Vísir - 05.10.1963, Síða 1

Vísir - 05.10.1963, Síða 1
Blaðið ð dag Þess munu vafalaust engin dæmi í sögu haustleita að leit- armenn hafi verið fiuttir á sleð- um með beltisdráttarvélum og jarðýtu í fyrstu göngur fyrr en nú í haust, að þetta gerðist norð ur á Eyvindarstaðaheiði fyrir nokkrum dögum. í þennan einstæða ieiðangur var lagt frá Steiná í Svartárdal og var haldið áfram sam- fleytt í 16 klukkustundir, eða frá kl. 1 e. h. á þriðjudag til kl. 5 á miðvikudagsmorgni, en þá var komið á leiðarenda að svo- kölluðum Ströngukvíslarskála, alllangt fyrir norðan Hofsjökul. Á þessum 16 klukkustundum, sem ferðin inn eftir tók, fengu gangnamennirnir, 12 karlar og 2 stúlkur, að reyna öll stig ís- lenzkrar veðráttu, allt frá blæja logni og glampandi sólskini yfir í fárviðrj með öskrandi stór- hríð og síðan bleytuhríð með roki. Það voru þreyttir smalar, van svefta, holdvotir og umfram alit kaldir, sem bar að garði í Ströngukvíslarskála kl. 5 á mið- vikudagsmorgni En þar f skál- anum var fyrir fjallkóngur þeirra Eyvindarstaðaheiðarleit- armanna, Sigurður Guðmunds- son frá Fossum, við fimmta mann. Höfðu þeir vakað eftir hópnum og höfðu heitt kaffi á kónnunni handa honum, enda var það vel þegið og þakksam- lega. Ekki var þó til setunnar boð- ið, því f húfi var líf nokkur þús und fjár þeirra Svartdæla og því varð að bjarga hvað sem tautaði. Eftir klukkustundar- svefn voru smalarnir ræstir og skipað f leit. Sumir höfðu ekki þurr föt til skiptanna og urðu að hefja göngu í sömu blautu fötunum og þeir komu í um morguninn. Þá var nær óstætt sökum hvassviðris, en samt var ekki hikað við að gera skyldu Framh. á bls. 5. Grettla flutt í leikrítsformi Það hefur farið í vöxt hjá ríkisútvarpinu upp á sfðkastið að flytja framhaldsleikrit, þannig að ýmsum bókmennta- verkum hefur verið breytt í leikritsform. Hefur þetta notið óskiptra vinsælda meðal hlust- endanna. Til dæmis var saga Einars Kvarans, Ofurefli, flutt í fyrra, svo var og með Lornu Doon o. fl. verk. Ennfremur er farið að flytja léttari verk, svo sem leynilögreglusögur f þessu vinsæla og áhrifamikla formi. En innan skamms verður far- ið út á nýja braut f þessu. Ein af íslendingasögunum, eða Grettis saga verður flutt í leik- ritsformi, eða nokkrir kaflar úr henni. Á að hefja flutning á henni í útvarpið um næstu mánaðamót, og er nú unnið að því að taka kaflana upp á segulband. Væri það skemmti- legt ef þetta tækist vel og fleiri íslendingasögur fylgdu á eftir. Framh. á bls. 5. Leitarfólkið gengur á eftir jarðýtunni sem ryður brautina. Þannig var haldið áfram linnulaust í 16 kist. oft f kafaldsbyj. VISIR Bls. 2 Verðlaunakrossgáta — 3 Myndir frá æfingu á leikritinu „Flónið“ í Þjóðleikhúsinu — 4 Þriðji þáttur Denn- ing-skýrslunnar. — 6 Viðtal við Ketil Ingólfsson. — 7 Ónýtir bilar. — 8 Kosið í A.-Þýzkal. — 9 Undrareikningsað- ferð Trachtenbergs

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.