Vísir - 20.01.1964, Síða 1
atvinnu áAkureyrí
Eins og kunnugt er af fréttum
brann Tunnuverksmiðjan á
Sigiufirði nýlega og 45 siglfirzk-
ir heimilisfeður urðu atvinnu-
lausir. Verksmiðjan var einmitt
helzta atvinnufyrirtækið í bæn-
um að vetrinum. Nú hafa 34
Siglfirðingar, sem misstu at-
vinnu sína, verið ráðnir til
starfa i Tunnuverksmiðju ríkis-
ins á Akureyri og eru á leið
þangað með strandferðaskipinu
Herðubreið. Þeir munu búa á
Hótel Akureyri.
Búizt er við að Siglfirðingarn-
ir hefji vinnu á Akureyri ann-
að kvöld. Verður framvegis unn-
ið í tunnuverksmiðjunni þar á
tveimur vöktum allan sólarhring
inn og 39 menn á vakt, þannig
að fimm vantar á að önnur vakt
in sé fullskipuð Siglfirðingum.
Tunnuefnið, sem átti að fara til
Siglufjarðar, var flutt til Akur-
eyrar, en það var ekki komið
til landsins þegar tunnuverk-
smiðjan á Siglufirði brann, Nú
er efni fyrir hendi á Akureyri
1 110 til 120 þúsund tunnur.
Vinna hófst í tunnuverksmiðj-
unni á Akureyri 10. fyrra mán-
aðar og hafa síðan verið smíð-
aðar þar 10 þúsund tunnur.
Sem fyrr segir munu Siglfirð-
ingarnir búa á Hótel Akureyri
þann tíma vetrar, sem þeir vinna
inni á Akureyri. Sjálfir munu
þeir greiða 65 krónur á dag í
uppihald en afgangurinn af
dvalarkostnaði þeirra þar mun
verða greiddur af Siglufjarðar-
bæ og úr ríkissjóði.
Við málflutning í fógetarétti f morgun. Talið frá vinstri: Jón Magnússon, lögmaður Landleiða,
Egill Sigurgeirsson hrl. og Þorsteinn Thorarensen, borgarfógeti.
LANDLEIÐUM
um kkávza aegn FRAMA
Um hádegið í dag var kveðinn
upp úrskurður í fógetarétti í
Reykjavík í lögbannsmáli Land-
leiða gegn Bifreiðastjórafélag-
inu Frama. Var Landleiðum
synjað um lögbannið.
Lögbannsmál Landleiða gegn
bifreiðastjórafélaginu Frama var
tekið fyrir í fógetarétti síðdegis
á laugardag af Þorsteini Thor-
arensen borgarfógeta, en lögmað
ur Landieiða Jón Magnússon
hafði s.I. föstudag lagt lögbann
á aðgerðir verkfalismanna, þar
L OFTLEIDIR munu enn hafusterka
aðstcðu á Atlantshafsleiðunum
Selja farseðla með afborgunum innanlunds
Frá Kaupmannahöf bárust þær
fréttir f gær, að Skandinaviska
flugfélagið SAS hefði ákveðið
að hœtta við hrnar ódýru flug-
ferðir með skrúfuflugvélum sem
þeir hófu s.I. haust. Ferðum
þessum mun Ijúka 1. aprfl n.k.
og viðurkenna forráðamenn
SAS, að þær hafi mishepPnazt,
farþegafjöldi hafi ekki orðið
eins mikill og þeir væntu.
Almennt er og litið svo á á
Norðurlöndum, að Loftleiðir
hafi enn sterka aðstöðu eftir 1.
april n.k. Jafnvel þótt fargjöld
með þotum hafi stórlækkað, hafi
Loftleiðir ákveðið að lækka far
gjöld sín tilsvarandi og muni
hið íslenzka félag hafa tækifæri
til þess áfram að auglýsa sig
sem ódýrasta félagið og vekja
þannig áhuga almennings á
ferðunum.
Þá auglýsti Loftleiðir nú um
helgina að það ætlaði að hefja
sölu farseðla með afborgunar-
skilmálum hér innanlands og hef
ur sú auglýsing vakið talsverða
athygli. Geta menn nú keypt far
seðla hjá Loftleiðum gegn því
að greiða aðeins helminginn við
móttöku. Hinn helminginn
greiða þeir með víxli og geta
valið á milli 3, 6, 9 og 12 mán-
aða víxils, sem síðan á að greiða
I Verzlunarbankanum. Er þetta
fyrirkomulag til mikils þæginda
auka fyrir innlenda viðskipta-
vini.
