Vísir - 20.01.1964, Síða 6
6
V1 SIR . Mánudagur 20. Janúar 1964.
3 piltar réðast im / hús
og börðu heimafólkið
ÞaO bar til tíðinda s.l. mið-
vikudagsnótt í Vestmannaeyj-
um að 3 ungir piltar réðust inn
f fbúðarhúsið að Lyngfelli.
Börðu þeir einn heimamann illa,
svo hann fékk glóðarauga á
bæði augu og bólgnaði í andliti.
Brutu þeir húsgögn og skemmdu
dyraumbúnað. Piltarnir voru
handteknir skömmu síðar og
settir í varðhald. Mál þetta átti
mjög sorgiegan eftirleik, því
gömul kona á bænum lézt dag-
inn eftir, en hún mun hafa ver
ið mjög farin að heilsu. Ekki
er talið að hægt sé að rekja
dauða hennar til ólátanna nótt-
ina áður.
— Flugið
Framh. af bls. 16.
Flugsyn haldi uppi áætlunar-
flugi til Norðfjarðar næstu fimm
árin, eða meðan ábyrgðin er f
gildi. Flugsýn hefur einnig f
huga að halda uppi áætlunar-
flugi milli fleiri staða á Aust-
fjörðum, og hafa forráðamenn
félagsins í athugun að staðsetja
litla flugvél á Norðfirði til
sjúkraflugtninga og annarra
flutninga.
Það var í október s.l., sem
Flugsýn sneri sér til bæjarstjórn
ar Neskaupstaðar, og tókst þá
þegar góð samvinna um málið.
Flugsýn hefur í huga að fljúga
'3 áætlunarferðir f viku á vetr-
um, en 6 ferðir á sumrin. Helzt
hefur komið til greina að
kaupa 10 sæta flugvél, Beech-
craft C-45, tveggja hreyfla vél,
búna öllum fullkomnustu tækj-
um. Einnig hefur Flugsýn f huga
að koma á flugsamgöngum milli
fleiri staða á Austfjörðum, en
mjög erfitt hefur verið með
samgöngur milli smærri staða,
og fá sumir þeirra ekki póst
nema á hálfsmánaðarfresti. Hef-
ur félagið því f huga að stað-
setja litla flugvél á Norðfirði
til sjúkraflutninga og annarra
flutninga. Enn hefur ekki end-
anlega verið ákveðið, hvenær
þessar föstu áætlunarferðir hefj-
ist.
■
EYJAFLUG
Loks er svo að nefna flug-
félag það, sem var stofnað í
Vestmannaeyjum nú í vikunni
Eyjaflug, en að þvf standa sam-
tök tuttugu ungra og framtaks-
samra manna 1 Eyjum. Stjórn
þess skipa Sigfús Johnsen for-
maður, Jón Hjaltason lögfræð-
ingur og Ragnar Magnússon
flugvirki. Félag þetta er svo ný-
stofnað, að enn er of snemmt
að tala um fyrirætlanir þess.
Þó munu þeir hafa hug á að
kaupa tfu sæta vél af Beechcraft
gerð ef leyfi fást. Áhugi mun
einnig vera fyrir þvf f bæjar-
stjórn þar, að flugvél sé stað-
sett í Eyjum, því að slíkt auð-
veldar samgöngur bersýnilega.
Hnfnarfjarðnr-
leiðín
Landieiðir halda uppi áætlunar-
ferðum frá Reykjavík i dag, sem
hér segin
Klukkan 14, 15 og 17, 18, 19,
20. Frá Hafnarfirði er ekið svo
hálftfma sfðar.
Nánari atvik voru þau, að pilt
amir byrjuðu á þvf að brjótast
inn 1 hænsnahús f því skyni að
komast yfir egg. Eftir að þeir
höfðu náð sér f nokkur egg
réðust þeir til inngöngu f bæinn.
Þar býr Guðlaugur Guttormsson
gamall maður og fatlaður, ásamt
uppeldissyni sínum Oddi Guð
laugssyni. Þar var og eiginkona
Guðlaugs gömul kona og farin
heilsu, en hún lézt daginn eftir.
