Vísir - 28.11.1963, Blaðsíða 2
2
VISIR . Fimmtudagur 28. nóvember 1963.
ff't?'r !
II ELJi w® 'll, • &m i
WittfflM
nnHBa
Mi«
111
iii
SB
ittifflaæídlssæitiiiBtH
tljH' f.-t Uipt 1% p« ituil aitus. -itiutirttr^ ‘ntr .t *iTííí- H.
m li &ci
"'WBBSiiiaiiKtiiusKHmimltiiiitnti!
atí ’H
1í3 .iiv.l
iiKiiaEi!
wnanBBiBSBBaaiitiiaæ#
JON BIRGIR PETURSSON
r
Sfærsta hagsmunamál ÞROTTAR:
Knattsp yrnu völlur við Njörvasund
Frá aðalfundi ÞRÓTTAR,
seiti haldinn var nýlega
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins
Þróttar var haldinn sunnudaginn
10. nóvember í Sigtúni við Austur-
völl.
Skýrsla fráfarandi stjórnar lá
fjölrituð frammi fyrir fundarmönn-
um, ásamt reikningum félagsins.
Að loknum nokkrum umrœðum
var skýrslan og reikningarnir sam-
þykkt athugasemdarlaust.
Deildarskipting er ekki hjá Þrótti,
en handknattleiksnefnd og ung-
lingaráð starfa samkvœmt sérstök-
um reglugerðum, sem samþykktar
voru á fundinum. Má segja, að fé-
laginu sé þannig raunar skipt í
þrjár deildir: Handknattleiksdeild
og svo tvlskipta knattspyrnudeild,
þ.e. unglinga og eldri knattspyrnu
menn( tvo elztu aldursflokka).
Aðalvandamál Þróttar er, að
félagið hefur ekki enn fengið
samastað fyrir starfsemi sína, þrátt
fyrir það að á síðustu 8 árum,
hefur félagið, sem verður 15 ára
1964, margreynt að fá lóð fyrir
starfsemina, sem nú er orðin mjög
umfangsmikil. Þróttur er eina knatt
spyrnufélagið í Reykjavík, sem
ekki hefur verið úthlutað svæði.
Félagið hefur nú sótt um lóð við
Njörvasund, en umsókninni hefur
ekki verið svarað endanlega enn.
Aðalfundurinn samþykkti ein-
róma áskorun til viðkomandi að-
ila, að umsókn Þróttar yrði af-
greidd hið bráðasta.
Á aðalfundinum var Axel Axels-
son heiðraður, en hann er fyrsti
Þróttarinn sem valinn hefur verið
í A-landslið í knattspyrnu.
Formaður félagsins afhenti Axel
fagran bikar með áletrun, og ósk-
aði honum heilla.
Nokkrir piltar úr 3. og 4. fl.
fengu bókagjafir fyrir ástundun og
prúðmennsku.
Fundarstjóri var Einar Jónsson
og fundarritari Jón M. Björgvins-
son.
í stjórn Þróttar voru kosnir:
Formaður: Jón Ásgeirsson. — I Kristinsson.
Meðstjórnendur: Óskar Pétursson, < Formaður handknattleiksdeildar:
Guðjón Oddsson, Börge Jónsson og Haraldur Baldvinsson.
Jón M. Björgvinsson. I Varamenn: Sölvi Óskarsson og
Formaður unglingaráðs: Kristvin Bjarni Bjarnason.
Frá Skíðaráði Reykjavíkur:
Skíðakennsla á Arnarhólstúni
fyrir börn á aldrinum 10-14 ára,
í kvöld frá kl. 7-8. Krakkar, mætið
vel og stundvíslega.
Körfuknattleiksmétið:
Yfírburðasigur hjá Ármaiwi
1 gær fór fram einn leikur í Is-
landsmótinu í körfuknattleik. KR
og Ármann kepptu og lauk leikn-
um með sigri Ármenninga 67:50. I
hálfleik var staðan 34:23.
Fyrstu tvö stigin skoruðu KR-
ingar, en Ármenningar jöfnuðu og
komust upp í 10:2, án þess að KR-
ingar gætu nokkuð að gert. Hið
unga KR-lið byrjaði vel í seinni
hálfleik og tókst að minnka bilið,
þannig, að staðan var á tíma 38:44.
Þá kom skemmtilegasti kafli leiks-
ins, bæði liðin skoruðu úr fimm
upphlaupum, en eftir það tóku Ár-
menningar að sækja meir og loka-
talan varð 67:50.
Allt Ármannsliðið átti mjög góð-
an leik, en stigahæstir urðu þeir
Sigurður Ingólfsson með 16 stig,
Davíð og Birgir með 14 og Lárus
með 12 stig.
