Vísir - 23.12.1963, Side 9

Vísir - 23.12.1963, Side 9
VI S I R . ltíánudagur uc^.i tjö. 25 SEX HAPPDRÆTTI BJÓÐA UPP Á ÉG EYDDI 350 KRÓNUM 1 SEX HAPP- DRÆTTISMIÐA. SKYLDI HEPPNIN VERÐA MEÐ MÉR? • • \ “<W I: Það var fyrir skömmu, að við Bragi, Ijósmyndari, skrupp- um niður í miðbæ og virtum fyrir okkur nokkra af hinum glæsilegu happdrættisvinning- um, sem freista borgarbúa nú fyrir jólin. Eftir að hafa talið upp öll þau happdrætti, sem nú eru á ferðinni, komu mér ósjálf- rátt f hug orð mannsins sem sagði, að happdrætti væri að- alatvinnuvegur okkar íslend- inga. Sennilega hafa aldrei ver- ið í gangi eins mörg happdrætti og nú fyrir jólin. Eftir stutta gönguferð var ég orðinn 350 krónum fátækari, en í stað þess hafði ég eignazt 6 happdrættis- miða og gat þvi jafnframt leyft mér að vona, að einhver hinna glæsilegu vinninga yrði mín eign. Þrjú mannúðar- og liknarfé- lög, dagblað, stjórnmálaflokkur og Svifflugfélagið bjóða nú happdrættismiða til sölu í mið- bænum, flesta úr nýjum, gljá- fægðum bifreiðum, sem hægt er að spegla sig í, um leið og maður freistar gæfunnar. Þessi sex happdrætti bjóða alls upp á 31 vinning, og heildarverð- mæti þeirra nemur um 2 y2 milljón króna. STYRKURINN LÆKKAÐUR? Á lóðinni að Austurstræti 1 selja Framsóknarflokkurinn, Þjóðviljinn og Svifflugfélagið miða. I blárri Simca-bifreið, skrásettri á Akranesi, sat ungur maður, Ragnar Ragnarsson, og bauð vegfarendum miða í happ- drætti Þjóðviljans. Heilar eitt hundrað krónur tók ég úr veskinu, en í staðinn fékk ég rauðan miða, einn af þeim 40 þús. sem gefnir eru út í happ- drætti Þjóðviljans. Númer miðans, sem ég dró, er 01624. Um leið og við þökk- uðum fyrir miðann spurðum við Ragnar, hvað þeir Þjóðvilja- menn hygðust gera við gróð- ann af happdrættinu. — Ja, ætli blaðið verði ekki styrkt með honum. Nú kom pólitfkin upp í Braga ljósmyndara, svo hann spurði, hvort styrkurinn að austan hefði verið lækkaður. — Ég veit það ekki. Nei, ég býst varla við því, svaraði Ragnar. Á rauða miðanum í happ- drætti Þjóðviljans stendur, að vinningarnir séu 11 talsins, en aðalvinningurinn er fjögurra herbergja íbúð, tilbúin undir tréverk og málningu. Heildar- verðmæti vinninganna er 582 þúsund krónur. / BÍLL OG BÁTUR AÐ ALVINNIN GARNIR. — Ég sigli á þurru landi, sagði blómarósin, sem sat .f Aii Craft hraðbát og seldi miða í happdrætti Svifflugfélagsins. Hraðbátnum fylgir 40 hestafla Johnson mótor. Báturinn er einn af fimm vinningum, sem Svifflugfélagið býður upp á, en aðalvinningurinn er Volvo- bifreið, árgerð 1964, og verð- mæti hennar er 170 þúsund. Líkt og flestir sölumenn happdrættismiða iofaði stúlkan mér bezta vinningnum, ef ég keypti miða. Yið komumst að því, að ungfrúin hét Jónína Ingvars. Sagðist hún selja happdrættismiða aðallega á 'kvöldin. Hún kvað söluna hafa gengið vel, en samkeppnin væri hörð, því að Framsóknarmenn seldu miða öðrum megin við hana, en Þjóðviljamenn hinum megin. Við fengum þær upplýsingar, að Svifflugfélagið efndi til happdrættisins tii þess að geta keypt tvær nýjar svifflugur, aðra þýzka en hina finnska, og er sú síðarnefnda með þeim beztu í heimi að sögn þeirra syifflugmanna. Hún sat í Ali Craft hraðbát og seldi happdrættismiða. — Á mynd- inni er vegfarandi sem stóðst ekki freistinguna. skreppa á milli bæja, svo ekki sé meira sagt. Tuttugu og fimm krónur greiddi ég fyrir miðann, sem er númer 15564. — Við spurð- um sölumanninn einnig að því. gefnir eru út, ásamt loforði frá Lilju Bjarnadóttur um, að drætti yrði ekki frestað. Ram- blerinn er metinn á 270 þús. krónur, og vinningurinn er skattfrjgJs. Ég spprði.'LiIju að. jélj nota ágóðann tii þess að reisa vinnustofur fyrir