Vísir - 04.06.1963, Qupperneq 10

Vísir - 04.06.1963, Qupperneq 10
22 ■**s VÍSIR . Þriðjudagur 4. júní 1963. \ I I I Eyjabúar hópast niður að höfn, einkum yngri kynslóðin. Þetta er jú sport. . . Ljósm. Ásm. Guðjónss. Tveir fiskar á færi Framh. af bls. 18. að vera sæmilega sofinn, þegar maður fer að kljást við þá garpana, Magnús í Pólunum, sem aldrei dregur dautt færi úr sjó, Guðmund Ólafsson, sem gefur gömlu skakkörlunum á skútuöldinni ekkert eftir, og þá tannlæknana, sem draga og draga allan ársins hring, og fái þeir ekki bein úr sjó, draga þeir það úr munni manns. Og ekki munu þeir Vestmannaey- ingarnir Iáta sitt eftir liggja við fiskidráttinn, ef ég þekki þá rétt. j£lukkan rúmlega sex er ég glaðvaknaður og rokinn á fætur. Ég bregð mér upp f brú. Það er talsverð bræla í Eyrarbakkabugtinni, en Breiðan öslar áfram, og sjórinn gengur stöðugt yfir þilfarið eins og á tankskipi. Það er almennt við- urkennt, að Breiðan sé frábært sjóskip. Haggast yfirleitt ekki hvað sem á gengur. En margur hefur óskað þess að hún væri dálítið hraðskreiðari. Og þennan morgun tek ég undir þá frómu ósk af heilum huga. Stundu síðar er ég kominn niður aftur og farinn að athuga veiðarfæri mín, mér til afþrey- ingar. Einn af samfarþegum mínum, ungur formaður úr Eyjum, hnýtir á slóða fyrir mig. Það leynir sér ekki að hann kann vel til þeirra hluta. Klukkan hálfníu á ég símtal úr brúnni á Breiðunni við Njál Símonarson, framkvæmdastjóra ferðaskrifstofunnar „Sögu“, sem sér um alla framkvæmd mótsins. Hann og aðrir þátttak- endur hafa sofið væran í mjúk- um hvílum „HB“ um nóttina, stoltir af þeirri forsjálni að hafa farið loftleiðis til Eyja daginn áður. Það verður að samkomu- lagi með mér og honum og skipstjóranum á „Breiðunni", að mér skuli skotið um borð í bátinn, sem ég er skráður á, þegar við mætum flotanum á Ieið út á miðin. Ég fer niður og klæði mig í sjógallann og er við öllu búinn. Skipstjórinn vill allt til þess gera, að ég falli ekki úr keppninni, en því miður stendur það ekki í hans valdi að Breiðan herði skriðinn meir en orðið er. Það er bræla við Eyjar, og sennilega verður ekki heiglum hent að stökkva á milli skips og báts í öllum herklæðum. Kemur jafnvel til tals að „híva“ mig í bómu á milli, en þó einungis í gamni. j^g er orðinn furðu róiegur yfir öllu saman. Það er eins og ég hafi óljóst hugboð um að eitthvað það gerist, sem leysi vandann á óvæntan hátt. Og það lítur helzt út fyrir, að það hugboð muni rætast. Við erum komnir upp undir Klett- inn og sjáum ekki neina báta halda á miðin. Lóðsbáturinn kemur til móts við okkur og Ióðsinn kemur um borð. Hann kvað alla bátana hafa legið í höfn; sennilega væri keppninni frestað vegna brælunnar. Við höldum fyrir Klettinn, inn á höfnina. Þar liggja sjö vélbátar undir fánum með vélarnar í ganii. Það stenzt á endum að Breiðan leggur að hafnarbakk- anum og flotinn heldur af stað og einn af bátunum ieggur að súð og mér er sagt að stökkva um borð og það í hasti. Ég kveð Breiðuna og áhöfn hennar með kærleikum, og heilsa áhöfn inni á vélbátnum „Guðbjörgu", þar sem ég er skráður í skip- rúm meðan mótið stendur. Kasta kveðju á væntanlega keppinauta mína. Og bátarnir sjö halda úr höfn undir blakt- andi fánum. Klukkan er ell- elfu ... Seinna frétti ég það, að einn af skipstjórunum hafði sofið yfir sig, og þegar hann kom svo loksins til skips, kom í ljós að