KR-liðið lék með meiri hraða en
iiðið réði við og einnig voru þeir
nokkuð óheppnir með skotin, þá má
og nefna lélegar inná skiptingar. —
Bezti maður liðsins var Kolbeinn
Pálsson, en stigahæsti maður liðs-
ins var Einar Bollason, en hann
mætti missa nokkur kíló til þess að
ná betri árangri.
Það vakti töluverða athygli í
Ieiknum í gær að dömararnir voru
báðir úr ÍR, en IR hafði talsverðra
hagsmuna að gæta í sambandi við
leik þennan og fannst mörgum það
koma fram í dómum þeirra.
- klp.
utlönd í morgun
utlönd í morG,un
útlönd í morgun útlönd í morgun
Johason leggur áherzla á skatta-
lækkun og jafnrétti blökkufálks
Lyndon B. Johnson flutti í gær
fyrstu reeðu sína eftir að hann
tók við forsetaembættinu og var
henni ágætlega tekið af öllum
þingheimi, er hún var flutt í
sameinuðu þjóðþingi Bandaríkj-
anna, og eins er henni tekið i
blöðum i morgun.
The New York Herald Tribune,
eitt áhrifamesta blað Bandarikj-
anna segir að Lyndon hafi talað
eins og sannur forseti, hann hafi
sagt það, sem þurft hefði að segja
og ekki talað eins og maður, sem
allt í einu var orðinn forseti
vegna sögulegrar tilviljunar.
Bæði New York Times og New
York Herald Tribune eru þeirrar
skoðunar, að Lyndon B. Johnson
hafi lagt jafnvel enn meiri á-
herzlu á það en Kennedy gerði,
að lögin um tekjulækkun og jafn-
rétti blakkra manna og hvitra,
næðu fram að ganga án frekari
tafa, bg stafi þetta af þeirri sann
færingu hans, að þv íer blökku-
mennina varðar, að ekki sé hægt
að standa gegn kröfum þeirra, og
Herald Tribune bætir því við,
að hann hafi lagt sérstaka áherzlu
á þessa afstöðu sina, til þess að
taka af allan vafa um hver hún
væri, en margir hefðu talið vafa-
samt, að hann myndi gerast bar-
áttuleiðtogi jafnréttis, þar sem
hann er Suðu-rríkjamaður og and
spyrnan þar gegn frumvarpinu
sterkust.
Johnson sagði að þjóðþingið
gæti á glæsilegastan hátt haldið
minningu Kennedys á lofti með
þvi, að samþykkja án tafar fyrr-
nefnd frumvörp, og er hann sagði
þetta var lófatakið einna mest
undir allri ræðunni, en þar fyrir
eru fréttamenn okkuð í vafa um,
að mikil breyting verði áafstöðu
hörðustu andstæðinga jafnréttis
frumvarpsins ,er það verður rætt
frekar á þinginu.
Johnson boðaði i ræðu sinni
íramhald stefnu Kennedys á sviði
innan- sem utanríkismála.
Frú Kennedy vill kaupa
gamla húsið sitt aftur
Johnson flytur ræðu. (í Háskólabíói).
Jacqueline Kennedy hefir í huga
að kaupa hús það við Northgötu,
þar sem var Washingtonheimili
hennar og manns hennar, en þau
fluttu úr því í Hvíta húsið, er hann
tók við forsetaembættinu í janúar
1961. Þau seldu hús þetta fyrir
um 100 þús. dollara.
Nú hefir Pierre Salinger blaða-
fulltrúi Hvíta hússins tilkynnt, að
frúin hafi þegið boð Averills Harri
mans ráðherra um að búa í húsi
hans í sama hverfi og North-gata
er, skammt frá gamla heimilinu,
Ekki var tilkynnt hvenær hún
flytti úr Hvíta húsinu, en sennilega
stendur það fyrir dyrum.
Forsetinn var auðugur maður og
áttu þau hjón í rauninni margar
eignir, þar sem þau gátu dvalizt,
eftir vild þegar annir leyfðu, og
þessi heimili þeirra voru upp til
fjalla, út við sjó og inni í landi,
en heimilið var vitanlega þar sem
Frú Kennedy og börn hennar
við útförina.
þau voru og börn þeirra, hvar sem
þau voru, en eins og enn standa
sakir er það eitt víst, að frú Kenne
dy er enn óflutt úr Hvíta húsinu
og helzt að ætla eftir seinustu frétt
verða enn óákveðinn tíma.
uí«lS5£SœSI52Z3r$S:Æ3E
I