Vísir - 20.01.1964, Page 3
VI SIR . Mánudagur 20. janúar 1964. .. 3
SKÁLAD FYR■
IR EIMSKIP
Eimskipafélag lsiands hafði
móttöku um borð i Gullfossi s.l.
föstudag. Var þar margt gesta,
ráðherrar, alþingismenn, borg-
arstjórinn í Reykjavík og fjöldi
opinberra embættismanna og
annarra gesta, einnig var þar
margt starfsmanna Eimsklps.
Móttakan stóð yfir í um tvær
klukkustundir og voru veiting-
ar allar hinar glæsilegustu. —
Einar B. Guðmundsson, stjóm-
arform. félagsins ávarpaði gest-
ina, Bjami Jónsson vfgslubisk-
up flutti stutta hugvekju. — I
lok móttökunnar ávarpaði Sig-
urlaugur Þorkelsson, blaðafull-
trúi félagsins, gesti og þakkaði
komuna.
Einar B. Guðmundsson, stjómarformaður Eimskip, Guðmundur Vilhjálmsson, fyrrv. framkvæmdastjóri,
Óttarr Möller, framkvæmdastjóri. Fyrir aftan þá er málverk af GuIIfossi.
Kristján Aðalsteinsson skipstjóri og Geir Hallgrímsson
borgarstjóri.
Arent Claessen ræðismaður og frú ræða við Albert
Guðmundsson stórkaupmann.
Ólafur Einarsson verkamaður og Eiður Sigurðsson
verkamaður, einn af elztu starfsmönnum Eimskip, en
hann hefur starfað hjá félaginu í alis 36 ár.