Til átaka kom milli piltanna og
Odds. Hlaut hann glóðarauga á
bæði augu og bólgnaði mikið í
andliti. Faðir Odds gat lítið að-
hafzt, en piltarnir brutu niður
rúm hans. Einnig tókst piltun-
um að skemma dyraumbúnað
nokkuð. — Lögreglan kom
skömmu sfðar á vettvang og
vom piltarnir settir f varðhald
og mál þeirra sfðan tekið fyrir
hjá bæjarfógetanum f Vest-
mannaeyjum. Þetta er ekki f
fyrsta skiptið, sem lögreglan
SBysin —
Framh. af bls. 16
í hörðum bifreiðaárekstri. Árekst-
urinn varð á lítilli hæð rétt fyrir
ofan Lögbergsbrekkuna í roki og
úrhellisrigningu, en þar skullu sam-
an Volkswagen bifreið og Skoda-
bifreið. Sú fyrrnefnda virðist hafa
ætlað að' taka fram úr tveim stór-
um bílum, sem voru á undan henni
og voru á leið austur yfir fjall. 1
sama mund kom Skodabifreiðin á
móti og þegar ökumaður hennar
varð þess var að Volkswagenbfll-
inn var kominn fram með hliðinni
á aftarl vörubílnum, kvaðst hann
strax hafa hemlað, en það dugði
ekki til. Áreksturinn varð mjög
harður og báðir bílarnir eru stór-
skemmdir.
I Wolkswagenbifreiðinni voru
auk ökumanns, roskin hjón, sem
bæði slösuðust mikið, og tvö 5 ára
gömul börn, sem meiddust minna.
Ökumaðurinn sjálfur kvartaði und-
an eymslum fyrir brjósti. í Skoda-
bifreiðinni voru miðaldra hjón og
slösuðust bæði. Af þessum 7 manna
hópi, sem þarna slasaðist, liggja
nú báðar konurnar f Landsspftalan-
um og maðurinn, sem var farþegi
í Volkswagenbeifreiðinni, hefur leg-
ið f slysavarðstofunni frá því er
slysið varð.
Auk þessara 11 slasaðra á Iaugar-
daginn urðu tvö stórslys á föstu-
daginn, svo sem skýrt var frá f
Vísi í fyrradag. Báðir mennirnir,
sem þá slösuðust, eru látnir. Karl
Laxdal, Mávahlfð 2, sem lenti fyrir
bifreið á Snorrabraut syðst, lézt í
nótt án þess að hafa komizt til
meðvitundar. Hann var 78 ára að
aldri. En hinn maðurinn, Magnús
Jakobsson, Sóleyjargötu 7, er varð
fyrir bifreið á Suðurgötunni, lézt
í fyrrinótt. Magnús var 67 ára gam-
all og þetta var f þriðja skiptið,
sem hann hlaut alvarlegt áfall og
stórmikil líkamsmeiðsl af völdum
ákeyrslu. Áður hafði hann hlotið
mjaðmarbrot í annað skiptið, en
slæmt fótbrot í hitt skiptið.
Á fimmtudaginn var rannsóknar-
lögreglan tvfvegis kvödd á vett-
vang vegna umferðarslysa, og í
öðru þeirra slasaðist gamall mað-
ur stórlega í árekstri á innanverðri
Njálsgötu. Hann heitir Þorlákur
Guðmundsson, hlaut alvarleg inn-
vortis meiðsli og liggur nú þungt
haldinn f sjúkrahúsi.
verður að hafa afskipti af þess-
um piltum. Eins og fyrr segir
átti mál þetta mjög sorglegan
eftirleik, þvf eiginkona Guð-
laugs lézt daginn eftir, en hún
var mjög farin að heilsu. Þó er
ekki talið að hægt sé að rekja
dauða hennar til ólátanna nótt-
ina áður.
— Ennisvegur
Framh. af bls. 1.
Nýi vegurinn undir Ólafsvfk-
urenni var unninn með hinum
stórvirkustu vélum og sprengi-
efni og liggur í 18—49 metra
hæð yfir sjó. Vegamálastjóri
kvað vegarlagninguna ekki hafa
verið hættulausa, en allt hefði
gengið slysalaust að kalla, sem
betur fór. Um hættu af grjót-
flugi á þessum vegi kvaðst hann
ekki geta fullyrt neitt. Einhver
hætta væri alltaf fyrir hendi á
öllum vegum, sem þannig væru
settir, Iægju undir hömrum og
hamrabeltum. En naumast væri
ástæða til að óttast meira grjót-
flug þama en t. d. sums staðar
á vegum á Vestfjörðum.
Vegurinn undir sjálfu Enninu,
sem Efrafall tók að sér að
vinna, er aðeins rúmlega einn
kílómetri að lengd, en kostáðí
um 10 milljórii'r. rlh þkð mun
vera helmingi dýrara en einn
kílómetri af Keflavíkurvegin:
um. Enda var þarna ein erfið-
asta aðstaða til vegagerðar sem
um getur hér á landi. Nýi veg-
urinn milli ölafsvíkur og Hell-
issands er aðeins 3.4 kflómetr-
ar og var kostnaðurinn við
þessa framkvæmd áætlaður alls
um 12 milljónir s. 1. vor, en
eftir það urðu nokkrar kaup-
hækkanir.