Ennisvegur opnaður í fyrradag
Strákavegi á að Ijúka næsta ór
Vfsir átti í morgun stutt við-
tal við Sigurð Jóhannss vega
málastjóra i tilefni af þvi að
stórframkvæmd i vegamálum
landsins lauk f fyrradag. Þá var
Ennisvegur milli Ólafsvflkur og
BIs. 2 íþróttir.
— 3 Myndsjá frá afmæli
Eimskips.
— 8 Hegrinn f Hafnar-
firði.
— 9 Viðtal við Margréti
Thorlacius frá
ÖxnafellL
Sands formlega opnaður til
umferðar og tók vegamálastjóri
fram að sú framkvæmd teldist
vissulega hafa staðizt timaáætl
un, en gert var ráð fyrir þvi i
framkvæmdaáætlun rfkisstjórn-
arinnar, að lokið yrði við Ennis
veg á árinu 1963. Það hefði tek-
izt, ef ekki hefðu orðið tafir af
völdum verkfallsins. Þá sagði
vegamálastjóri, að unnið væri
sem áður að tæknilegri rann-
sókn og undirbúningi Stráka-
vegar til Siglufjarðar, en
sprengja á mikil jarðgöng gegn
um fjallið, sem kunnugt er. Sam
kvæmt framkvæmdaáætlun rik-
isstjómarinnar á að leggja fé
til þessarar framkvæmdar á
þessu ári eins og s. I. ár og
ljúka Strákavegi 1965. Kvað
vegamálastjóri það von sína, að
sú áætlun fengi staðizt
Leiðin styttist
úr 75 í 9 km.
Ólafsvíkurenni hefur hingað
til verið stærsti þröskuldurinn
í samgöngukerfinu á Snæfells-
nesi,- þannig að Ólafsvíkingar og
Sandarar hafa orðið að aka 75
kílómetra leið fyrir Jökul og
yfir Fróðárheiði til þess að
heimsækja hvorir aðra, eða ann
ast flutninga'milli þessara staða.
En með nýja veginum styttist
leiðin niður f 9 kílómetra. Þar
með kemst Rifsneshöfnin nýja
í beint vegasamband og allir
flutningar um utanvert Snæ-
fellsnes auðveldast stórlega. Þá
er það ekki til að lasta i þessu
sambandi, að þarna opnast ein
skemmtilegasta ferðamannaleið
landsins, kringum Snæfellsjök-
ul. Áður en .nýi Ennisvegurinn
var lagður, gátu menn endrum
og eins sætt lagi unj fjöru og.
ekið undir Enninu, ef þeir voru
á bíl með drifi á öllum hjólum.
Það var allt og sumt.
Framhald á bls. 6
sem hann taldi að eltki væri
heimilt að stöðva eigendur, sem
vinna hjá Landleiðum í að aka
bifreiðum fyrirtækisins. Lögmað
ur Frama Egill Sigurgeirsson
lagði fram í réttinum greinar-
gerð. Var málið munnlega flutt
í morgun og um hádegið var úr-
skurður kveðinn upp.
Framamenn hindruðu s. I.
föstud. 2 meðeigendur, er vinna
hjá Landleiðum, í að fara á-
ætlunarferðir milli Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar, en menn þess-
ir voru Eiríkur Stefánsson og
Hróbjartur Jónsson, en báðir eru
þeir í stjórn Landleiða. Hins veg
ar létu Framamenn akstur fram-
kvæmdastjórans Ágústs Hafberg
afskiptalausan en hann er einnig
eigandi í Landleiðum.
Eins og fram hefur komið í
blöðum hefur framkvæmdastjór-
inn haldið uppi takmörkuðum
ferðum milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur og hafa Hafnfirð-
ingar kunnað að meta framtaks-
semi hans.
Vísir átti í morgun tal við
Bergstein Guðleifsson formann
Frama. Kvað hann félagið hafa
fengið þær upplýsingar hjá VR,
að umræddir tveir skrifstofu-
menn Landleiða væru félagar í
VR og því væri það skoðun
Frama, að samkvæmt vinnulög-
gjöfinni væri mönnum þessum
óheimilt að taka upp vinnu verk
fallsmanna í Frama.
Vegarstæði Strákavegs.
54. ðrg. — Mánudagur 20. janúar 1964. — 16. tbl.
34 Siglfirðingar #