Vísir - 15.02.1964, Síða 16
I
Laugardagur 15. febrúar 1964.
Var enn meðvit-
undarlaus í gærkv.
Drengurinn, sem slasaðist á
Þvottalaugavegi móts viö Þvotta-
laugarnar um hádegið s.l. mið-
vikudag var enn ekki kominn til
meðvitundar í gærkveldi.
Lítið um atvinnu á Siglufírði
Tvö fyrirtæki á Siglu-
firði lokuðu í vikunni og
sögðu upp starfsfólki
sínu. Eru þetta hrað-
frystihúsið ísafold, sem
hefur séð jafnframt um
útgerð tveggja vélbáta,
og niðurlagningarverk-
smiðjan SIGLÓ.
Yfir 30 manns misstu at-
vinnuna, þegar hraðfrysti-
húsinu var lokað. Útgerðarmað-
urinn, sem er eigandi hússins,
sagðist ekki treysta sér lengur
til að halda áfram rekstrinum
vegna aflaleysis og kvaðst ætla
að fara suður til Reykjavlkur
með báta sína, Særúnu og Æsk-
una. Mun bæjarstjóm Siglufjarð
ar hafa mótmælt því, þar eð út-
gerðarmaðurinn hefur fengið
lán frá Siglufjarðarbæ til kaupa
á öðrum bátnum, Æskunni.
Sigló-síldin var komin aftur
í gang um áramót, en verður nú
að ioka. Þar unnu 10 manns og
var öllum sagt upp. Mun verk-
smiðjan standa uppi með allstór
an lager af hinu mesta hnoss-
gæti, en ekki eiga gott með að
selja, hvernig sem á því stend-
ur.
Nokkur vinna er um þessar
mundir við hraðfrystihús S.R.,
en atvinnulífið er í kaldakoli og
veldur Siglfirðingum að vonum
miklum áhyggjum, enda nóg
komið eftir brunann mikla í
tunnuverksmiðjunni.
Pósthúsið á Keflavílturflugvelli:
GREIDDIINNISTÆDULAUS
AR MILLJÓNAÁ VÍSANIR
1 Ijós hefur komið að Póst-
húsið á Keflavíkurflugvelii hef-
ur tekið við og greitt út ávís-
anir i þessum mánuði að upp-
hæð 2.1 milljón króna, sem inni
stæða hefur ekki reynzt fyrir.
Einnig mun Pósthúsið þar hafa
tekið við sams konar ávísunum
í janúar fyrir u. þ. b. V2 milljón
kr.
Við þessum ávísunum hefur
Pósthúsið tekið án bess að
tryggt hafi verið að innistæða
væri fyrir hendi, en reglur póst
stjórnarmnar mæla svo fyrir, að
það skuli jafnan kannað.
Póstmeistarinn á Keflavíkur-
flugvelli er Þórður Halldórsson,
en hann hvarf úr starfi i gær.
Mál þetta er nú í höndum rfkis-
Framh. á bls. 5
Frumv. um kjarabætur for-
seta íslands og þingmumm
Á Alþingi hafa nú verið bor-
in fram frumvörp um laun for-
seta (slands og þingfararkaup
alþingismanna. Fjalla þau um
hækkun á þessum launum í
Áskrifendur
í Kópuvogi
Vinsamlegast athugið, að af-1
greiðsla Vísis i Kópavogi verð-1
1 ur eftlrleiðis að Holtagerði 11. |
Eru kaupendur beðnir að snúa ,
sér þangað, eða í síma 4-11-68,
ef þeir þurfa að korna á fram-I
' færi kvörtunum. Verður tekið |
við kvörtunum milli kl. 7 og 8 ,
á kvöldin og blaðið sent sam-
(stundis ef um vanskil er að '
ræða. Tekið er á móti nýjum I
áskrifendum á sama stað.
samræmi við aimenna launa-
hækkun og einnig er nú ætlun-
in að alþingismenn fái í fyrsta
skipti föst mánaðarlaun. Það er
ríkisstjórnin sem ber fram frum
varpið um laun forseta en þing-
menn úr öllum flokkum bera
fram frumvarpið um þingfarar-
kaup, svo að þar verður ekki
um neitt deilumál að ræða.
Ríkisstjórnin leggur tU að
forseti íslands fái 35 þúsund
krónur á mánuði í laun, en laun
hans hafa nú verið um 20 þús.
kr. í greinargerð er sagt að á
s.I. ári hafi Kjaradómur ákveð-
ið ný launakjör fyrir opinbera
starfsmenn og eru laun forset-
ans hér ákveðin með hliðsjón
af þvi.
1 frumvarpinu um þingfarar-
kaup þingmanna er lagt til aðC>
árslaun þingmanna verði 132
þúsund krónur eða 11 þúsund
krónur á mánuði. Skal byrja að
greiða þingmanni I aunin frá
byrjun næsta mánaðar eftir að
hann hefur verið kosinn þing-
maður.
Varamenn skulu njóta þing-
fararkaups þann tíma er þeir
sitja á þingi. Þá er ákvæði um
það, að ráðherra sem er utan-
þingsmaður skuli fá þingfarar-
kaup eins og alþingismaður.