- Glaumbær
Framh. af bls. 16.
leika fyrlr dansi þar til kl.l.
Vísir átti í morgun stutt við-
tal við hljómsveitarstjórann
Hauk Morthens, og skýrði hann
m.a. svo frá:
Þanig liggur í málinu, að við
höfðum ekki fengið greidd laun-
in okkar frá því 28. desember
til 19. janúar, þar meðtalið er
gamlárskvöldvikan, sem reikn
ast tvöföld. Samkvæmt samn-
ingi á að borga okkur út viku-
lega. Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir hef ég ekki náð f fram-
kvæmdastjóra hússins, Sigur-
björn Eirfksson sl. 10 daga, en
ég hef minnzt á þetta við konu
hans, sem er oft á tíðum niðri í
Glaumbæ. Það var s.l. laugar-
dagskvöld að ég sagði konu
hans, að við myndum ekki leika
lengur en til klukkan 11, ef við
fengjum ekki launin okkar
greidd. Mér var svo kunnugt
um, að hún hafði sfmasamband
við Sigurbjöi-n, og skömmu fyr
ir klukkan 11 kom hann niður f
Glaumbæ Ég fór þá inn á skrif
stofu til hans og spurði hann,
hvort hann liti þetta ekki alvar
legum augum, en hann spurði
mig hvort við ætluðum að leika
eða ekki. Sagði ég honum, að
við stæðum við það að hætta
að leika klukkan 11, ef launin
fengjust ekki greidd fyrir þann
tfma. Svarið sem ég fékk var:
Ég hef ekkert við þig að tala, og
þú skalt koma þér út.
Klukkan 11 hættum við að
leika og ákváðum að taka öll
okkar hljóðfæri með út.
Skömmu fyrir klukkan 12
kveikti ég á hátalaranum og
kvaddi fólkið, en sagði þvf ekki
ástæðuna fyrir þvf að við hætt
um, en það hafði þegar spurzt
út, hvernig f málunum lá. Dyra
verðirnir sögðu fólkinu hinsveg-
ar, að við værum komnir f verk
fall. — Trommuleikari hljóm-
sveitarinnar, Guðmundur Stein-
grfmsson, þurfti að skreppa inn
aftur, eftir að hann hafði borið
hljóðfæri sín út, og ná f trommu
en Sigurbjörn varnaði honum
inngöngu. Leituðum við þá til
lögreglunnar, og lét Sigurbjörn
sig ekki, fyrr en lögreglan kom
á staðinn.
Eftir að Haukur og hljóm-
sveitin hafði yfirgefið húsið,
fékk Sigurbjöm unglingahljðm-
sveit úr Langholtsprestakalli til
þess að leika, en flestir drengj-
anna eru undir lögaldri. Mikil
óánægja var ríkjandi meðal gest
anna, eftir að hljómsveitin hætti
að leika.
Þetta hefur legið eins og mara
á mér, segir Haukur, Strák-
arnir í hljómsveitinni hafa skilj
anlega verið að krefja mig um
kaupið, en ég hef ekkert geta
gert.
Blaðið hafði f morgun sam-
band við Svavar Gests, formann
Félags fsl. hljóðfæraleikara og
spurði hann, hvort félagið hygð-
.ist grfpa til einhverra ráðstaf-
ana. Svavar sagðist ekki hafa
náð í Sigurbjörn, og gæti hann
þvf ekkert sagt um málið strax.
Vfsir reyndi f morgun að ná
tali af Sigurbirni Eirfkssyni, en
það bar ekki árangur.
-Skákin
Framh. af bls. 16
með hvftt og f 13. leik fórnaði
hann manni og ætlaði sér að ná
jafntefli með þrátefli. Tal var
hins vegar ekki á þvf að leiða
skákina til lykta svo friðsam-
lega, heldur gagnfórnaði hann
drottningu, sem leiddi til ó-
hemju flókinnar stöðu. Nákvæm
athugun sfðar leiðir í Ijós, að
Tal átti ekki að vinna skákina
en svo fór nú samt, að Jón
missti tökin á henni móti heims-
meistaranum.
