Vísir - 20.01.1964, Síða 5
V í S IR . Mánudagur 20. janúar 1964.
5
utlönd i morgun
útlönd í morgun
utlönd í morgun
'utlönd í morgunv
UPPRCISNITANSANYIKA
-HÝIT OFBíLDI IDBONSMI
Fréttir í morgun greina frá
hættulegum horfum á tveimur
heimssvæðum, Indónesíu, þar
sem ofbeldi er beitt á ný, og
uppreisn í Tanganyika.
í kjölfar frétta í morgun frá
Jakarta f Indónésíu um að verka
menn hefðu tekið í sínar hendur
yfirráð í vinnustöðvum fyrir-
tækisins Brezk-hollenzka Unilev
er og að öflugur lögregluvörður
hefði verið settur við bústaði
ambassadora Breta og Banda-
ríkjanna, bárust fréttir í nótt
um uppreisn í annarri af tveim-
ur herdeildum Tanganyika, ná-
grannalandi Zansibar, þar sem
enn er byltingarástand og ó-
vissar horfur.
í enn óstaðfestum fréttum frá
Jakarta var sagt, að verkamenn
hefðu hafizt handa um svipaðar
aðgerðir hjá olíufélaginu Shell
og hjá Brezk-hollenzka Unilever
og að hótað hafi verið að neita
afgreiðslu brezkum flugvélum á
flugvöllum Indónesíu, frá mið-
vikudegi næsta, en þá er vænt-
anlegur þangað Robert Kennedy
dómsmálaráðherra Bandarfkj-
anna, sem um þessar mundir
er að reyna að finna leiðir til
samkomulags út af ágreiningn-
um um Mal-Asíu. Hefur hann
átt viðræður við forseta Indó-
nesíu í Tokíó og forseta Filips-
eyja í Manilla, og er nú í Kuula
Lumpur, höfuðborg Mal-Asíu, til
viðræðna við forsætisráðherr-
ann — Tunku Abdul Rahman —
einnig um friðsamlega lausn á
ágreiningnum varðandi Mal-
Asíu. Að þeim viðræðnum lokn-
um fer Kennedy til Jakarta til
nýrra viðræðna við Súkarnó
og svo til London til viðræðna
við brezku stjórnina.
UPPREISN í
TANGANYIKA
1 frétt frá Daar-es-Salaam kl.
tvö f nótt segir, að önnur af
tveimur fótgönguliðssveitum
landsins hafi gert uppreisn og
handtekið 30 liðsforingja, þeirra
meðal nokkra brezka. Lögregl-
an hefur lokað öllum vegum til
höfuðborgarinnar. Staðfest er í
London, að uppreisn hafi átt sér
stað, en sagt er að horfur séu
enn óljósar. Ekkert hefur beyrzt
frá Nyerere forseta. Vörður er
um bústað hans, en ekki vitað
hverjum varðmenn fylgja að mál
um. Brezki landstjórinn ætlaði
á fund forsetans, en varðmenn
meinuðu honum inngöngu.
Uppreisnin átti sér stað í bæki
stöðvum í Tolito, 9 km. frá höf-
uðborginni.
Á ZANSIBAR
eru horfur einnig óljósar, en
tilraunir virðast gerðar til þess
að koma á lögum og reglu, og
það var einmitt Tanganyika sem
beðin var um aðstoð, með því
að senda þangað 300' lögreglu-
menn til þjálfunar á lögreglu
Zansibar og voru 100 komnir
þangað, og kannaði forseti bylt-
ingarstjórnar liðið við komuna,
en Okello, sá sem talaði f út-
varp og titlaði sig marskálk og
aðalmann byltingarinnar, var í
fréttum í gær sagður kominn til
Tanganyika sér til hvfldar og
hressingar". Hann neitaði að
hann hefði verið á Kúbu og í
Peking á s.I. ári, eins og komið
hefur fram f fréttum.
Ofsóknum gegn Múhameðs-
trúarmönnum var ekki hætt á
Zansibar er sfðast fréttist.
Uppreisnarmaður á verði á Zansibar.
Musica Nova
Að undanförnu hafa þeir fé-
lagar Einar Sveinbjörnsson og
Þorkell Sigurbjörnsson ferðazt
um Norðurlönd og leikið fslenzk
tónverk í þarlenzkar útvarps-
stöðvar. Hefur slík kynnisför
á íslenzkri tónmennt ekki verið
farin áður, en er von manna
að á slíkri starfsemi kunni að
verða nokkurt áframhald. Sér-
staklega vegna, að vart varð
mikils áhuga á nýrri fs-
lenzkri tónlist á þessum slóð-
um, og nutu þeir Einar og Þor-
kell ríflegrar fyrirgreiðslu og
uppörvunar af hálfu hlutaðeig-
andi aðila við téðar útvarps-
stöðvar. I gær léku þeir sömu
efnisskrá og þeir fóru með ut-
an, fyrir styrktarmeðlimi Musica
Nova o. fl. í Þjóðleikhúskjall-
aranum, og höfðu þó bætt við
einu erlendu verki, fiðlusónötu
í G dúr op. 31 nr. 3 eftir Beet-
hoven. íslenzku verkin voru
Rómansa eftir Hallgrím Helga-
son, fiðlusónata eftir Jón S.
Jónsson, þrjár Bagatellur eftir
Þorkel Sigurbjörnsson, og
Mosaik f. fiðlu og píanó eftir
undirritaðan.