báturinn var olíulaus. Flotinn hafði því ekki tafizt mín vegna, hvað svo sem segir í Morgun- blaðinu — og leiðréttist það hér með. j ;Qks gefst mér tóm til að at- huga nánar keppinauta mína þarna um borð. Suma þekkti ég og hef háð keppni við þá áður. Meðal þeirra er Lúð- vík Eggertsson fasteignasali. fiskinn vel, harðvítugur við drátt og grunaður um galdra á miðum; allra manna reifastur og garpur mikill, bæði P orði og á borði, og þó einkum við borðstokkinn. Hann tekur sér stöðu fram við stafn, enda mundi hann hafa verið sjálf- kjörinn stafnbúi á langskipum í dentfð og sómt sér vel í hringabrynju og með væng- skreyttan þjálm víkinga á höfði. í dag kveðst hann ætla að drepa fisk og lætur ófrið- lega. Annar er Þórður Sturlaugs- son, Jónssonar Sturlaugssonar frá Stokkseyri, hins frægasta formanns og sægarps á sinni tíð, og var slík gæfa hans, að hann barg fieiri mönnum úr sjávarháska en nokkur annar og hafði af mikla virðingu. Þórður er þrælfiskinn, þegar það dettur í hann, en á það svo til að taka lífinu með ró og jafnvel að leggja til svefns á þilfari þess á milli. Ég spyr hann hvort hann ætli slíka að drepa fisk í dag. „Nei, ég held hann hef ég ekki áður séð, það ég man. I-Iann er maður lágur vexti, gildur og þreklegur, hljóður og hæglátur í fram- komu, og í rauninni fátt sér- kennilegt við hann í sjón — nema augun. Þau eru tinnu- dökk og snör og einhvern veg- inn finnst mér ég kannist við tillitið. Það er þó ekki fyrr en nokkru seinna, sem ég get áttað mig á því fyrirbæri. Þegar ég veit að hann heitir Marenó Pétursson og er systur- sonur Binna í Gröf, þess lands- kunna sægarps og fiskimanns, sem verið hefur aflakóngur í Eyjum áratugum saman, en hefur nú loks orðið að láta hlut sinn fyrir sér yngri mönn- um, enda vel við aldu. Binni er kominn af frönskum sæ- görpum og sennilega aflakóng- um í ættir fram og augun og tillitið segir til sín. Býður mér því í grun, að þar muni ég eiga harðan keppinaut, sem Marenó er, en þykist líka vita að hann muni vera drengskap- armaður, því að fáa þekki ég betri drengi en Binna frænda hans. Hvort tveggja átti og eftir að rætast. Formanninn þekki ég frá gamalli tíð, þó að hann sé kornungur að árum. Senniiega hef ég kennt honum í barna- skóla. Hann heitir Páll, grann- vaxinn maður, fríður sýnum og hinn gæfulegasti, og hygg ég gott til þess að njóta leiðsögu hans og aðstoðar. Við erum nú komnir út undir Bjarnarey, og Haukur Johnsen yfirviktarmaður við Ljósm. Ásm. Guðjónsson. helzt ekki", segir hann og eyðir því. Það var sagt um afa hans, að honum kæmi fátt á ó- vart. Eitthvað virðist Þórði kippa þar í kynið, þótt nú sé öldin önnur og óandlegri hvað það snertir. Vorum við varla fyrr komnir á miðin, en að hann varð fyrir því óhappi að brjóta stöng sína — og dró ekki fisk þann daginn. jjriðji keppinautur minn er einn af þegnum Kennedys. Heitir sá MacDonald, og höfum við sést áður í svip á miðum, þó að ekki viti ég hve fiskinn hann er. Ekki ber hann það heldur utan á sér, en hitt má greinilega á honum sjá, að hann er vansvefta og ekki meir um það — að sinni. Fjórði keppinauturinn vekur öllu fremur athygli mína, en hina alþjóðlegu veiðikeppni. Páll ákveður að nema staðar og athuga hvort þar sé nokkurn fisk að fá. Hinir bátarnir halda flestir lengra, en Páll er ekki viss um að það borgi sig. \7"arla eru færin komin í botn, ” þegar kveður við öskur