Vísir - 01.07.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 01.07.1963, Blaðsíða 2
V í S I R . Mánudagur 1. júlí 1963. Akurnesingar fengu afbragðs veíði í Blöndu um fyrri helgi, eða dagana 23. og 24. júní. Þá fóru nokkrir félagar úr Stanga f® Silán Mikill viðbúnaður er nú á Siglufirði 'að taka á móti síld til söltunar og vill svo vel til að síldin, sem veiðist norður af Sléttu, er ágæt söltunarsíld. Veður er og fréfir verið blítt og bjart á Siglufirði og mikill síldarhúgur í fólkinu. í gær hófst söltun á fjórum stöðvum í Siglufirði, hjá Skapta Stefánssyni, Haraldi Böðvars- veiðifélagi Akraness norður í Húnavatnssýslu og veiddu 35 Iaxa frá 10 og upp í 17 pund á aðeins fjórar stengur. Hér á myndinni sjást veiðimennirnir með aflann fyrir framan sig, en þeir eru: Stefán Bjarnason, Anton Bjarnason, Bjarni Guð- mundsson, Axel Sveinbjörns- son, Ólafur B. Ólafsson og Valdimar Indriðason. (Ljósm.: Hörður Pálsson). syni, síldarsöltun ísfirðinga og Hrímni. Það þykir gott að salt- aðar voru 900 tunnur af 1100, sem Einar Hálfdáns kom með eftir 15 klukkustunda siglingu. Hann fékk síldina norður af Sléttu, en þar veiðist nú af- bragðs síld til söltunar. í morg- un var væntanleg síld til sölt- unarstöðvar Pólstjörnunnar á Siglufirði, og er þess getið á Hans heilagleiki Páll páfi VI. var krýndur síðdegis í gær und- ir beru lofti, fyrir framan St. Péturs dómkirkju að viðstödd- um miklum mannfjölda. Athöfninni var útvarpað og sjónvarpað til flestra landa álf- unnar og endursjónvarpað, og myndir af athöfninni verða sýnd ar í dag og næstú daga hvar- / gær vetna í heimi þar sem sjónvarp er. Páfi talaði á 9 tungumálum og hét því að fylgja stefnu Jó- hannesar III. um kristilega ein- ingu og frið í heimi. öðrum stað í blaðinu hvaða skip höfðu tilkynnt veiði til Siglufjarðar fyrir kl. 7 í morgun. Fréttaritari Vísis á Siglufirði, Ragnar Jónasson, sagði í við- Sumarferð Landsmálafélagsins Varðar var farin í gær. Þátttaka var gffurleg, 800 manns í 21 bíl. Leiðsögumaður var Árni Óla, fyrr um ritstjóri. Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, flutti erindi í ferðinni. Ekið var f Hvalfjörð, Skorradal, Reykholtsdal, upp Hálsasveit, stað næmst að Húsafelli, en þar var snæddur miðdegisverður og stað- urinn skoðaður, síðan ekið um Togannn ófarinn Seyðisfirði í morgun. Brezki togarinn „Dorade“, sem ÓSinn tók að ólöglegum veiðum í Lónsbug í s.l. viku er enn á Seyð- isfirði. Ástæðan fyrir þarveru hans svo lengi eftir að dómur hefur verið kveðinn upp er sú, að ekki hefur enn verið gengið frá tryggingu fyrir sektarfé og matsfé á afla og veiðarfærum. tali í morgun að þótt veiði væri dræm í svipinn þætti mönnum hún byrja vel, útlitið gott vegna þess hvc síldin væri góð til sölt- unar og vonir stæðu til að hún gengi vestur á bóginn. Saltað var á öllum söltunar- stöðvum á Raufarhöfn í nótt og í gær. Síldarfólk streymir nú til Raufarhafnar. Verksmiðjan þar hefir nú tekið á móti 56-— 70 þúsund málum og gengur bræðslan vel. Nokkuð var um slysfarir í Reykjavík' um helgina. Mestu slys- in og þau alvarlegustu urðu á Iaugardaginn, annars vegar á Rauðalæk er drengur féll af húsa- svölum og hins vegar er maður datt af hestbaki og fótbrotnaði. Slysið á Rauðalæk varð klukkan rúmlega 6. Fjögurra ára drengur, Gunnar Þór, sonur Atla Steinars- sonar blaðamanns, Rauðalæk 44, féll ofan af húsasvölum og slas- aðist. Drengurinn var fluttur 1 sjúkrabifreið í slysavarðstofuna og þaðan 1 Landakotsspítala. Blaðinu er ekki kunnugt um hve mikil meiðsli drengsins urðu. Um klukkan hálf ellefu á laug- ardagskveldið var Einar Þórðarson Melabraut 44 á hestbaki hjá Bakka á Seltjarnarnesi. Hesturinn sem hann reið hljóp á skúr, en við það datt Einar af honum og fótbrotnaði illa á vinstra fæti. Nokkur önnur slys urðu um helgina, m. a. varð telpubarn fyrir bifreið á Sólvallagötu í gærmorg- un og stúlka datt um borð í skipi sem lá í Reykjavíkurhöfn. Maður slasaðist hjá bifreiðastöð Hreyfils í fyrrinótt og loks datt maður í stiga í Hafnarbúðum síðdegis í gær. Allt þetta fólk var flutt í slysavarðstofuna í sjúkrabifreiðum, en meiðslin yfirleitt ekki talin al- varlegs eðlis. eginlandshiti flýtir slætti Meginlandshiti er nú um mikinn hluta lands- ins og hefir sprettu fleygt svo fram að slátt- ur er almennt