Vísir - 05.09.1963, Side 6
6
V í S I R . Fimmtudagur 5. sept. 196%,
Á HVERAVÖLLUM-
Framhald af bls. 9.
ferðum en þar var hvergi mann
að sjá.
Sama haust skeði það eitt
sinn þegar ég var einn í kof-
anum, sat á rúmfleti mínu og
ætlaði að fara að hátta að ég
heyri fótatak fyrir utan. Um
leið sé ég einhverjum bregða fyr
ir gluggann, en svo snöggt að ég
gat ekki greint hver það var.
Ég snaraðist þá út til að fagna
komumanni en úti var enginn
og útilokað, að þar hafi nokkur
mennsk vera verið á ferli.
— Hafa fleiri séð drauga á
Hveravöllum heldur en þú?
— Já, í skála Ferðafélagsins
dvaldi austurrísk kona í fyrra-
sumar og svaf einsömul í litlu
herbergi norðanvert f sæluhús-
inu. Eina nóttina vaknaði hún
við það að herbergið var orðið
fullt af draugum. Hún hélt í
fyrstunni að þetta væri fólk, en
það voru þá bara draugar.
Draugamir á Hveravöllum eru
góðir draugar. Hér þrífst ekkert
illt.
Engin kyrrð
í kyrrðinni
Þegar ég hafði sannfærzt um
það að draugar væru til á Hvera
völlum kvaddi ég þá Jón og
Marel eftir að hafa þegið hjá
þeim bæði hverabakaða jóla-
köku og rúgbrauð og drukkið
nægju mína af ágætis kaffi. Ég
þurfti að heilsa upp á þriðja
Hveravallabóndann, sem býr í
litlu húsi austan við sæluhús
Ferðafélagsins. Sá heitir Þorleif
ur Hauksson og er stúdent úr
Reykjavik. Hann kom hingað
líka í júlíbyrjun og yfirgefur
Hveravelli um miðjan septem-
ber.
— Þú stundar nám við Há-
skóla Islands?
— Já, ég er í íslenzkudeild-
inni og ætlaði að nota tækifær
ið hér í kyrrðinni að ganga frá
SÆNGUR
Endumýjum gömlu
sængurnar. Eigum æðar
dúns og gæsadúnssæng-
ur og kodda í ýmsum
stærðum.
DÚN- OG
FIÐURHREIN SUNIN
Vatnsstíg 3 . Sími 14968
LAUGAVE6I 90-02
D.K.W. ’64 er kominn.
Sýningarbíll á staðnum
til afgreiðslu strax. -
Kynnið yður kosti hinn-
ar nýju DKW bifreiðar
1964 frá Mercedes Benz
verksmiðjunum.
Salan er örugg hjá
okkur.
ritgerð undir fyrri hluta próf.
En hér er bara engin kyrrð.
— Nú hefur þú orðið fyrir
draugagangi líka?
— Nei bara mennskum gesta
gangi, en það er nóg ónæði
af honum þó að draugar ónáði
mann ekki líka.
— Er mikið um ferðafólk í
sumar?
— Hefur sennilega aldrei ver
ið fleira en nú. Ég starfa hér
að húsvörzlu fyrir Ferðafélagið
m. a. og sel auk þess benzín
þeim sem benzínþurfi eru. Það
hafa fáar nætur verið gestalaus
ar í sumar og iðulega miklu
fleiri gestir en húsið hefur rúm-
að. Það hefur mikið verið keypt
af benzíni, enda virðist benzín-
sala vera nauðsynleg þjónusta
fyrir ferðalanga, því það er
langt héðan að næstu benzin-
sölu. Fólk vill líka endilega
kaupa af mér gos og sælgæti
en svo langt er ég ekki kominn
í kaupmennskunni ennþá.
Homsíli
í heitum hver
— Er eitthvað um það að
fólk dvelji langtímum á Hvera-
völlum?
— Margir staldra við í nokkra
daga, allt að viku eða lengur.
Það er gott að hvila sig hérna,
ganga um í hrauninu, tína fjalla
grös, baða sig f lauginni eða
veiða silung í Seyðisá. Allt er
þetta til staðar. f sumar hafa
brezkir stúdentar og háskóla-
kennarar dvalið hér í nokkurn
tfma.
