Vísir - 05.09.1963, Blaðsíða 13

Vísir - 05.09.1963, Blaðsíða 13
V1SIR . Fimmtudagur 5.. se£t. 1963 13 Fötin tekin úr töskum, Guðrún og móðir hennar skoða úrklippur. Didda það Á næstunni verður hún f Róm, verður að vera komin þartgað til ljósmyndunar 14. september. Sjö þúsund áhorf- endur hylltu hana á Langasandi. Miiljónir sáu hana í sjónvarpi. íslendingar fylgdust allir sem einn með henni eftir að hún sigraði á Langasandi. Henni verður fagnað í Róm. En hún segist vera búin að fá ieið á svona tilstandi. „Hún er feim- Framhald af bls 3 tveim tízkuskólum áður en ég fór til Sigríðar. Þessir útlendu kenna margir tilgerðarlegt göngulag. Hjá henni iærði ég miklu eðiiiegri framkomu. Ég skil ekki hvar hún hefur lært þetta, hún hlýtur að hafa kynnt sér það í mörgum skólum. Ég held að ungar stúlkur, sem eru ekki öruggar í framkomu og skortir sjáifstraust, eigi að fara í tízkuskóla. Ég er búin að kynn ast mörgum dæmum sem sanna þetta“. Eitt erlendu blaðanna sagði um Guðrúnu það, sem er eins konar einkunn fyrir framkomu hennar sjálfrar: „Hún er feimin, en ber sig tígulega, án þess að vera tilgerðarleg“. Erlendu blöðin sögðu að henni þætti gaman að sundi og lang- aði til að læra að Ieika. Guðrún sagðist vilja reyna að komast að þekktum leikskóla í New York, en var ekki viss um að hún fengi inngöngu. URVAL af ódýrum sólgleraugum. Verð frá 54.00. Instant - Tan Vökvi, sem gerir húðina fallega brúna án sólar. SNYRTIVÖRUBÚÐIN Laugavegi 76 . Sími 12275 ÞriBja stöðin salt- ar 20 bús. tuanur Saltað var I 20. þús. tunnuna hjá söltunarstöðinni Sunnuver á Seyðisfirði kl. 2 f nótt og eru þá 3 söltunarstöðvar á Seyðis- firði búnar að salta yfir 20 þús. j tunnur, hinar 2 eru Hafaldan og Ströndin. Þrenn verðlaun voru veitt af því tilefni og hlaut 1. verðlaun Gunnur Magnúsdóttir frá Seyð- isfirði og var það ferð með Gull- fossi til Khafnar og Hamborgar og heim aftur. Tvenn aukaverðl. voru veitt og hlutu þau 2 ungar stúlkur Nanna Finnbogadóttir og Ingibjörg Svavarsdóttir, báð ar frá Seyðisfirði, Þe$s má geta að Ingibjörg er systir þiltsins er fékk gullúrið í söltunarverðlaun þegar Ströndin saltaði í 20. þús. Útsalan stendur aðeins þessa viku. HATTABÚÐIN HULD Kirkjuhvoli. BILA OG BÚVÉLA SALAN v/Miklatorg Simi 23136 tunnuna. Eins og tíðkast hefur þegar 20. þús. tn. hefur verið söltuð, fengu allir konfektkassa að gjöf. Á Seyðisfirði er enn verið að salta og er það sérverkuð síld, en gert var ráð fyrir að allri söltun myndi ljúka í dag. Síldarfólk er nú óðum að halda heimleiðis og fór mjög margt með Esjunni um sl. helgi og að því er fréttaritar; Vísis á Seyðis firði sagði er nú ástandið í þorp inu að komast í eðlilegt horf. I wtt fuiuiv 1 nyir fæknm Nokkrum nýjum læknum hefur nýlega verið veitt Iækningaleyfi. Eru það þessir læknar: Höskuldur Baldursson, Kristján BaldvinSson, Jón Jóhannesson, Gunnar Gunn- laugsson, Jón R. Árnason, Jóhann Lárus Jónasson og Knútur Björns- son. 1 vikunni sem leið Iiandtók lög- Aðolfundur félags eftirlits- monna með rofveitum Fjórði aðalfundur félags eftirlits manna með raforkuvirkjum var haldinn að Bifröst í Borgarfirði dag ana 24. og 25. ágúst. Fundinn sátu eftirlitsmenn víðs- vegar að af landinu auk nokkurra gesta. Meðal gesta var fulltrúi raf magnseftirlitsmanna í Osló inspekt ör Sven Svendsen starfsmaður hjá Osló Lysverker. Formaður félags- ins var endurkjörinn, Friðþjófur Hraundal. Aðrir í stjórn eru Stefán V. Þorsteinsson, Stefán Karlsson, Guðmundur Jónsson, Hjörtþór Ág- ústsson. Fræðslustjóri var kosinn Oskar Hallgrímsson en aðrir í fræðslunefnd eru: Magnús Reynir Jónsson .Baldur Helgason, Bjarni Skarphéðinsson