Vísir - 01.07.1963, Blaðsíða 15
VI S IR . Mánudagur 1 júlí 1963.
/5
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
ERCOLE PATTI:
RÓMABORG
Okkur geðjaðist ekki að mynd-
unum í sýningargluggunum og
vildum heldur ganga um. Svo
fengum við okkur tesopa.
Marcello langaði til þess að
spyrja hana um næluna, en gat
ekki gert sig svo beran að af-
brýðisemi, fannst honum, og
kannski hafði hún líka tekið hana
af sér til þess að sýna vinstúlku
sinni hana.
Honum leið illa og hann tók nú
f sig að komast að hinu sanna án
þess að spyrja hana beint.
— Þessi næla fer vel við blúss-
una þína, sagði hann. Finnst vin-
stúlku þinni ekki, að hún sé falleg?
— Hún hafði séð hana áður.
— Sagði hún ekkert um hana?
— Nei við minntumst ekki á
hana.
Kannski hafði hún alls ekki ver-
ið með vinstúlku sinni. ICannski
hafði hún verið með einhverjum
karlmanni, — en hverjum?
— Þessi söngvari, sem var í leik-
flokknum. sagði Marcello og reyndi
að tala í léttum tón, hefurðu frétt
nokkuð af honum?
Anna þagði stundarkorn.
— O, sagði hún, eins og hún
hefði verið að reyna að muna eitt-
hvað, ég rakst annars á hann sem
snöggvast í dag.
— Talaðirðu við hann?
— Hann heilsaði mér og talaði
við mig rétt sem snöggvast. Hann
var kurteis, en dálítið vandræða-
legur. Hann spurði hvernig mér
gengi. Hann er að skipuleggja nýja
sýningarferð.
— Og hvernig leizt vinstúlku
binni á hann?
— Hún sagði ekkert um það til
eða frá.
— Spurði hann þig hvort hann
gæti hitt þig aftur?
— Já, hann vildi endilega hitta
mig aftur ,en ég vildi það ekki.
Hann sagði, að þau væru ekki leng-
ur saman, Rina og hann.
Hann vissi af reynslu, að Anna
entist aldrei til að halda áfram að
segja ósatt. Kannski var hún nú
búin að komast upp á það. Kannski
hugsaði hann, hryggur í huga, segir
hún ósatt nú, af því að hún vi!l
ekki þurfa að fara héðan, þar sem
hún hefur búið við bægindi og liðið
vel.
Hann var nú orðinn svo hræddur
um, að hún hefði verið með Nello
d’Amore þetta síðdegi og látið hann
njóta blíðu sinnar ,að hann spurði
einskis frekara. Þetta var allt svo
sársaukafullt, að hann skorti hug-
rekki til þess að horfast í augu við
sannleikann. Ef hún játaði að hafa
lagzt með söngvaranum ætti hann
ekki annars úrkost en að segja
henni að fara sína leið og koma
aldrei fyrir sin augu framar, en
honum fannst að það yrði sér svo
erfitt, að hann mundi aldrei sjá
glaðan dag framar — af því að
hann vissi, að leið hennar mundi
liggja þangað, sem miður þokka-
leg ævintýri biðu hennar, i stuttu
máli, leiðir hennar mundu allar
liggja niður á við. En mundi það
ekki verða enn þungbærara, að búa
með henni áfram, og ávallt við
þann grun, að hún hefði farið á
fund söngvarans?
Nokkrum dögum siðar sagði
Anna honum, að hún hefði ákveðið
að leita sér vinnu á ný. Henni
stæði til boða eitthvað hjá leik-
flokki, sem ætlaði í langt ferðalag
til borga og bæja úti á Iandi.
— Ég get ekki haldið áfram að
láta þig sjá fyrir mér, sagði hún.
Mér finnst líka, að ég verði að fara
að vinna, og sannast að segja verð
ég að játa, að þetta leikaralíf hef-
ur sitt vissa aðdráttarafl fyrir mig.