^ð þessum hljómleikum heyrð-
um, verður Einar að teljast f
allra fremstu röð íslenzkra
hljómlistarmanna. Vald hans á
fiðlunni, hvort sem um er að
ræða fingra eða bogatækni, er
næstum óbrigðul. Tónninn er
ríkur og safamikill, býr yfir
miklum blæbrigðamöguleikum.
Allt eru þetta kostir, sem nauð-
synlegir eru ef um skilagóðan
flutning skal ræða, hvort sem
fjallað er um músík frá yngri
eða eldri tíma. Koma þeir þó
ekki nema að hálfu gagni, ef
músfkölsk alvara og einlægni
viðkomandi, er að einhverju
marki á reiki. En Einar er að
þessu leyti einnig með pálm-
ann í höndunum, og náði leikur
hans, og reyndar þeirra félaga
beggja, upp í verulegar listræn
ar hæðir á stundum. Flutningur
þeirra á Beethoven sónötunni
var til dæmis mjög sannfærandi,
þrátt fyrir að hægi þátturinn
hefði mátt vera nokkuð lfflegri,
ékki að hraða til, en blæsveifla
ýmissa mótíva og laghendinga
var heldur í daufara lagi.
J stuttri en lögulegri Rómönsu
Hallgríms Helgasonar var
ekki tilefni til mikilla átaka, en
henni, og þó einkum sónötu
Jóns S. Jónssonar, sem er verk
nokkuð í anda Bartóks, með
línutækni Hindemiths í bak-
höndinni og samin í skóla fyrir
nokkrum árum, gerðu þeir hin
ánægjulegustu skil. Bagatellur
Þorkels voru samdar seint á
'3388
sfðasta ári, og eru þær einstak-
lega áferðarfallegar og lýsa
næmu skyni höfundar á sam-
spil smæstu formeininga, eigin-
leiki sem er undirrituðum hins
vegar ekki nýr úr þessari átt.
Sérstaklega var miðbagatellan,
með sfnum nýstárlegu tónbrell-
um, skemmtilega útfærð, en f
heild er þetta stutta verk fá-
dæma vönduð lýrisk smásmíði.
Auðvitað léku þeir félagar það
af miklum sannfæringarkrafti,
en f lokaverkinu, Mosaik, komu
þeir undirrituðum þó mest á
óvart, þvf þar vissi hann af
mörgum næstum óyfirstíganleg
um erfiðleikum. Var hlutur Þor-
kels þar ekki hvað síztur, en
báðir léku þeir með slíkum ágæt
um, að fátt er fram að færa
en kærar þakkir.
Leifur Þórarinsson.
Verkamenn ílndo-
nesíu beðnir nð
faru að lögum
Seinustu fréttir frá Indónesíu
varpa nokkru Ijósi á seinustu at-
burði þar. Settur forseti Iandsins
vegna fjarveru Súkarnó, dr. Johann
es Leimena, hefur hvatt verkalýðs-
félögin til að fara að Iandslögum
og hætta við að taka f sínar hendur
brezk fyrirtæki og vinnustöðvar á
eynni.
Þessi tilmæli hins setta forseta
Engin breyting
fyrr en 1. apríl
Eins og kunnugt er átti breyting
á reglum um lokunartfma sölu-
búða að ganga í gildi um næstu
mánaðamót. Borgarráð hefur nú
samþykkt að fresta gildistöku
hinna nýju reglna þar tii 1. apríl,
en segist jafnframt ekki geta veitt
aðra frestun.
Er þetta gert vegna verkfall-
anna, en verzlanirnar hafa þurft að
iáta gera talsverðar breytingar og
hefur vinna við þær stðvazt vegna
verkfalls trésmiða. Breytingar þess
ar eru fólgnar í því að gera þarf
söluturnana að séreiningum innan
verzlana, búna salernum og hrein-
Iætistækjum.
Þótti rétt að fresta gildistöku
samþykktarinnar í heild þar eð
annars gæti orðið ruglingur á. Þeg-
ar reglugerðin verður sett á er
gert ráð fyrir að verzlanir f út-
hverfum verði til skiptis opnar
fram eftir kvöldum og um helgar,
eu á föstudagskvöldum verði verzl
unum leyft að hafa opið til kl.
10 á kvöldin en á Iaugardögum til
2 á sumrin en 4 á veturna.
voru birt eftir að verkamennirnir
höfðu tekið með valdi skrifstofur
Unilever f Jakarta og gúmmf- og
teekrur, sem eru brezk eign í Su-
bang. — í Jakarta var yfirmönnum
og starfsliði meinaður aðgangur að
skrifstofum félagsins. Lögreglan,
sem er á verði, segist aðeins hafa
verið kvödd á vettvang til þess að
girða fyrir óeirðir — ekki til neinn-
ar íhlutunar.
Forstjóri Unilever f Jakarta á-
kvað að vera heima og bað aðra
starfsmenn um hið sama, til þess
að „forðast hvert skref, sem leitt
gæti til átaka".
Bannið á brezkar flugvélar var
ákveðið vegna þess að tvö indónes-
isk skip með „pílagríma og vara-
hluti f indónesiskar flugvélar" voru
stöðvuð f Hongkong.
í seinni fréttum segir, að allt sé
fullt af herbílum á götunum í Dar-
es-Saalam. Útvarpsstöðin þar er
þögnuð og flugvöllurinn lokaður.
Fátt fólk á ferli og „enginn virðist
vita hvað gerzt hefur", en ekki vit-
að um nein blóðug átök, én svo
virðist þó enn sem aðeins önnur
hersveit landsins standi að bylting-
unni.
Tanganyika var hin stærsta af ný
lendum Breta í Austur-Afrfku og
fékk sjálfstæði 8. desember síðast-
liðinn.