn 31. maf
kl. 20.30.
— jbp —
19 daga
þögn
Nú em 19 dagar liðnir frá þvf
að Þórarinn Þórarlnsson hélt þvf
f fyrsta skipti fram á flokks-
þingi Framsóknarmanna, að „á-
hrifamikil öfl I Bretiandi muni
krefjast þess, að undanþágurn-
ar, sem brezklr togarar hafa nú
til velða Innan fiskveiðllandhelg-
innar, verði framlengdar".
Vfsir hefur óskað eftir því að
Þórarinn upplýsti hvaða heim-
ildlr hann hafi fyrlr þessum full
yrðingum sfnum. öll þjóðln hlýt
ur að vænta þess, að Þórarinn
svarl þessarl spuralngu. gefi
þær heimlldir, sem hann hefur
fyrir þessari staðhæfíngum sfn-
um. Hann hefur dregið að gefa
þær upp, sfðustu þrjár vlkurnar, l
og ef svarið iætur á sér standa /
öllu lengur, verður að líta á um- J
mæli Þórarins sem dauð og ó- \
merk, sem ómerkilega staðleysu. I
Vfsir spyr þvf: Hvar em heim- /
ildirnar, Þórarinn? )
Ármann Snævarr rektor.
Armann Snævarr
endurkjörinn há-
skóíarektor
Prófessor Ármann Snævarr, var
í gær endurkjörinn rektor Háskóla
íslands. Nær kjörtímabilið frá 15.
september 1963 til 15. september
1966. Ármann Snævarr hefur gegnt
rektorstöðu frá hausti 1960. Rekt
orskjörið fór fram hjá prófessor-
um Háskólans á fundi í gær, en
þar voru viðstaddir 26 prófessor-
ar.
Fró Fulltrúaráði Sjálf- j
stæðisfélaganna í Reykjavíki
í DAG verða opnaðar á vegum Fulltrúaráðs Sjáifstæðis- í
félaganna í Reykjavík hverfaskrifstofur á eftirtöldum stöð- J
um í Reykjavík:
VESTURBÆJARHVERFI
Hafnarstræti 1
Sími: 22048
NES- OG MELAHVERFI
K.R.-húsið við Kaplaskjólsveg
Simi: 22073
MIÐBÆJARHVERFI
Breiðfirðingabúð
Sími: 22313
AUSTURBÆJARHVERFI
Skátaheimilið við Snorrabraut
Sfmi 22089
NORÐURMÝRARHVERFI
Skátaheimilið við Snorrabraut
Sími: 22Ó77
HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI
Skipholt 5
Sími 22317
LAUGARNESHVERFI
Sunnuvegur 27
Simi: 38110
LANGHOLTS-, VOGA. OG HEIMAHVERFI
Sunnuvegur 27
Símar: 24816 — 35307
SMÁlBÚÐA-, BÚSTAÐA- OG HÁALEITISHVERFI
Vikingsheimilið við Réttarholtsveg
Sfmi 34534
Allar skrifstofumar eru opnar daglega kl. 2—10 e. h.,
nema Iaugardaga og sunnudaga kl. 2—6 e. h. og veita þær
allar venjulegar upplýsingamar um kosningamar.
SÍS vildi —
Framh af l sfðu
hér að framan, en rétt er að
skýra það atriði nánar.
Cumarið 1961, þegar sýnt þótti
að Efnahagsbandalag Ev-
rópu gæti haft mikil áhrif á
efnahagslíf íslendinga, skipaði
viðskiptamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason, nefnd, sem f áttu sæti
fulltrúar fjölmargra hagsmuna-
og atvinnusamtaka, og fól henni
að kynna sér viðhorfið til F.fna-
hagsbandalagsins, með tilliti til
afstöðu Islands tii þess. Að
nefndinni stóðu 16 samtök.
Er nefndin skilaði áliti, lýstu
fjórtán nefndarmeðlimir þvf á-
liti sínu, íslandi bæri að senda
inntökubeiðni til bandalagsins,
og það fyrr en sfðar. Aðilar
þessir vom:
Samband fsl. Samvinnuféiaga,
Sölumiðstöð hraðfn'stihúsanna.
Framleiðsluráð landbúnaðarinr,
Samlag skreiðarframleiðenda,
Samband ísl. fiskframleiðenda,
Síldarútvegsnefnd, LÍIJ, Lands-
samband iðnaðarmanna, Verzl-
unarráð íslands, Félag iðnrek-
enda, Kaupmannasamtökin, Fé-
Iag fsl. stórkaupmanna og Vinnu
veitendasambandið.
Það fimmtánda, Stéttarfélag
bænda, vildi Ieita atikaaðildar,
ASÍ var eitt á móti því að Is-
lendingar sendu inntökubeiðni.
