Vísir - 04.06.1963, Page 7

Vísir - 04.06.1963, Page 7
V í SI R . Þriðjudagur 4. júní 1963. 19 MY VALA situr í sófanum, Benedikt þýtur út og inn, svarar í símann, sem alltaf er að hringja, og litli herramaðurinn liggur steinsofandi í vagninum sinum úti á svölum. Já, auðvitað eru það Vala — „My Fair Lady“ — og Benedikt Ámason, sem um er að ræða. Soninn er ekki bú ið að skíra enn. Þau eru nýkomin heim eftir ársdvöl í Danmörku, þar sem Benedikt hefur verið að kynna sér kvikmyndagerð og starfað sem aðstoðarleikstjóri við tvær myndir, „Tre piger i Paris“ og „Hvis lille pige er Du?“ Áður var hann aðstoðarleikstjóri við „79 af stöðinni", eins og flest- um mun kunnugt, og 1 sumar tekur við fjórða myndin, sem verður kvikmynduð á öræfum Islands, og verður ekki minni stjarna en sjálfur Daniel Gelin í aðalhlutverkinu. „Hefurðu ekki lært einhver ósköp á þessu ári f Kaupmanna höfn, Benedikt?“ Hann brosir tvírætt. „Að minnsta kosti þá nytsömu lexíu, að ég eigi enn mikið eftir ólært. Það er gamla sagan, þegar mað ur er að byrja á einhverju og veit nógu lítið um það, þá finnst manni maður vita svo ákaflega mikið. En smám saman kemur í ljós, hvað vitneskjan er nú lítil, og maður kynnist bezt sinni eigin heimsku. Ég hélt eftir „79 af stöðinni", að ég vissi eitthvað um kvikmyndagerð, en það rauk fljótt út í veður og vind, þegar ég byrjaði að læra í alvöru“ „Varstu í skóla eða lærðirðu bara af sjálfu starfinu?" „Ég lærði mest á þvf að vera í þessu, hrærast innan um allt saman og sjá, hvernig það gekk til“. Hugsa gegnum myndavélina. „Er það ekki gerólíkt leik- húsinu og sviðsetningu leikrita Ieikarinn aðeins um þann hluta, sem myndavélinni er beint að. Hann getur leikið af mikilli inn- lifun með andlitinu og dinglað fótunum á meðan, þvf að hann sést kannske ekki nema niður að mitti eða jafnvel enn minna. Svo eru senurnar ekki teknar í tfmaröð, heldur sitt á hvað; eftir því hvernig bezt hentar. Það eru ekki leikin heil atriði f einu, bara ein eða tvær setningar, og fólkið er ekki saman að leika að hugsa um annað en fylgja leiðbeiningum hans“. „Það hlýtur að vera erfitt að lifa sig inn í hlutverk með þessu móti“. „Já, það útheimtir sérstaka tækni, en vanir kvikmyndaleik- arar eru þrautþjálfaðir í þessu og eiga auðvelt með það“. „Ýta bara á gráthnappinn, þegar það á við“, skýtur Vala inn f. „Sérðu það ekki í auganu á henni?“ segir Benedikt. Jú, það er svolítill glampi þar, jafnvel í báðum augum. „Ég ætla að halda áfram, þeg ar tfmi gefst til“, syarar Vala, „en maður er hálfhræddur við að koma aftur. Það verður tekið strangara næst. — Ég þori það samt alveg“, bætir hún við hug- rökk. „Þú verður að ganga í hinn bitra skóla reynslunnar“, segir að fást við kvikmyndastjórn?" „Jú, mjög ólíkt. Maður verður að læra að hugsa gegnum myndavélina, ef svo má segja, sjá allt eins og hún tekur það upp og verða ekki var við neitt annað. Á leiksviðinu verður allt af að taka tillit til heildarinnar, en í kvikmyndinni skiptir ekkert máli nema sá partur, sem sést hverju sinni á tjaldinu. Leikari á leiksviði þarf að hugsa um allan Iíkamann, en kvikmynda- hvað á móti öðru nema endrum og eins, þó að það sjáist saman í myndinni. T.d. getur maður átt að koma konu til að gráta í einhverri senu — hún er þá hvergi nálæg, meðan hans part- ur er tekinn, og þegar kemur að grátnum hjá henni, er hann kannske farinn út að fá sér bjór. Svona er allt tætt f sundur og tekið öðrum tökum en á sviðinu. Mér kom það skringilega fyrir sjónir fyrst, en það venst eins og annað“. Hin hamingjusama fjölskylda Glampi í auganu. Benedikt rásar fram og aftur um gólfið, meðan hann talar, og er aldrei kyrr. Andlitið er alltaf á hreyfingu og líkaminn oftast. „Er ekki óttalegt' taugastríð að standa f þessu?" „Jú, flestir eru magaveikir og meira eða minna taugaveiklaðir. Þetta er svo mikil ábyrgð. Ein kvikmynd kostar offjár, og leik stjóri, sem stendur sig illa