— Hvað eru þeir að gera?
— Þeir eru hér f rannsðkna-
skyni. Það ér nökkuð stðr leifi'-
angur sem hefur dreift sér um
óbyggðirnar við Langajökul og
Kjöl til að athuga líf í hver-
um. Þeir virðast hafa komizt að
hinum furðulegustu niðurstöð-
um m. a. telja þeir sig hafa
fundið ákveðna tegund af sílum
sem lifir f 90 stiga hita. Virðist
hafa getað lagað sig til eftir
aðstæðum í svo heitu vatni. Eitt
hvað fleira markvert telja þeir
sig hafa fundið í fslenzkum hver
um.
Óveðurskráka
— Þú starfar hér að einhverju
leyti á vegum Veðurstofunnar.
— Já, ég les á mæla á 3 klst.
fresti, á daginn og færi athug
anir mínar inn f bækur. Það er
talsverð vlnna. Loks sendi ég
Veðurstofunni veðurfregnir héð
an þrisvar á dag f gegnum tal-
stöð, kl. 9 árdegis, 12 á hádegi
og 6 síðdegis. Þetta er annað
sumarið sem gerðar hafa verið
veðurathuganir á Hveravöllum,
en meiri áherzla lögð á þær
f sumar en áður.
— Hvernig hefur veðrið verið
f sumar?
— Það má kannski gera sér
í hugarlund hvernig það hefur
verið eftir viðurnefninu, sem
fjárvörzlumennirnir hér á Hvera
völlum hafa gefið mér. Þeir
kalla mig óveðurskráku. Og það
er víst orð að sönnu að veður-
farið hefur i senn verið kalt og
leiðinlegt f sumar. Fyrstu dag-
ana sem ég var hér í júlíbyrjun
var gott veður og þá komst
hitinn upp f 17 stig, en síðan
ekki söguna meir. Venjulega
hefur verið 2—5 stiga hiti,
stundum komizt niður fyrir
frostmark og fimm sinnum hef-
ur snjóað.
— Þú segist senda veðurfregn
imar gegnum talstöð. Hefurðu
notað hana til annarra þarfa?
— Hún kom m.a. að góðu
liði f bæði skiptin sem verið var
að leita að týnda fólkinu, Guðna
tannlækni og Jónu Sigríði hesta
konu. Það er mikið öryggi að
hafa talstöð og hún getur kom
ið að ómetanlegu gagni í ýms-
um tilfellum. Við hana er tengt
langt loftnet á 5 metra háum
möstrum, eitt hið mesta mann-
virki sinar tegundar í öræfum.
Það heyrist líka ágætlega i
henni. Svo hafa fjárverðirnir
líka aðra talstöð, þannig að það
er vel búið að fjarskiptasam-
böndum okkar Hveravallabúa.
Rannsóknir
á grasvexti
í óbyggðum
— Þú ert benzínkaupmaður,
húsvörður og veðurfræðingur
hér í óbyggðum. Hefurðu fleiri
embætti á hendi?
— Já ég er jurtavísindamaður
líka — eða „grasasni" — ef
það skýrir málið betur.
— Hvað áttu við?
— Ég tók að mér athuganir
á gróðurreitum á Kili fyrir At-
vinnudeild Háskólans. Þessir
reitir eru á fjórum stöðum, þ.e.
á Hverafjöllum ,f Kerlingarfjöll
um, Hvítárnesi og í Arnarbæli
undir Sandkúlufelli.
— I hvaða skyni eru þessar
athuganir gerðar?
— Þetta er tilraunir til grasa-
ræktar í því augnamiði að
græða upp öræfin einhvern-
tíma í framtíðinni. Þarna verður
að rannsaka hvaða grastegundir
henta bezt, hvaða áburður sé
heppilegastur og fleira. Þessar
athuganir hafa m. a. leitt í Ijós
að sumar grastegundir hætta
að spretta eftir að áburðargjöf
lýkur. Þá eru og gerðar tilraun
ir með ákveðnar belgjurtir í og
•meðf til. að látaí-jurticaar./Sjálfar
n.'SÍf fynr: áburíÍarþ^rfvím'fffi.Áf1-
Allt er þetta á tilraunastigi enn-
þá, en ég hef tekið að mér að
fara á milli þessara staða á
hálfsmánaðarfresti í sumar og
gera nauðsynlegar athuganir og
mælingar.