öryrkja. HRÆRIVÉLIN EINNIG SKATTFRJÁLS. Á Lækjartorgi stendur glæsi- leg Chevrolet-bifreið á dráttar- vagni. Bifreiðin er aðalvinning- ur f happdrætti Styrktarfélags vangefinna, en alls eru vinn- ingarnir 10 talsins. Ég borga 100 krónur og dreg einn miða í ofurlítilli von um að verða ef til vill eigandi þessarar glæsilegu Chevrolet- bifreiðar, en þvf miður eru fleiri miöar í happdrættinu, en miði númer 2095, sem ég dró, svo að það borgar sig ekki að gera sér miklar vonir. Sölukonan segir okkur, að bifreiðin sé skattfrjáls, og meira en það, því það eru vinningarn- ir reyndar allir, bætir hún við, meira að segja hrærivélin. — Já, kannski á ég eftir allt eftir að vinna skattfrjálsa hrærivél í happdrætti vangefinna! KRABBAMEINSRANNSÓKN í SÁRABÆTUR. — Ég hef tekið eftir þvf, að það borgar sig að hafa miðana stóra, sagði miðaldra frú, sem bauð okkur miða til kaups úr happdrættisbifreið Krabba- meinsfélags Reykjavíkur. Ég dró stóran, gulan miða, sem er númer 26586, og frúin fræðir okkur á gildi þess að hafa miðana stóra. í fyrsta 31 GLÆSILEGAN VINNING Fimmtíu krónur fóru þar, en miðinn, sem ég dró, er númer 11574. SKELLINAÐRA FYRIR BÆNDASYNi. Framsóknarmenn bjóða Opel Record, að verðmæti 187 þús- und, sem aðalvinning, en Willys jeppa hafa þeir til þess að freista bændanna. Þriðji vinn- ingurinn er skellinaðra. Við spurðum sölumanninn, handa hverjum skellinaðran væri, og það stóð ekki á svarinu frá sölumanninum. — Hver veit nema einhverj- um bændasyninum þætti gott að hafa skellinöðru til þess að hvað gert yrði við ágóðann: — Ja, nú veit ég ekki, hverju ég á að svara. Ég býst við, að þann verði notaður í áróður eða til styrktar fátækum flokksmeðlimum. Við þökkuðum fyrir og kvödd um, en hugsuðum jafnframt til þess, hversu gott væri að vera fátækur Framsóknarmaður. í STÖÐUMÆLA- STRÍÐI. Fyrir utan Landsbankann f Austurstræti stendur glæsileg Ramblerbifreið, sem Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, býður sem happdrættisvinning. Fyrir fimmtíu krónur fékk ég einn af þeim 20 þúsund miðum sem því hvernig henni Iíkaði að selja happdrættismiðá, og svaraði hún þvfti-1, að hún kynni mjög vel við það, en verst væri að þurfa að standa í þessu stöðu- mælastríði. — Við verðum að borga 1 stöðumæli fyrir bílinn frá 9 á morgnana til klukkan 6 eins og aðrir. Annars eru lögregluþjón- arnir mjög almennilegir við mig og stundum get ég „plat- að“ þá svolítið, sagði Lilja. Miðinn, sem ég dró hjá Lilju, er númer 6826, og ef það und- ur gerðist, að ég fengi bílinn, verð ég að vitja hans innan árs, annars er hann eign Sjálfs- bjargar. Að síðustu fræddi Lilja mig á því, að Sjálfbjörg hygðist lagi segir hún, að fólk týni þelm síður og í öðru lagi finnst fólki, að það fái meira fyrir pening- ana, ef það kaupir stóra miða. Hún þakkar mér fyrir og segist vera næstum fullviss um, að ég muni vinna Volkswagen 1500. Og ef mér takist það ekki, þá væri athugandi að láta mig hafa ókeypis krabbameinsrann- sókn í sárabætur. Ekki urðu happdrættismiðam ir, sem ég eignaðist fleiri, enda var ég kominn með sex skraut- lega miða f veskið, en í stað þess voru farnar úr því 350 krónur. í öllum þessum happ- drættum á að draga fyrir ára- mót, og þangað til get ég leyft mér að dreyma um glæsilega nýja bíla, utanlandsferðir, hús- gögn, skellinöðru, svo að eitt- hvað sé nefnt. En miðarnir mín- ir eru aðeins sex af þeim mörg þúsund miðum, sem gefnir eru út í þessum happdrættum, svo að það borgar sig ekki að vera of vongóður — en hver veit nema ég . . . vinni. — p.sv. „Ég er næstum þvi viss um að þú færð bQinn”, sagði hún um leið og ég dró hjá henni miða.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.