Vísir - 13.02.1964, Page 16

Vísir - 13.02.1964, Page 16
VÍSÍR Flmmtudagur 13. febrúar 1964. Stolið úr ólæstum íbúðum 1 nótt gerðist þjófur heimakom- inn í ólæstri ibúð og stal þaðan kvenveski með peningum. Þetta gerðist í Sogamýri. Hafði gleymzt að læsa húsinu í gær- kveldi áður en heimafólk gekk til náða. En um eittleytið í nótt vakn- ar húsmóðirin í húsinu við það að henni heyrist marra í hurð. Fer hún þá fram til að huga nánar að þessu, en þegar hún kom fram f forstofuna, sá hún að útidyra- hurðin stóð í hálfa gátt og jafn- framt að veski hennar var horfið með, öllu sem í því var. Sem bet- ur fór voru ekki nema um 200 krónur í peningum í veskinu. Leit var gerð í morgun að vesk- inu í nágrenni hússins og fannst það loks í öskutunnu við Sogaveg. Var þá pyngja horfin úr þvi með peningunum, en önnur plögg voru öll f veskinu. Það hafa verið brögð að því und- anfarið að þjófar hafi farið inn í ólæstar ibúðir og stolið verðmæt- um. Þannig var á einum stað við Þorfinnsgötu stolið 2700 krónum úr kvenveski snemma í þessari viku og 1400 kr. úr kommóðu- skúffu við Grettisgötu í vikunni sem leið. Skal fólki bent á að læsa íbúðum sínum, jafnt hvort það er heima eða að heiman. IIÍÍIÍÍÍMlSÍi Feðgarnir Agnar og Kristján Jóh. Kristjánsson í vélasal hinnar nýju og fullkomnu Kassagerðar Reykjavfkur við Kleppsveg. NÝ KASSAGERÐ ER EKKI ÍHAGSJÁ VARÚTVEGSINS VSðtal við Kristján Jóh. Kristjánsson um fyrirætlanlr S.H. — Mér bykir bað vægast sagt afar hæpin raðstöfun hjá Einari S gurðss., og Sölumiðstöð hrað l'rystihúsanna að ætla að setja á stofn eigin kassagerð, sagði Kristján Jóhann Kristjánsson, forstjóri Kassagerðar Reykja- vikur í viðtali við Vfsi i morgun. HVERGI ÓDÝRARI UMBÚÐIR. Sölumiðstöðin veit fullvel að ekki mun takast að framleiða umbúðir utan um fiskinn ódýrar en við gerum það. Hún hefir oft leitað eftir tilboðum erlendis en niðurstaðan hefir jafnan orðið sú sama: hvergi hefir verðið ver ið jafn hagstætt og hjá okkur. Enda hefir Einar Sigurðsson út gerðarmaður oft tjáð mér áður að verðið væri þar ekkert atriði, heldur aðeins það að þeir ættu b£na sjálfir! Kom mér það ekki spánskt fyrir sjónir því hann og félagar hans föluðust persónu- Iega eftir hálfum hlut í Kassag. Reykjavíkur fyrir nokkrum ár- um, án þess að S. H. ætti að eiga þar nokkra aðild. Nú hafa frystihúsin nýlega fengið 42 millj. króna af al- mannafé sem ætlað var til þess að bæta rekstur þeirra. Þau mega satt að segja vera æði vel rekin ef samtökin ætla pú að, eyða tugmilljónum króna í stofn un slíks umbúðafyrirtækis og þau eru nú að hugsa um. Kassa- gerð sem fullnægir þörfum sjáv- arútvegsins mundi nefniiega ekki kosta undir 50 millj. króna. Frystihúsunum er sagt að hin nýja kassagerð eigi að geta lækk að framleiðslukostnaðinn um 20%. Þetta er fullyrðing út f Ioftið og fjarri öllu lagi að slfkt sé hægt, sagði Kristján. Framh. á bls. 5 Nýja flughrautín í Vestmannaeyj- um lendingarhæfí lok þessarar viku Arekstrum fjölgur Um 50 fleiri bifreiðaárekstrar hafa orðið frá siðustu áramótum og til dagsins í dag heldur en á ; sama tíma í fyrra. Björn Pálsson flugmaður mun I samráði og samvinnu við Flugfélag íslands hefja áætlunarflug til Vest- mannaeyja, sennilega um eða upp úr næstu helgi. Viðræður um þessar samvinnu hafa farið fram undanfarið milli Flugfélags íslands og Björns Páls- sonar. Hefur það orðið að ráði að Flugfélagið haldi sínum venjulega áætlunarferðum þangað með Dakotavélum