og Oddur Jónsson. Aðalmál fundarins voru öryggis- og fræðslumálin. Á fundinum ræddi formaður rafvirkjasambands ins nokkuð um rafmagnseftirlits- málin og hvatti til aukinnar sam- vinnu rafvirkja og rafmagnseftir- litsmanna til varnar gegn hættum og tjóni af rafmagni og fékk góð- ar undirtektir fundarmanna. reglan fjóra pilta, sem játað hafa á sig ýmiss konar skemmdarverk, sum þeirra næsta níðingsleg, auk margra auðgunarbr.ota. Þrir þessara pilta á aldrinum 16 —19 ára, voru aðalmennirnir í þessu athæfi, en fjórði pilturinn á hlutdeild í tveim innbrotum með þeim, en að öðru leyti kemur hann ekki við sögu. Þessi innbrot voru annars vegar í Sælakaffi við Nóa- tún, þar sem þeir stálu 450 kr. í peningum, talsverðu af sælgæti o. fl. Auk þessa fóru þeir í ísskáp veitingastofunnar og gæddu sér á krásum. Hitt innbrotið frömdu þeir í félagsheimili KR við Kaplaskjóls- veg og stálu þar sælgæti. Þremenningarnir, sem eiga eink- um hlutdeild í þessu misferli, hafa undanfarna mánuði verið iðjulaus- Hinn 29. maí s.l. voru stofnuð samtök íslenzkra barþjóna. Við- staddur stofnun samtakanna var forseti alþjóðasamtaka barþjóna, hr. Kurt Sörensen, sem var félags- legur ráðunautur við stofnun þeirra. Sörensen kom hingað í boði fyrirtækisins Konráðs Axels- sonar & Co. Samtökin hafa engin afskipti af kjaramálum meðlima sinna og taka ekki afstöðu til stjórnmála. Takmark samtakanna er m.a.: Að efla og bæta starf og mennt- un barþjóna m.a. með því að taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi barþjóna og hefur í þeim efnum sótt um upptöku í alþjóðasam- tökin. Að sjá um að allir drykkir séu eingöngu framreiddir samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum upp- skriftum, bæui að því er varðar blöndun og blöndunarefni, og vinna jafnframt að því að nýjar blöndur hljóti viðurkenningu. Að hafa vinsamlegt óháð sam- starf við alla þá aðila, sem áhuga hafa á málefnum samtakanna. Stjórn samtakanna skipa: For- maður Símon Sigurjónsson. Vara- formaður Daníel Stefánsson. Rit- ari Þórarinn Flygenring. Gjaldkeri Róbert Kristjónsson. Meðstjórn- andi Jón Þór Ólafsson. í vara- stjórn Stefán Þorvaldsson. Endur- skoðendur Christian Ewald Torp og Jón Jóhannesson. stálu ir, og á þeim tíma lagzt i ræfil- dóm og ómennsku. Drukkið hafa þeir öðru hvoru, en húsaskjól var þeim veitt hjá ungri stúlku, sem einn þeirra hafði áður þekkt. Eitt skemmdarverk piltanna og það síðasta áður en þeir náðust var að ráðast með grjótkasti að næturlagi á byggingu mjólkurstöðv arinnar við Laugaveg og brjóta 14 rúður. Annað skemmdarverk og miklu níðangurslegra, unnu tveir þeirra einnig að næturlagi í tveim hænsna húsum í Herskálahverfi. 1 öðru þeirra létu þeir sér nægja að brjóta rúður, en í hinu rifu þeir vírnet frá gluggum og létu síðan grjót- hríðina dynja á hænsnunum inni í húsinu. Tókst þannig að grýta 5 hænur í hel, en 8 aðrar voru svo limlestar að eigandinn varð að af- lífa þær um morguninn þegar hann kom að hænsnahúsinu. Voru hænsn in þá enn tryllt af ótta í húsinu og hafa enn ekki náð sér til fulls. Af auðgunarbrotum, fyrir utan innbrot þau, sem að framan grein ir, hafa piltarnir játað að hafa stol ið tveim skyrtum úr verzlun við Laugaveg og reiðhjóli i Blesugróf. Síðustu dagana lifðu þeir á því að flytja bækur milli staða, þ.e. að þeir stálu þeim í þremur bóka- verzlunum bæjarins en seldu þær fornbóksölum. Kváðust þeir hafa stolið 10-15 bókum samtals og hafi andvirði hverrar bókar numið 130- 260 kr. en verðið sem fornbóksal- arnir gáfu þeim fyrir þær hafi num ið frá 45 og allt að 90 kr. fyrir hverja bók.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.