Háskólabíó sýnir um þessar
mundir mynd, sem á frummál-
inu hefur verið kölluð Charlton
Browne of the F.O. (Foreign
Office), og hefur myndin hlotið
klassískt heiti á íslenzku: Sá
hlær bezt sem síðast hlær. Nafn
ið virðist algerlega úr lausu
lofti gripið, og verð ég að segja
að það sóttu á mig ýmsar aðr-
ar tilhneigingar en hlátur með-
an ég horfði á þessa mynd. Leik
endaskráin er anzi litrík og
spennandi, Peter Sellers fer með
eitt af aðalhlutverkum á móti
Terry Thomas og hinni ítölsku
þokkadís Luciana Paoluzzi. Efni
myndarinnar gaf bæði gullin
tækifæri og mörg tækifæri til
hlátursvakningar, en það var
annaðhvort skotið yfir markið
eða alls ekki skotið að markinu.
Charlton Browne (Terry Thom-
as) hefur verið komið í rólega
deild í utanríkisráðuneytinu
brezka, en þar hefur hann aldrei
fengið að spreyta sig á neinu
verkefni fyrr en allt í einu að
smáríkinu Gaiiladíu skýtur upp
og veit þá enginn einu sinni
hvar það er, en eftir mikla eft-
irgrennslan kemur í ljós að rík-
inu var veitt sjálfstæði fyrir
löngu en gleymzt hafði að senda
tilkynningu þess efnis til við-
komandi yfirvalda svo nú var
illt í efni. Charlton Browne er
sendur af örkinni til að kanna
málin, og nú hefur komið í ljós
að þarna gæti verið um einhver
verðmæti í jörðu að ræða, og
!fer þá málið sótt af ofurkappi.
Kóngurinn er sprengdur í loft
upp á suðuramerískan hátt og
allt fer I eina flækju. Fram að
þessu er myndin háif leiðinleg.
Nú koma tveir eða þrír brand-
arar með hjálp Peters Sellers,
sem leikur þarna óviðjafnan-
lega, og hlutverk hans í þetta
sinn er ráðherra í þessu fjar-
læga smáríki, en hlutverkið er
ekki nógu veigamikið til að hon-
um gefist nokkur kostur til að
ná sér almennilega á strik. Eftir
þennan smákafla í myndinni
kemur hersýningarkafli sem er
hlægilegur í endann, en hefði
getað verið virkilega fyndinn út
í gegn. Að öðru leyti er myndin
leiðinleg eins og áður er sagt,
og langt frá því að eiga það
skilið að vera kölluð gaman-
mynd.
Myndatakan var með betra
móti, og lýsingin á mörgum stöð
um sérstaklega skemmtileg. —
Nætursenurnar voru lýstar á
sama hátt og tíðkast í ítölsk-
um og frönskum myndum, og er
ánægjulegt að verða svona mik-
ið var við þessi latnesku áhrif.
Það var aðeins eitt tæknilegt
atriði, sem fór mikið í taugarn-
ar á mér, og það var þegar Big
Ben í London var sýndur á
meðan á fréttum útvarpsins
stóð. Á þessum kafla virtist
myndatökumaðurinn hafa fengið
hnerra, því allt í einu hoppaði
myndin hroðalega til og hef ég
aldrei séð svona atriði á hvíta
tjaldinu síðan ég kom úr skóla.
Er ég hissa á að klippingamað-
urinn skyldi hleypa þessu svona
í gegn. Það eintak myndarinnar
sem hingað hefur borizt er illa
farið og skemmt, og bætir það
ekki úr skák.
Þetta er mynd, sem. ég ráð-
legg fólki að halda sig frá nema
í neyð, þá má sjá hana með
þau ummæli í huga að hún sé
léleg.