Það hleypur stundum í mig óeirni,
mig langar til að flytja, sjá nýjár
borgir ,og ég sakna litlu gistihús-
anna úti á landi þrátt fyrir allt,
og matstofanna, þar sem við erum
öll í hóp, mötumst, gerum að
gamni okkar. Ég er víst ékki sköp-
uð fyrir hið rólega kyrrláta líf, þeg-
ar allt kemur til alls. Ég er farin
að verða hvumpin stundum, þú
hlýtur að taka eftir því hvernig
ég er í skapinu stundum.
— En af hverju hefurðu ekki
sagt mér fyrr, að þú værir orðin
þreytt á þessu kyrrláta lífi — og
að þú vildir breytingu?
— Ég hef verið að hugsa málið
— og ég skil allt svo miklu betur
núna. Og það kemur ekki til, að ég
lendj í neinu leiðu framar. Það til-
heyrir liðnum tíma.
— Hvaða leikflokkur er þetta?
— Það er annar flokkur en síð-
ast — en sami leikstjóri. En það
verður allt önnur stjórn á hlutun-
um nú.
— Hver bauð þér þetta hlutverk?
Anna hikaði stundarkorn, áður
en hún svaraði, blátt áfram og eðli-
Iega:
— Nello d’Amore, söngvarinn.
— Er hann líka í flokknum?
— Já, þetta verður allt miklu
betra en síðast. Ég verð með hon-
um í fjórum atriðum.
— Hefurðu hitt hann oft?
— Tvisvar. Til þess að tala um
sýningaferðina. Nú er hann frjáls.
Hann er búinn að slíta öll tengsl
við þá gömlu, og hann getur gert
hvað sem honum sýnist.
Anna virtist ekki gera sér neina
grein hvaða játning fólst í því, sem
hún var búin að segja Marcello.
— Og þú verður kannski ást-
kona hans?
— Ég veit það ekkí, sagði Anna
og brosti dálftið. Það er ekki gott
að vita hvað gerist þegar maður
er með honum. Hann er óvenjuleg-
ur. Annars eru margar á eftir hon-
um, en hann hefur ekki bundið sig
við neina. Hjá flestum sefur hann
bara einu sinni og lætur þær svo
róa. En hvað mig snertir þá þykir
honum reglulega vænt um mig.
Það fór ekki fram hjá Marcello,
að undir niðri dáðist Anna að Nello
d’Amore, en hún þorði ekki að gera
sér vonir um nein föst tengsl þeirra
milli, og það var engu líkara en
hún áliti það heiður að verða fyrir
valinu sem rekkjufélagi hans þegar
honum bauð svo við að horfa.
— Þú lýstir honum einu sinni
svo, að hann væri hégómlegur,
hrokafullur, hrottalegur. —
— Já, en hann hefur breytzt,
sagði Anna af áhuga og hún hafði
orðið því friálslegri í tali sínu sem
lengur leið. Marcello skildi vel, að
bað var enn að koma í ljós hjá
henni þörfin að Jétta á sér með því
að segia ollt af létta.
— Hann hefur verið nærgætnari
og betri við mig en ég veit til. að
hann hafi verið við nokkra aðra.
I gær bauð hann mér til hádesis-
verðar. Hann hefur aldrei boðið
neinni konu til hádegisverðar fvrr.
Hann fær svo fliótt leiða á kon-
um. Hann sefur kannski hiá þeim
einu sinni. en svo vill hann hvorki
hevra bær né siá framar. Hann
kemur allt öðru vfsi fram við mig.
t gær vildi hann aka mér f leigu-
bfl alla leið til Cola di Rienzo.
Og andlit Önnu liómaði af til-
hugsuninni um, að Nello d’Amore
hefði boðið henni að aka í leigu-
bíl. Háðs kenndi oft f rödd hennar,
er hún sagði frá, en Marcello veitti
því athygli, að nú er hún ræddi um
söngvarann, örlaði ekki á því.