mikið frammi í stafni. Þannig mundu víkingar tjá sig, þegar þeir „höggva mann of annan“. Verður öllum litið þangað sem Lúðvík stendur með stöng sína hringbogna og snýr hjólinu með þvílíkum átökum aö við finnum titringinn af þeim aftur undir stýrishús. Líður og ekki á löngú að hann hefur innbyrt vænan þorsk. Rennur nú á hann ber- serksgangur og andrá síðar öskrar hann enn, öllu meir en fyrr, enda eru þá tveir fiskar á færi hans, ufsar, sæmilega stórir. Við Marenó erum líka farnir að draga, en þegn Kennedys situr í hnipri út við borðstokkinn, með færið í sjó, og veröur ekki séð hvort hann vakir eða sefui', þótt hið síð- ara verði að teljast sennilegra, því að ekki bregður honum við brestinn þann hinn mikla, sem varð þegar stöng Þórðar hrökk í tvennt við borðstokkinn hið næsta honum, og slagar sá brestur þó hátt upp í þann fræga, sem varð í Svoldarorr- ustu. Lúðvík tók meira að segja eftir honum, þrátt fyrir berserksaeðið, og hafði við orð að þar mundi Þórður hafa sett í illhveli nokkut. En Þórður brosti og svaraði: „Ætli það hafi'ekki heidur verið fasteign- 1?rælan helzt, okkur rekur af miðinu, sem er gat eitt neðarlega á klettarana á Bjarn- arey. Verðum að hafa uppi og stíma aftur á miðið í stórum sveig. Páll formaður gerir allt, sem í hans valdi stendur til þess að okkur gangi veiðin sem bezt og veitir okkur, ásamt öðrum bátsverjum, alla þá að- stoð sem hann má. Lúðvík dregur og dregur, sjaldan minna en tvo eða þrjá, en nokkuð er farið að draga úr öskrum hans, eða þá að við erum hættir að taka eins eftir þeim. enda höfum við Marenó nóg að gera við dráttinn. Þyk- ist ég mega merkja það á öllu, að mér muni þýðingarlaust að ætia að etja kapp við fiski- gæfu þeirra Grafarfrænda. /~kg loks gerist það undur, öll- w um að óvörum, að stöng Macdonalds hins bandaríska tekur að bogna fskyggilega. Vaknar hann og með andfælum og herðir tök á stöng og hjóli. Hefjast nú hin feiknlegustu á- tök, og sýnir þegn Kennedys það brátt, að hann er, þegar allt kemur til alls, ekki til einskis kominn af hinum fræga klan skozku Macdónaldanna, því að hann stendur sig eins og þaulvön stríðshetja, og því betur, sem meira reynir á, en þó er vandséð hvor muni hafa sigur að lokum, afkomandi Macdónaldanna eða hinn óséði andstæðingur hans í djúpun- um. Fylgjast og allir viðstadd- ir af mikilli athygli og eftir- væntingu með þessari tvísýnu hólmgöngu og spá ýmsu en stöðugt vinzt upp á hjólið þótt hægt gangi, og á stundum ekk- ert. Loks er svo komið, að Páll stendur með ífæruna reidda til höggs, og andartaki síðar kem- ur fiskurinn f ljós. Reynist það vera dávæn lúða og skiptir nú engum togum, að hún liggur kylliflöt á þilfari, yfirbuguð af hreysti og harðfylgi Bandaríkja- mannsins og ættgengri orrustu- gæfu Macdónaldanna, hinna skozku forfeðra hans. Kannski er þarna líka um met að ræða. Að minnsta kosti veit enginn um borð til þess að nokkur hafi áður dregið lúðu sofandi ... Heimdell- mgar Heimdallur hvetur félagsmenn ' ’ til að koma i skrifstofu Sjálf-' ’ stæðisflokksins og gera skil í | I happdrætti flokksins um Ieið og | I hann minnir á að hér er um að ræða glæsilegasta happdrætti, i ' sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur ( I efnt til í þágu flokksstarfsem- I innar. Skrifstofan er opin alla j daga frá 9—22. WBBWHBRaa-ag*«» -v»v w-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.