Álit Stéttarsambands bænda
var að sjálfsögðu einnig hið at-
hyglisverðasta, en þeir vildu
aukaaðild, eins og fyrr segir, en
að állti Tímans jafngildir auka-
aðild afsali sjálfstæðisins. Hing-
að til hefur ekki verið breitt bil
á miiii skoðana Tímans og stétt-
arsambandsins.
En Framsóknarmennimir í
SlS vildu ekki einu sinni auka-
aðild, þeir Iýstu stuðningi sínum
við, að lslendingar legðu fram
beiðni um inngöngu, um fulla
aðild að EBE.
jporsendurnar að baki þess, að
áðurnefndir aðilar töldu rétt
að senda inngöngubeiðni, vom
einkum þær, að þá hefði ísland
aðstöðu til áð hafa áhrif á á-
kvarðanir, sem taka þyrfti innan
bandalagsins, með öðrum orð-
um, til að koma sjónarmiði ls-
lands að f þeim umræðum, sem
fram færu meðal forystumanna
EBE.
Þetta sjónarmið var ríkis-
stjórninni og Ijóst, þótt hún
sendi aldrei frá sér inngöngu-
beiðni, en einmitt í þeim til-
gangi tók hún upp viðræður við
forystumenn EBE. Hún reyndi
að kynna málstað fslands, sér-
stöðu bess, og bá erfiðleika, sem
íslendingar ættu við að striða.
f nóvember 1962 fordæmdi
Eysteinn Jónsson ekki einasta
þessar viðræður, heldur hafnaði
og algjörlega hvers konar aðild
að bandalaginu, og fullyrti jafn-
framt að það hefði verið stefna
Framsóknarflokksins frá upp-
hafi!
Sannað er hversu ábyrgðar-
iaus þessi málflutningur Ey-
steins er. Sannað er og, að ekki
stendur steinn yfir steini f mál-
flutningi hans og Framsóknar-
manna vfirleitt, þessa dagana,
frekar en ella.
T^lett hefur verið ofan af óheil-
indum þeirra f landheigis-
málinu, sýnt hefur verið fram á
tvískinnungshátt þeirra gagn-
vart erlendu fjármagni og stór-
kapitalisma og hér hefur nú ver-
ið vakin athygli á þeirri stað-
reynd, að SÍS hefur verið þess
fýsandi að ganga mun iengra i
Efnahagsbandalagsmáiinu, held-
ur en rikisstjómin hefur nokk-
urn tíma látið sér til hugar
koma.
Ellilaun hjóna
Til áréttingar forsíðugreinar
Vísis í gær um stórfelldar aukn-
ingu almannatrygginganna, sem
núverandi ríkisstjórn hefir komið í
framkvæmd, skal þes getið að elli-
laun hjóna voru hækkuð úr 15.927
kr. upp í 25.920 kr. með lögunum
1960, og enn hækkuð upp í 32.824
kr. með lögunum sem sett voru á
þinginu nú í vetur.
Sökum fyrirspurnar til blaðsins í
gær skal það sérstaklega tekið fram
að nú fær allt aldrað fólk greitt
elliiaun úr ríkissjóði, hvort sem
það er í sérlífeyrissjóðum eða ekki.
Síldarafíinn í nótt
12 þúsund tunnur
Veiði var allgóð í nótt á sömu
sióðum og í fyrrakvöld og fyrri-
nótt, þ. e. í Grindavíkursjó, út af
Jökli og NV af Akranesi. í morgun
snemma var kunnugt um 25 báta
með nærri 12 þús. tn. (11850).
Á báta, sem voru að veiðum sunn
an Reykjaness, var veiði jafnari,
en þeir fengu síldina í.Grindavík-
ursjó. Það voru 6 skip, sem þar
fengu afla, samtals 5250 tn.:
Kópur 900, Gunnólfur 700, Helgi
Flóventsson 1700, Skipaskagi 450,
Gullfaxi 1300 og Hafrún 200.
Þá fengu 19 skip önnur síld vesl-
ur undir Jökli, samtals 6600tunnur:
Steinunn 700, Jónas Jónasson
300, Jón Oddsson 650, Ásgeir Torfa
son 150, Stapafell 500, Hannes Haf-
stein 500, Jón á Stapa 500, Páll
Pálsson 400, Sigurður Bjarnason
350, Ólafur Magnússon 450, Stein-
grímur trölli 100. Straumnes 250,
Snæfell 200, Guðmundur Þórðar-
son 450, Pétur Sigurðsson 300, Sig-
urfari 200, Höfrungur II. 100, Reyn-
ir 150 og Skírnir 300.