Vísir - 04.06.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 04.06.1963, Blaðsíða 3
V í SIR . Þriðjudagur 4. júnf 1963. & aa 15 — en Kiei vann 2:0 sem eru ekki réttlót úrsiit „Farið varlega í umferðinni, en munið að koma á völlinn og sjá Holstein Kiel og KR í kvöld“. Eitthvað þessu líkt glumdi í eyrum útvarpshlustenda. Þeir sem fóru að ráðum útvarpsins sáu KR-inga misnota greiða „umferð“ um varnarlendur Holsteinsmanna, sem léku nánast heldur slappa vörn einkum miðvörðurinn, sem hvað eftir annað gaf Gunnari Felixsyni tækifæri á að skora fyrir KR, en alltaf greip markvörðurinn Witt- mask inn í á réttu augnabliki með skínandi góðum staðsetningum sem minntu mikið á staðsetningar Jashins hins rússneska. Frá leik KR og Þýzka liðsins Holstein. Homspyrna við mark KR-inga. Gísli markvörður bjargar naumlega en KR fær aftur homspyrnu á sig. í fyrri hálfleik áttu KR-ingar sannarlega skilið að ná forystu og það oftar en einu sinni. Lítum t. d. á 19. mínútu, þegar Gunnar Felixson plataði laglega á kantin- um og gaf á nafna sinn Guð- mannsson sem tapaði í viðureign við markvörðinn, en boltinn hrökk aftur til Gunnars F. og enn fær Guðmannsson svo til eins tæki- færi, nema hvað markvörður var ekki til að trufla, en nú var skot Gunnars ekki fyrir hendi. Bezta færi Holstein á þessu tímabili var hjá h. innherja Pndlich, sem skaut í stöng en af henni rúllaði boltinn Ögnandi fyrir markmunnann og út fyrir endamörk. Gunnar G. fékk óvænt skotfæri á vítateig, — þröngt og skotið reið af, — beint í brjóst mark- varðar, en fast skot samt og ó- vænt og vel varið. Þetta var á 22. mín. og 10 mín. síðar var Sveinn Jónsson kominn í gegn á miðjum vellinum en miðvörðurinn allt of framarlega. Sveini tókst ekki fremur en öðrum að sigra mark- vörðinn sem lokaði vel og Sveinn skaut framhjá. Tveim mín. síðar er Gunnar Felixson í góðu færi en skot Gunnars lendir í klóm mark- varðar. Á 38. mínútu kemst Gunn- ar einn upp miðjuna og ætlar greinilega ekki að brenna sig á sama soðinu, — leggur boltann fyrir sig, — vandvirknin á að ríkja og mark að fást að launum, en hversu vel sem Gunnar reyndi var allt fyrir ekki, — ekki einu sinni í annarri skottiiraun, sem honum bauðst. Eins og sjá má áttu KR-ingar tækifæri í þessum hálfleik og 2— 3 mörk hefðu verið mjög eðlileg afleðing af.svo opnum færum. Síðar hálfleikinn lá meira á KR og þá komu mörkin, en Þjóð- verjar áttu líka fleiri tækifæri en fyrr. Koll útherji skaut fyrir opnu marki beint í fang Gísla. VARNARBILUN KR. — Þjóðverjar skora fyrsta markið á 22. mín. síðari hálfleiks. Reynir Smith gleymir stöðu sinni sem h. bakvarðar, en hann kom inn í fyrri hálfleik fyrir Hreiðar, innherjinn brunar upp kantinn og gefur inn til útherj- as Koll, sem var kominn inn. Hörður Felixson fer örlítið út á móti, en lítur við og athugar hvort miðherjinn sé ekki laus, en Koll notar tækifærið og skýtur nokkuð föstu skoti fram hjá Herði af 20 metra færi, en Gísli stendur sem negldur í markinu. Ágætt skot í hornið, en vörn KR hikandi og rög. Gunnar Felixson átti góða til- raun til að jafna er eftir voru 10 mínútur af leik, hann sneiddi bolt- ann viðstöðulaust á lofti, en mark- vörðurinn var kominn á staðinn og hrökk boltinn í brjóstkassa hans og út á völlinn, enn furðu- lega góðgr staðsetningar. Gísli varði líka vel er hann kastaði sér eftir góðu skoti Podlich, en skot Ehlers á 36. mín. var mjög gott og lenti af miklu afli