Hér fer þessi mjög svo at-
hyglisverða skák á eftir:
Hvítt: Jón Krlstlnsson
Svart: Mikkjáll Tal
Sikileyjarvöm
1. e4 — c5
2. f3 - e6
3. d4 — cxd4
4. Rxd4 - a6
5. Rc3 — Dc7
6. Bd3 - Rf6
7. o-o — Rc6
8. Be3 - b5
9. a3 — Bb7
10. De2 - Re5
11. h3 - Hc8
12. f4 - Rc4
13. Rxb5! — axb5
14. Rxb5 — Dc6
15. Ra7 - Rxe3 (??!)
16. Rxc6 - Bc5!
17. Kh2?
(Fljótfærni. Rétt var b4!).
17. - Rxflt
18. Hxfl - Bxc6
19. c4 — d6
20. Dc2 — Bd4
21. b4 - e5
22. f5 - Ke7
23. a4 - g6
24. b5 — Ba8
25. De2
(Bezt úr því sem komið er,
en hér eftir verður vðmto
samt mjög erfið).
25. - Hcg8
26. a5 - h5
27. g3 - Hh7
28. Kg2 - Hhg7
(Undirbýr nú lokasóknina).
29. fxg6 — Hxg6
30. Hf3 - Rh7!
31. Dbl - Rg5
32. Hfl - Rxe4!
33. Bxe4 — Hxg3t
34. Kh2 — Hg2t
35. Khl - Hglt
36. Hxgl — Hxglt
37. Dxgl — Bxe4t
gefið.
Um aðrar skákir er það að
segja, að Gligoric hafði hvftt og
vann Arinbjöm í mjög erfiðri
stöðubaráttuskák, þar sem lengi
Ieit út fyrir að Arinbjörn myndi
halda jöfnu.
Magnús Sólmundarson vann
Freystein og jafntefli gerðu Ingi
R. og Nona. Stúlkan tefldi mót-
tekið drottningarbragð og tókst
að halda jöfnu tafli þrátt fyrir
allharðar sviptingar. Wade og
Guðmundur Pálmason gerðu
einnig jafntefli í mjög hægþró-
aðri skák.
Skák Ingvars og Trausta fór
í bið í frekar jafnri stöðu, en
skák Friðriks og Johannessens
var frestað sökum veikinda Frið
riks, sem er kvefaður.
I kvöld verður 6. umferð
tefld. Þá tefla m. a. Friðrik og
Ingi og Wade og Tal.
MÓTTIR —
Framh. af bls. 2.
um, oftast með mjög góðum skot-
um. Skot Framara voru annaðhvort
laflaus, hittu ekki, eða lentu f vam-
arveggnum h. megin, en vinstra
megin var allt of lítið skotið. Guð-
jón skaut að vfsu tvívegis rétt fyrir
hálfleikslok og skoraði 1 bæði skipt-
in. KR tókst að ná 5 marka for-
skoti fyrir hálfleik og hafði yfir
13:8.
Þess er skemmst að minnast, að
menn gleymdu algjörlega að hlusta
á Svavar Gests með sinn ágæta
þátt, slík urðu lætin í sfðari hálf-
leik. En KR sóknin tók rétta stefnu
og lék hægt og yfirvegað fyrir ut-
an og leitaði fyrir sér. Þetta færði
tvö mörk f röð, bæði frá Karli.
Stóð nú 15:9, stuttu síðar 17:11,
20:12 og 21:14. Þá voru 10 mfn.
eftir af leik og nær útilokað að
Fram tækist að vinna leik-
inn, enda hefði þurft nær „mark
á mfnútu“ til og ekkert mark á
móti.
Leikurinn varð mjög harður og
um tfma var leikið maður gegn
manni. Ekkert gat samt grandað
KR, — sigurinn var þeirra örugga
eign og sigurinn varð 25:19, mjög
verðskuldað.
KR-liðið hefur ekki leikið betur
lengi og sýndi margt mjög gott í
leiknum. Beztu menn liðsins voru
þeir Karl Jóhannsson, Sigurður Ósk
arsson og Sigurður Johnny mark-
vörður, sem gerði ótrúlegustu hluti.
Guðlaugur Bergmann átti athyglis-
verðan leik í vörninni og margir
piltanna sýndu nú sitt bezta, t. d.
Þráinn Gfslason og nýliðinn Hilm-
ar Björgvinsson.
Framarar eru lítt vanir því að
tapa og því miður verður það lið-
inu til lasts að sumir leikmenn
kunnu ekki að taka tapinu við KR.
Auðvitað er sárt að tapa, — en
jafnnauðsynlegt fyrir íþróttamann
að læra slfkt, ekki síður en undir-
stöðuatriði fþróttarinnar. Framlið-
ið átti ekki góðan leik þetta kvöld,
— KR sá um að enginn gat „glans-
að“!
Dómari f þessum erfiða leik var
Valur Benediktsson og verður ekki
sagt annað en hann hafi skilað sfnu
hlutverki vel.