Marcello minntist þess, að hún
hafði eitt sinn sagt honum. að hún
væri manneskía, sem beita ætti
nokkurri harðneskiú við. Þannig
hafði framkoma söngvarans verið
gagnvart henni, og hún hafði látið
kúgast, og nú var hún reiðubúin
að fylgja honum sem hundur, þótt
hann kannski léti hana afskipta-
lausa vikum eða mánuðum saman,
og henni fannst það afskaplega
mikilvægt, að hann hafði boðið
henni upp á hádegisverð og að aka
henni í leigubíl, en það vó ekki
mikið hjá henni, að hann — Mar-
cello — hafði tekið við henni, boð-
ið henni að búa hjá sér, látið hana
njóta öryggis heimilis, steypt sér f
skuldir hennar vegna ,selt silfur-
muni og húsgögn. Það skipti hana ,
ekki neinu nú.
Og hún horfði á hann, einlæg á |
svip, og heiðarleg, og tillit augn-
anna bar því vitni, að hún ætti
bágt og vænti fulls skilnings hjá
honum og hjálpar.
— Og hvenær hugsarðu þér að
fara? spurð Marcello, sem sá í
hendi sér, að fengin var lausn á
vandamálum hans sjálfs — en á
allt annan veg en hann hafði óskað
og ekkj sársaukalaust, þótt hann
varðveitti ró sína á yfirborðinu.
— Næsta miðvikudag, sagði
Anna, — eftir fjóra daga. Á morg-
un fer ég að búa mig til ferðar-
innar. Þú hefur verið mér góður.
t En þér mun vegna betur án mín.
: Þú færð Iíka án vafa betri ró til
starfa.
Anna stóð upp og renndi um leið
! fingrum um hár sitt.
Hárgreiðslusíofan
HÁTONl 6, sími 15493.
Hárgreiðslustofan
S Ó L E Y
Sólvallagötu 72.
Sími 14853.
Hárgreiðslustofan
P I R O L A
Grettisgötu 31, sími 14787.
Hárgreiðsiustofa
VESTURBÆJAR
Grenimel 9, sími 19218.
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
(María Guðmundsdóttir)
Laugaveg 13, sími 14656.
Nuddstofa á sama stað.
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ
Laugaveg 18. 3. hæð (lyfta).
Sími 24616.
Hárgreiðslustofan
Hverfisgötu 37, (horni Klappar-
stígs og Hverfisgötu). Gjörið
svo vel og gangið inn. Engar
sérstakar pantanir, úrgreiðslur.
P E R M A, Garðsenda 21, sími
33968 — Hárgreiðslu og snyrti-
stofa.
Dömu, hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN,
Tjarnargötu 10, Vonarstrætis-
megin. Sími 14662.
Hárgreiðslustofan
Háaleitisbraut 20 Sími 12614
10 ára starísemi
sannar traust
viðskipti.
Komið og skoðið
okkar mikla úrvai.
Salan er örugg hjá
okkur.
HÖSBYGGJENDUR
Leigjum skurðgröfur, tökumi
/að okkur í tímavinnu eða á-l
Ikvæðisvinnu allsltonar gröft og}
imokstur. — Uppl. í síma 142951
íkl. 9-1 f.h. og frá kl. 7-11 á\
(iivöidin í síma 16493.
Nýir bílar,
Commer Cope St.
8IFREIÐALEIGAN,
Bergþórugötu 12 Simar 13660,
14475 og 36598
Hef kaupanda að
góðum Scoda
Station og einnig
að góðum 6 manna
amerískum bíl.
GAMLA BÍLASALAH
E^oT is "" COQj
|^lir~RAu ÖARÁ
3 SKÚLAGATA 55 — SfMI 13812
SSSaSSaHBK3»m^J»taSSSS3S3EXE
liöópýriáht P. I. 6. Bo* 6 Copenkager>;::i:
.....
icr. 2S.©@