Samkvæmt þeim lögum, sem
verið hafa i gildi hafa þing-
menn fengið greitt dagkaup,
meðan Alþingi situr.
Það er Þingfararkaupsnefnd
Alþingis sem beitir sér fyrir
því að þetta frumvarp sé flutt
og hefur hún falið forsetum
þings og formönnum þingflokka
stjórnarandstöðunnar að flytja
frumvarpið, þ. e. þeim Birni
Finnssyni forseta Sameinaðs
Framh. á bls. 5
ZULU STAMP
Vinsæll samkvæmisdans á
meginlandi Evrópu og í Banda-
ríkjunum um þessar mundir er
hinn svokallaði „Zulu Stamp“
og dansinn Shake, en báða þessa
dansa og þó einkum zúlutramp-
ið er hægt að sjá dansaða af ís-
lenzkum unglingum og dansiðk
endum um þessar mundir og þá
ekki sízt f Þórscafé.
Eins og meðfylgjandi mynd
sýnir Ijóslega, er Zulu Stamp
tilþrifamikill dans og einn dans-
arinn í Þórscafé gaf þá skýr-
ingu, að þegar hoppað væri,
ætti að bera sig að eins og menn
væru fastir í leðju, en losnuðu
skyndilega.
Mjóir hælar kvenskónna
skella á gólfinu með tilheyrandi
afleiðingum. Einn af forráða-
mönnum Þórscafé’s sagði okk-
ur, að þessi dans bætti sannar’-
lega ekki útlit gólfanna, sem
hefði þó ekki verið beysið síð-
an hinir mjóu stálhælar komust
í tízku. „Hér liggja öll gólf-
teppi og parketgólfið sömuleiðis
undir skemmdum vegna þessara
stálfleyga", sagði hann.
Ólögieg vínsala
í gærdag komst lögregian yfir
sniyglað áfengi, að því er virtist
og jafnframt ólögiega áfengissöiu
á óvæntan hátt.
Eftirlitsmenn frá lögreglunni,
sem voru á ferð veittu bifreið at-
hygli sem þeim fannst vera ekið
bæði of hratt og of ðgætilega.
Auk þess sýndist þeim farartækið
ekki vera í ákjósai.Iegu ásigkomu-
lagi og m. a. virtust stefnuljós j
annað hvort óvirk eða ekki notuð. j
Þeir veittu bifreiðinni því eftirför ;
og stöðvuðu hana. Báðu þeir ek-!
ilinn, sem var unglingspiltur, að j
koma með farartæki sitt í Bifreiða-
eftirlitið til skoðunar. Pilturinn
éerði sem honum var boðið, en i
þegar þangað kom og lögreglu-
tnennirnir fóru að skoða bifreiðina
fundu þeir í henni kassa með 6
Geneverflöskum. Kvaðst pilturinn
hafa keypt þær af ákveðnum sjó-
manni og greitt 270 krónur fyrir
hverja flösku.
Málið var rannsakað í gær-
kveldi og náðist í seljandann.
Hann viðurkenndi að hafa selt
piltinum áfengið, en hélt því fram
að það væri löglega innflutt. Það
væri safn úr síðustu siglingum
sínum, en sjómönnum er, sem
kunnugt, heimilt að taka með sér
2 flöskur af sterku áfengi, er þeir
koma úr siglingu hverju sinni.
SIGURBJ&RN AÐ HÆTTA
REKSTRIGLAUMBÆJAR?
Undanfar'ð hafa bankar þeir,
er lánað hafa mest f Glaumbæ,
verið að leita að manni, er gæti
tekið við rekstri Glaumbæjar
af Sigurbirni Eiríkssyni. Var
ætlunin að láta Sigurbjörn
hætta rekstri Glaumbæjar frá
og með deginum í dag, en ekki
hafðl verið gengið frá málinu
í gær, er Vísir hafði síðast
fregnir af því.
Undanfaríð hefur verið alger
óreiða á rekstri Glaumbæjar.
Ekki hefur verið staðið í skil-
um við starfsfólk hússins og
hefur hvað eftir annað komið
til stöðvunar starfsfólks vegna
vanskila af hálfu S gurbjörns
Eiríkssonar.
Undanfarið munu bankar þeir,
er Iánuðu í Glaumbæ, hafa
reynt að fá þjóna til þess að
taka við rekstrj Glaumbæjar en
ekki munu hafa náðst samning-
ar.
Framsóknarhúsið, sem Glaum-
bær er í, er eign Framsóknar-
flokksins, en Ragnar Þórðarson
tók það á' leigu til nokkurra
ára og stofnsetti Glaumbæ.
Seldi Ragnar síðan Sigurbirni
Eiríkssyni innbú Glaumbæjar og
var ætlunin að Sigurbjörn yfir-
tæki leigusamninginn við Fram-
sóknarflokkinn, en ekki hafði
verið endanlega gengið frá öll-
um skjölum, er ávísanafals Sig-
urbjörns komst upp. — Mun
Glaumbær því enn vera á nafni
Ragnars Þórðarsonar og Theo-
dórs Ólafssonar, er rak hann
með honum.
SJÁLFSTÆÐISFÓLK!
^sjr Munið Varðar-kaffið í Valhöll
%■ á í dag kl. 3—5.