hafinn eða að hefjast. í hlýindunum að undanförnu hefir grassprettu fleygt fram víða á Iandinu, enda er sláttur hafinn á Austurlandi, þar sem veðurfar hefir verið bezt að undanförnu, og er að hefjast al- mennt í Eyjafirði og víðar, og mun mega fullyrða, að sláttur verði almennt hafinn næstu daga eða undir næstu helgi og um miðja síðastliðna viku var dágott veður, en ekki veruleg hlýindi, en segja má að breyting hafi orðið á miðvikudagskvöld, og góður meginlandshiti verið allvíðast á landinu síðan, eink- um norðanlands og austan, eða yfir 20 stig á Celsius. Einn dag inn komst hitinn upp í 23 stig á Akureyri og 22 á Nautabúi f Skagafirði og á Egilssstöðum, og alla undangengna daga yfir 20 stig víða. Jörðin hefir næga vætu og sólskin hefir verið um mikinn hluta landsins. 1 slíkri tíð „má sjá grasið spretta", eins og stundum er sagt. Það er helzt á Vestfjörðum, sem súld hefir verið, og yfirleitt ekki eins hlýtt vestan til á landinu og austar. Sumstaðar á Vestfjörðum eins og við ísafjarðardjúp hafa menn þó fengið talsvert sólskin. í við tali við búnaðarmálastjóra fyrir skömmu hér í blaðinu var rétti- lega á það bent, að allt væri undir veðrinu komið hvenær sláttur byrjaði almennt. Það er víst, að ef slætti seinkar til muna, en nú má þakka það ágæt is hlýindum dag eftir dag, að horfurnar hafa stórbatnað. — Spretta er alstaðar orðin ágæt eða á hröðum vegi að verða bað og hér eftir verður meira um heyverkunina spurt en sprettuna Kalmanstungu, Hvítársíðu upp Lundareykjadal og Uxahryggi um Þingvelli til Reykjavíkur. Ferðin þótti takast með afbrigð- um vel, veður var ágætt og ferða- fólkið í sólskinsskapi allan tím- ann. frr.Mald at bls. 16. atvik og að hvorugum þeirra verði gefið tjónið að sök. í rökstuðningi dómsins segir m. a.: Þar sem bein ákvæði umferða laga, athugasemdir við frum- varp að þeim eða aðrar fébóta- reglur leiða eigi til annars, verð ur að telja eðlilegast að heim- færa það tjón, sem mál þetta er risið af, undir 67. gr. umferða Iaganna, enda virðist sú niður- staða í samræmi við anda lag- anna og þróun í löggjöf þeirra Ianda, sem höfð var til fyrir- myndar við samningu laganna. Samkvæmt framansögðu ber því að leggja fulla fébótaábyrgð á stefndu vegna tjóns, sbr. 1. mgr., 69. gr., 30 mgr. 70. gr. og 2. mgr. 74 gr. umferðalaganna nr. 26 frá 1958. Málið flutti fyrir bæjarþingi Hafnarfjarðar, Páll S. Pálssoh, hr.I vegna Eggerts Karlssonar, bifreiðastjóra, og Guðmundur Ásmundsson, hrl. vegna Sam- vinnutrygginga. Báturinn Páll páfi VI. Fra.'nh at I sffiu að búa sig undir lentjingu, þegar áhöfnin kom auga á brénnandi bát á miðunum út af Suðurnesjum. Slysavarnafélaginu var þegar gert aðvart, og þaðan var aftur hringt í Loftskeytastöðina. Enginn neyð- arköll höfðu borizt en við nánari eftirgrennslan fékkst staðfesting á tilkynningunni frá Loftleiðaflug- vélinni. Ot af Hvalsnesi rak vél- bátinn Dux, frá Sandgerði, 54 tonna bát, sem verið hefur á humarveiðum í vor, logandi og mannlausan. Dux var að toga í ágætu veðri, þegar skipverjar urðu skyndilega varir við mikinn eld í bátnum. Eldurinn hafði komið upp í vél- arrúmi, og þar sem allir skipveri- ar voru á dekki, hafði enginn orðið eldsins var, fyrr en hann var orð- inn svo magnaður að við ekkert varð ráðið. Skáru skipverjar trollið af og gerðu í fyrstu tilraunir til að ráða niðurlögum eldsins. Kom þó fljótlega í ljós, að það var von- laust verk, og innan tíðar þurftu- skipverjar að yfirgefa skipið sök- um reyks og hita. Fóru þeir í gúm- bát og var bjargað um borð í annan nærstaddan bát, Jón Guðmunds- son. Brátt kom þaftia að björgunar- skipið Sæbjörg og tók Dux t tog með það fyrir augum að koma hinum brennandi bát í höfn. Var siglt til Keflavíkur, en svo brunn- inn var báturinn, að hann sökk í hafnarmynninu í Keflavík. Eigandi bátsins er Jóhann Guð- jónsson, en sá sem gerði hann út var Einar Gíslason, báðir útgerðar- menn á Suðurnesjum. Skipstjóri var Helgi Kristófersson úr Sand- gerði. Vísir gerði tilraunir til að ná sambandi við menn þessa f morgun án árangurs. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Á Dux var 5—6 manna áhöfn. Báturinn er um 10 ára gamall, einn af hinum svonefndú „blöðru- bátum“, sem smíðaðir voru í Sví- þjóð 1953. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.