þegar veðri hagar þannig að þær geta lent. Aftur á móti þegar hliðarvindur stendur á löngu flugbrautina getur Björn lent Lóunni og öðrum minni vélum jsínum á nýju flugbrautinni sem nú er verið að gera í Vestmannaeyj- um. Það er alkunna að erfitt er um lendingarskilyrði flugvéla í Vest- mannaeyjum. Þar hefur allt til þessa, aðeins verið ein flugbraut. En á henni er ekki unnt að lenda . ef hliðarvindur fer fram úr 4 stig- i um. þ. e. í norðan- eða sunnanátt. Þetta hefur þráfaldlega orsakað að i flugvélar hafa ekki getað lent í ffefur ekki komizt tíl meívitundar Alvarlcgt umferðarslys varð á i Þvottalaugavegi rétt eftir hádegið I í gær. Sex ára gamall drengur, Guðmundur Árnason, Sólheimum 23, varð fyrir bifreið og stórslas- aðist. Hann hefur ekki komizt til meðvitundar síðan. Nokkru áður en slysið varð! bjuggust foreldrar drengsins til að | þvo þvott í Þvottalaugunum. Rétt um kl. 1 í gær fór faðir hans með I krakkana niður að Þvottalaugun- um en fór að því búnu heim aftur að sækja konuna. Þegar þau komu á Þvottalaugaveginn móts við laugarnar komu krakkarnir hlaup- andi upp á veginn til þeirra. Stöðvaði maðurinn þá bílinn og talaði við börnin. Á meðan þau voru þarna á göt- unni kvaðst konan hafa séð jeppa Framh. á bls. 5 Vestmannaeyjum dögum og jafnvel vikum saman ef þar er norðan eða sunnanstrekkingur, þótt ella sé þar bezta veður og skellibjart. Þetta hefur verið til mikilla óþæg- inda í samgöngumálum Eyja- skeggja og þeir hafa barizt fyrir því með oddi og egg að fá þver- braut byggða á flugvellinum. Nú fer sá draumur senn að ræt- ast, því enda þótt kostnaðarsamt sé að gera þverbraut á Vestmanna- eyjavöll, vegna staðhátta og legu landsins, hefur fyrir nokkru verið ráðizt í þá framkvæmd og' fyrsta áfanganum 300 metra langri braut í þann veginn að ljúka. Undan- fama daga hefur verið unnið að því að bera ofan í brautina, en við brautarendann er hóll sem hindrar aðflug á hana, og þarf að Framh. á bls 5 Til 11. þ.m. höfðu orðið 318 bifreiða árekstrar á götum Reykjavfkur, en 266 á sama tíma í fyrra. Það var einkum f hálkukaflanum um síðustu mánaðamót sem varð hrein skæðadrífa af árekstrum, eða um 50 um eina einustu helgi. í sama mánuði f fyrra urðu 36 umferðarslys í Reykjavfk og þar af 2 banaslys. Þriðja banaslysið varð f Kópa» ogi í þeim mánuði. Grasið sést spretta Allt að 12 stiga hiti ó þorranum Það munar minnstu að sjá megi grasið spretta í vorhlýind- unum nú á miðjum þorra. Gras- ið hefur vaxið upp í allt að 15 cm hæð á skömmum tíma, sagði P'Il Bergþórsson veður- fræðingur í viðtali við Vísi í gær. Páll kvaðst hafa mælt græn- gresi 15 cm. hátt í skjóli og sinufláka sunnanundir Flug- turninum á Reykjavikurflug- velli. Á bersvæði hefur nýgresið náð 5 — 7 cm. hæð. Væri ómögu legt annað að segja en að þetta sé mikil gróska á miðjum þorra, enda hafa hlýindi verið mikil frá því í nóvemberlok þegar undan er skilinn kulda- kaflinn um og eftir síðustu mánaðamót, sem þá stóð í rétta viku. Þá gerði nokkrar frosthörkur, en þær hafa ekki komið að sök fyrir grasvöxtinn, einfaldlega af þeirri ástæðu að sjókomu gerði í upphafi kuld- ans er skýldi jarðvegi og gróðri Þó sagðist Páll sjá sums staðar kalmerki á grasbroddum. Um veðráttuna f heild sagði Pá!I að hún hefði verið óve.nju- Iega hlý eftir að nóvember- mánuði lauk. Sá mánuður var hins vegar einn hinn kaldasti nóvembermánuður um 30 ára brarnh a ols 5.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.