fær ekki annað tækifæri. Það er of Benedikt. „Það er ekki allt tóm- ir lárviðarsveigar og húrrum- hæ“. „Hvað viltu helzt leika? Söng leiki á borð við My Fair Lady eða venjuleg leikrit?" „Allt. Sem mest alhliða, meina ég. Ekki óperettur eða svoleiðis — ég vil heldur vera leikkona með litla söngrödd en vond söngkona, sem ekki getur leik- ið“ „Ætlarðu í Leikskóla Þjóðleik Reykjavfk. Við erum að leita okkur að íbúð núna“. Töluvert margt. „Hvað átt þú að gera í sam- bandi við myndina, Benedikt? I hverju felst eiginlega starf að- stoðarleikstjóra?" „Æ, það er allur andskotinn", svarar Benedikt, og Vala fer að hlæja. „Ætlarðu að prenta þetta svo- leiðis?“ spyr hún. „Eða kemur bara í blaðinu: „Ja, það er tölu vert margt“?“ „Það er sannarlega töluvert margt“, segir Benedikt. „Aðstoð arleikstjórinn gerir eiginlega öll skítverkin. Hann sér um bak- grunninn, hópsenur, stjórnar statistum og óvönum aukaleikúr um og passar upp á, að allt slíkt komi rétt út. Auðvitað hefur hann líka samráð við aðalleik- stjórann um hverja senu og set- ur sig inn f allt saman með honum óg ljósmyndaranum, sem tekur kvikmyndina. Ég er mjög spenntur að vinna við nýju myndina, og undirbúningurinn er þegar kominn nokkuð áleið- is“. Eintóm manndráp. „Drepa ekki allir hver annan í henni?" „Jú, þetta er mjög drama- tískt. Enginn lifir myndina af — í sögunni að minnsta kosti“. „Og hvað verða margir leikar ar?“ „Átta. Fyrir utan Daniel Gelin verða fjórir aðrir franskir leik- arar, svo einn danskur, tveir enskir og tveir íslenzkir: Harald ur Björnsson og Róbert Arn- finnsson". „Ekkert kvenhlutverk? Ekkert pláss fyrir Völu?“ „Nei, þvf miður. Það átti upp- haflega að vera ein Indíána- stúlka, en svo var hún klippt út“. „Og hvað heldurðu, að sjálf kvikmyndunin taki langan tíma?“ „Minnst sex vikur. En mestur tíminn fer f undirbúninginn og svo seinna klippingu og seinasta frágang. Það verða 30 manns starfandi við kvikmyndatökuna, Gabriel Axel verður leikstjóri, og Balling kemur lfka með“. „Hvernig kannt þú við að setj ast að á Islandi, Vala? Þú hlýtur að hugsa um Danmörku sem þitt heimili". „Mér finnst bæði löndin vera mitt heimili. Ég held, að ég muni kunna ágætlega við mig í Reykjavík, en helzt vildi ég geta skroppið út öðru hverju. Og ef við eignumst gott heimili hér, verður allt í lagi. Island er yndislegt með öll fjöllin og feg urðina". „Svo eru foreldrar þínir hér líka“. „Já, það er allt annað, þegar öll fjölskyldan er samankomin. Nú getur pabbi slappað af — „Geta leikararnir þá nokkurn tíma byggt upp hlutverk sín sem heild eins og á leiksviði?“ „Nei, það er ekki nokkur leið. Þeir lesa handritið og vita í stór um dráttum, hvað efnið er, en enginn nema leikstjórinn getur haft samhengið íhuganum.Hann verður að hafa heildarmyndina svo skýra, að hann geti fellt hvert augnablik inn í á réttan hátt, en leikaramir þurfa ekki kostnaðarsamt“. „Finnst þér meira gaman að fást við leikstjórn en leika sjálf- ur?“ „Ég veit ekki, það er tvennt ólíkt. Maður má aldrei hætta al- veg að leika sjálfur, svo að mað ur gleymi ekki kröfum leikar- ans“. „Hvernig er það með þig, Vala? Ætlar þú ekki að halda áfram með leiklistina?" hússins í haust?“ „Ég býst við því. Mig langar mikið til þess“. „Og nú eruð þið að setjast að hér?“ rBenedikt fer út um miðjan júní og kemur aftur um mánaða mótin júní júlí“, svarar Vala. „Kannske verð ég í Kaupmanna- höfn til haystsins, en ef við finn urn íbúð hérna á næstunni, get- ur verið, að ég verði bara í hann er búinn að gifta dætur sín ar og eignast tvö barnabörn, svo að allt er í lagi. Hann er ægilega ánægður hér heima". ,,Á Brynja, systir þín, lika son?“ „Nei, dóttur, 18 daga gamla“. Nú heyrist hljóð úr horni, ungi maðurinn er vaknaður úti á svölum. Vala og Benedikt taka bæði sprettinn. Og nú hafa þau engan tíma lengur fyrir blaða- menn. — SSB. kvikmyndastjórinn

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.