á þverslá. VÍTASPYRNA færði HOL- STEIN KIEL 2:0, en boltinn rakst í hendi ungs manns sem kom inn á síðustu mínútum leiksins. Víglundar Þorsteinsson ar. Var vítasprnan framkvæmd mjög örugglega af Greif sem Skoraði með jarðarskoti. HOLSTEIN KIEL lék ekki mjög góða eða tilþrifamikla knatt- spyrnu. Sannleikurinn er víst sá að keppnistlmabili Þjóðverja er fyrir alllöngu lokið og eru leik- menn nú óðum að fara úr þjálfun. Hins vegar er greinilega grunnt á talsverðum hæfileikum hjá mörgum liðsmönnum og er ekki að efa að þeir munu sýna góða Siglfirðingar virðast hafa á að skipa liði, sem kemur til með að ógna Þrótti í B-riðli Islands- mótsins í knattspyrnu, 2. deild, en Hð þeirra vann í gærdag sig- ur yfir ísfirðingum með 6:4 í sólskini og fallegu veðri á ísa- firði. Var leikur liðsins eftirtekt arverður fyrir stutt samspil og falltga knattspyrnu, en úthald liðsins var nokkuð lélegt. Fyrri hálfleikur var að mestu eign Siglfirðinga sem skoruðu 3 gegn 1. 1 síðari hálfleik skor- uðu Siglfirðingar enn 3 mörk en fengur önnur 3 á sig. Var úthald liðsins meginorsök þess að svo fór ,en síðustu 15 mín- útur leiksins fóru að mestu fram við mark Siglufjarðar. Siglfirðingar eru með mjög ungt lið, flestir leikmanna um og yfir 20 ára, sá elzti aðeins 24 ára gamall. Siglfirðingar leika í B-riðli 2. deildar ásamt Þrótti, leiki næstu daga. Bezti maður liðsins var markvörðurinn, sem kom í veg fyrir að KR næði a. m. k. jafntefli, eða jafnvel ynni, sem hefði ekki verið óréttlátt. Ágætur leikmaður er v. framvörðurinn Ehlers. Liðið lék lítið á útherj- ana, en miðjutríóið reyndi mikið að bora sig £ gegnum margfaldan varnar„tappann“ sem myndaðist þegar KRingar drógu sig aftur, en ísfirðingum og Hafnfirðingum, og er ekkl að efa að þeir koma til með að verða hættulegir Þrótturum, enda munu Þróttar- ar þekkja hörku þeirra frá heim sókn þeirra til Siglufjarðar í fyrra. ísfirðingar eru í allgóðri þjálf un, en hafa misst mikið af liði öll „taktik“ KR var ,,defensíf“ og lítill þungi var í sjálfu sér I fram- línunni og leik hennar, en því meira voru tækifærin að þakka góðum leik Gunnars Felixsonar, sem lék sinn langbezta leik í sum- ar, að vísu nokkuð á kostnað lé- legs miðvarðar Holstein. Dómari I leiknum var Magnús V. Pétursson og dæmdi hann vel. — jbp — sínu, fyrst með fyrirliða sinum Albert K. Sanders, sem fór til Keflavíkur, en leikur ekki leng- ur knattspymu, og síðan Birni Helgasyni, sem nú er kominn til Reykjavíkur og hefur byrjað leik með Fram. ísfirðingar hafa nóg úthald, en leiknin með bolt- ann er ekki nógu mikil hjá leik- mönnum og vart munu ísfirðing ar verða hættulegir í 2. deild- inni. Eitt af hinum gullnu tækifærum KR-inga, sem fór út um þúfur. Gunn- ar Felixson kominn einn inn fyrir vöm Þjóðverja. En þýzki mark- maðurlnn Iokar gersamlega. Finnnr Dnnir 1:1 í Knupmnnnnhöfn Geysióvænt úrslit urðu í landsleiknum í Kaupmannahöfn í gær, er Finnar náðu jafntefli við Dani í landslcik í knatt- spyrnu. Áhorfendur voru 21.000 á Idrætsparken. Finnar skoruðu sitt mark á 17. mínútu síðari hálfleiks, en Enoksen jafnaði er eftir voru 4 mínútur af leik með „prakt- skoti“ geysilegri þrumu gjör- samlcga óverjandi. Danska lið- ið var lélegt í Ieiknum, senni- lega of sigurvisst, enda unnu Danir Finna 6:1 í síðasta leik, 9:1 þar áður. LID SKLFIRDINGA FULLTAF FFNUM Siglufjörður vunn ísufjörð með 6:4

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.