Lúðvík Karlsson.
-x
í
V'isir ódýrasta
blaðið
Fyrst kemur hér bréf frá blað
lesanda:
Þá er komið að því sem mig
grunaði að ske mundi eftir hið
fyrsta og langa verkfall blaða-
manna og verulegar kjarabætur
þeirra. Blöðin hafa hækkað verð
sitt.
Það gleður mig þó að Vísir er
nú ódýrasta blaðið, 10 krónum
ódýrara í áskrift á mánuði en
öll hin blöðin. Það er þannig
með mig og vafalaust margt
eldra fólk, að okkur þykir nokk
uð mikill peningur fara í dag-
blaðakaup. En það er nú samt
svo, að maður vill sjá sem flest
blöðin til þess að geta fylgzt
með. Vísir er kærkominn gest-
ur. Ég les hann fyrir kvöldmat-
inn, þegar ég er kominn heim
úr vinnunni og búinn að hafa
fataskipti. Þar er alltaf eitthvað
nýtt á ferðinni. En eitt vil ég
nefna. Það kemur endrum og
eins fyrir að hann kemur ekki
fyrr en eftir kvöldmatinn, þegar
börnin eru eitthvað sein á ferð-,
inni. Er ekki hægt að bæta úr
þvi?
Hringið, þá
kemur það
Satt er það, að því miður verð
ur stundum misbrestur á út-
burði blaðsins í sumum hverf-
um, þrátt fyrir það að afgreiðsla
blaðsins geri allt sem í hennar
valdi stendur til þess að koma
Vísi skilvislega til áskrifenda.
Ég hefi spjallað við afgreiðsl-
una, vegna þessa bréfs, og biður
hún fyrir þau skilaboð að ef
blaðið komi óreglulega eða of
seint að þá sé strax hringt í
afgreiðsluna, sími 11660. Verður
blaðið þá sent með bifreið strax
til allra þeirra sem hringja fyrir
kl. 8 að kveldi. Vona ég að allir
hafi þetta í huga og geri strax
viðvart ef einhver misbrestur
verður. Tímabundnir erfiðleikar
eru þessa dagana þar sem skól-
arnir eru að hefjast.
Tr’óllin / þokunni
Hér kemur bréf sem fjallar
um mál sem verið hefir allmjög
á döfinni að undanförnu og
menn skipzt mjög ( tvo hópa
um. Er það Þokumálið svo-
nefnda, sem tvö ljóðskáld Vik-
unnar komu á kreik og síðan
hefir valdið miklum blaðaskrif-
um og deilum. Stud. mag. ritar:
'.V.W.V.V.V.W.W.V,
„Mér þykir sem aðalatriðið í
þokumálinu hafi ekki komið
fram og að það hafi farið fyrir
ofan garð og neðan hjá þeim
sem um þessa skoplegu glettu
rituðu í blöð borgarinnar. Það
er ofur vel skiljanlegt að menn-
ingarvitarnir tíu eða hvað þeir
voru nú margir, hafi tekið hinu
unga ljóðskáidi, Jóni Kára vel,
og ekki viljað drepa ungt skáld
blóm með ómildum dómum. Er
því eðlilegt að ummæli þeirra
hafi þess vegna verið mjúk og
vægari en efni stóðu til.
Hitt þykir mér aftur á móti
furðu sæta, að enginn menning
arvitanna skuli hafa áttað sig á
að hér var um brellu að ræð.a
af gerð ljóðanna, :— sem þó
líggur í augum uppi. Og enn
undarlegra þykir mét; það að
enginn þessara vísu bókmennta-
manna skuli hafa séð að sums
staðar var um algerar og stráks
legar stælingar að ræða á ljóð-
um góðskálda okkar.
Þetta þykir mér veikasti
punkturinn í þessu máli, þvi all
ir vilja þeir menn sem leitað var
til teljast bókmenntamenn. En
er fróðleikurinn ekki djúpstæð-
ari en þetta eða skarpskyggnin?
Þar þykir mér bogalistin hafa
mest brugðizt, og bar eru brjóst
gæðin engin afsökun".
Kári.
V.V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.